Vikan - 15.09.1977, Síða 43
BLÓÐ OG GULLHRINGUR
Kæri draumráðandi!
Mig langar að biðja þig að ráða
fyrir mig tvo drauma. Hvað táknar
gullhringur með þremur rauðum
steinum? Það var eins og stein-
arnir væru í tröppu, hver upp af
öðrum. Ég fann hringinn, setti
hann á hægri baugfingur og sagöi
við mágkonu mína: „Sjáðu, hvað
ég fann!" Mig dreymir oft blóð, sé
þaö leka, bæði úr mér og
fjölskyldu minni og fleira fólki.
Unnusti minn tók hníf og skar sig í
kinnina og blæddi þar úr. Hundur
beit barnið mitt og tvennt annað,
barn og fullorðinn mann, sem ég
þekki ekki. Jæja, elsku draum-
ráðandi, ég hef ekki meira að
spyrja í þetta sinn og vona að þú
gefir mér góð svör.
Lifðu vel og lengi.
Ein fyrir norðan,
sem dreymir mikið um blóð.
Fyrri draumurinn er fyrir brúö-
kaupiþínu, semættiað verðainnan
skamms. Bióð er yfir/eitt siæmur
fyrirboði í draumi, boðar oft
veikindi dreymandans, svik eða
eitthvert tjón. Þú getur átt von á
vandræðum af völdum afbrýði-
semi, og átt slæman andstæðing.
ÞRJÁR SVARTAR LÍKKISTUR
Kæri draumráðandi!
Mig langar mikiö til að biðja þig
að ráða fyrir mig eftirfarandi
draum. Hann er á þessa leið: Mér
fannst ég koma inn í búð til að
kaupa mér bikini, það átti að vera
hvítt. Ég þekkti flestallt fólkið,
sem vann þarna. Þegar ég hafði
skoðað þarna svolitla stund, þá
fannst mér koma sex svartklæddir
menn með svarta líkistu á milli sín.
Þessir menn komu neðan úr
kjallara, sem var við hliöina á
skrifstofunni ( búðinni. Ég varð
alveg yfir mig hrædd, og ætlaði að
segja við svartklæddu mennina,
að líkkistan ætti að vera hvít, en
ekki svört, en ég kom ekki upp
orði. Ég stóð þarna alveg stjörf,
þangaö til mennirnir fóru framhjá
með kistuna. Þá fór ég inn á
skrifstofuna og þá fannst mér eins
og ég væri komin í kirkju. Mér
fannst kirkjan svo stór, hún var
hálffull af fólki, en þetta fólk var
allt kvenmenn í svörtum fötum,
með hvítar sorgarslæður. Mér brá
mikiö við þetta, og ætlaði að
hlaupa út, en þá komu aðrir sex
svartklæddir menn með svarta
líkkistu á milli s(n, og á eftir þeim
komu stelpa og strákur með
svarta barnalíkkistu á milli sín. Ég
þekki þennan strák, og fór til hans
og labbaði með honum út úr
Mig
dreymdi
búðinni. Þegar við komum út á
götuna, kom bíll á fullu. Okkar
fannst sem bíllinn reyndi að keyra
á mig. Hann gerði margar tilraunir
en náði ekki í mig. Síðan man ég
ekki meira, fyrr en ég var að
hlaupa upp brekku í leit aö svörtu
barnalíkkistunni, og alltaf var
bíllinn á eftir mér. Ég tek það
fram, að ég vissi ekki, hverjir lágu í
líkkistunum, en ég vildi alls ekki
láta jarða barnið. Ég hef mjög
mikinn áhuga á að vita hvaö þessi
draumur táknar, því mér finnst
hann svo táknrænn.
Hondý
Þessi draumur er fyrirboði erfið-
ieika, sem að þér munu steðja.
Svart er yfirleitt óheillavænlegur
litur i draumi, og þú verður fyrir
einhverri sorg innan tíðar. Þú átt
fyrir höndum langa sjóferð, sem
þú ættir að sýna varúð gagnvart.
Þú munt sýna dirfsku og dug við
að koma fyrirætlunum þínum /
framkvæmd, og búðin I draumn-
um er góðs viti.
FLUGELDAR OG NEYÐARBLYS
Kæri draumráðandi!
Hérerdraumur, sem mig langar
til að biðja yður að ráða sem fyrst
fyrir mig. Ég vona að þér skiljið
skriftina mína:
Mér fannst vera gamlárskvöld.
Ég var heima hjá mér og það var
verið að skjóta flugeldum. Síðan
kom pabbi með tvö neyðarblys
eins og bátar eru með. Hann lét
mig fá eitt og tók sjálfur hitt, og
kveikti á því og úr hans blysi kom
grænn logi (en á að vera rauður).
Aftur á móti kom rauöur logi úr
mínu blysi. Mér fannst mamma
mín og bróðir minn standa fyrir
aftan mig, og mér fannst að
mamma væri að fárast yfir því að
ég kynni ekkert á blysið, en bróöir
minn, sem er sjómaður, sagði að
ég gæti þetta alveg einn. Svo var
farið að skjóta upp rakettum, svo
ég var sendur til að kaupa spýtur.
Þegar ég var að fara, tók ég eftir
því að bíll, sem annar bróðir minn
á, stóð fyrir utan og fannst mér
hann vera dökkur á lit (en hann
er í rauninni grár). Ég skipti mér
ekkert af þessu og hélt bara
áfram. Þegar ég hafði gengið
nokkurn spöl, þá fannst mér að
gamli bíll bróður míns væri þarna,
og það var verið að setja hann í
gang með þessum ógurlega
hávaða, eins og bíllinn væri
hljóðkútslaus. Ég skipti mér ekkert
af því, og hélt áfram. Eftir stutta
göngu kom ég að flugeldasölu,
sem virtist hafa verið skúr eða
tjald. Þegar ég kom að skúrnum/
tjaldinu var ein dama á undan
mér, svo ég fór við hlið hennar og
skoðaði úrvalið. Síðan, þegar hún
var búin að versla leit ég við, og þá
fannst mér vera komin löng röð
fyrir aftan dömuna. En afgreiðslu-
daman sneri sér að mér, og ég
byrjaði að versla, en svo þegar ég
ætlaði að fara að borga, vaknaði
ég.
Virðingarfyllst,
A.Á.
Þér mun hlotnast dálítið fé, sem
þú færð með vissum skilyrðum,
og þú átt á vændum stutta gleði-
stund, sem sorg og armæöa hlýst
af, efþú varast að spenna bogann
ekki of hátt. Þú verður ástfanginn
innan skamms, og trúlofun er í
vændum hjá þér. Mikil hamingja
verður hjá fjölskyldu þinni.
STIMPINGAR I SKÓLASTOFU
Kæri draumráðandi!
Þú ert sá eini, sem mér dettur
fyrst og einn í hug, einmitt nú,
þegar mér er mikið niðri fyrir yfir
draumi, sem mig dreymdi núna í
morgun. Ég vaknaði klukkutíma
fyrr en venjulega, en steinsofnaði
aftur, og dreymdi þá draum, sem
ég er viss um að eitthvað
táknrænt búi í. — Mér fannst ég
vera að hefja námsár ( stórri
skólastofu og með mörgum
gömlum skólafélögum. Ég og
vinkona mín, ásamt þriðju, sem ég
man ekki hver er, settumst fyrir
miðju, aftast og sætaröðin var
löng. Mig minnir, að skólastofan
hafi veriö máluð í Ijósum grænum
lit, og þannig var birtan inni. Það
var mikill galsi í okkur stöllum
(eins og rétt er, áður fyrr) og við
hlupum út þegar frímínútur komu.
Mér fannst að við mundum koma
til með að fá eitthvað gott
kaffibrauð, þegarvið kæmum inn,
af því að þetta væri nú fyrsti
dagurinn (rétt eins og sjálfsagt
væri, en ég hef aldrei vanist því).
Þegar við stöllurnar þrjár komum
inn og fundum sætin okkar, var
Björn nokkur sestur í sætiö mitt,
og vildi sig hvergi hreyfa. Ein-
hverjar stympingar urðu, og ég
fann að hann þrýsti fingri inn í
holuna aftan á hálsinum á mér,
neðan hnakka. Síðan þreif hann
greiðu og mundaði hana, eins og
hníf, og langaði að stinga í mig.
Heiftin var mikil í báðum. Ég hrinti
honum svo frá mér og fram á
borðið og náði á honum taki, svo
hann var fastur og ég sneri upp á
höndina á honum. Hann gafst upp
og fór sneyptur í sæti á enda
sætaraðar töluvert framar. Vin-
kona mín hafði einnig lent í
stympingum við innganginn, og
fvlnr'jst margir með þar, og tóku
því ekki margir eftir mínum
átökum, þannig að ég fann að mér
leiddist, að ekki skyldu fleiri hafa
tekið eftir „minnkun" Björns (þótt
ég kæmi ekki endilega nærri).
Stuttu seinna vaknaði ég, eða var
vakin, og gekk ekki of vel. Ég vil
gjarnan fá svar í Vikunni, án þess
þó að draumurinn eða þetta rugl
allt verði birt. Heldurðu að það
væri hægt? Jæja, ég þakka þá
bara fyrirfram fyrir svarið, og ég
vona að þú náir að komast fram úr
þessari langloku, og um leið vil ég
veita þér hól mitt fyrir góð svör við
lesendabréfum, sem ég hef lesið.
Kærar þakkir.
Sigriður
Ekki virðistu vera alveg laus við
Björn vin þinn úr lífi þínu, eftir þvi
sem draumurinn segir tiH! Þú þarft
að gæta þín á lygurum, og
mannorö þitt mun bíða hnekki,
vegna öfundar einhvers, (að öllum
líkindum Björns). Sæti þitt í
skólastofunni bendir til að þú
verðir af starfi eða einhverju sem
þér er mikið i mun að hljóta, og
verður Björn þar að verki, en þó
aðeins til skamms tíma. Skóla-
stofan boðar hins vegar óvænt
happ, gott líferni og vaxandi
virðingu, og leiði þinn í enda
draumsins er fyrirboöi mikillar
gleði, sem þú verður aðnjótandi.
Þú þarft á allri þeirri aðstoð, sem
þér býðst, að halda, ti/ að halda
þlnum málefnum á hreinu.
37. TBL.VIKAN 43