Vikan - 15.09.1977, Síða 46
Urslitin í sumargetrauninni:
Kona á Blönduósi
ÞÓRSMERKURFERÐ
Önnur verðlaun voru helgarferð
fyrir tvo með Ferðafélagi islands í
Þórsmörk. Þann vinning hlaut
Þuríður M. Jónsdóttir, Egilsbraut
16, Þorlákshöfn. Þuríður var flutt
frá þessum stað, er við ætluðum
að hafa samband við hana, og
biðjum við hana því að hringja til
okkar.
Magnús tekur við Gefjunar-svefn-
pokanum úr hendi Unnar Björns-
dóttur, verslunarstjóra í DOMUS.
46 VIKAN 37. TBL.
FERÐ TIL IBIZA MEÐ
ÚRVALI
Ferð fyrir tvo til Ibiza á vegum
ferðaskrifstofunnar Úrval hlaut
Elsa Óskarsdóttir, Mýrarbraut 11,
Blönduósi. Þegar við hringdum til
Eslu, kom í Ijós, að hún hafði
aldrei komið út fyrir landsteinana
og þessvegna kom þessi vinningur
sér sérstaklega vel. Elsa er gift
Gunnari Sigurðssyni og eiga þau
þrjú börn. Þau hafa verið búsett á
Blönduósi síðan þau hófu hjú-
skap. Þau áttu leið til Reykjavíkur
daginn eftir að við hringdum, svo
hægt var að ganga strax frá
ráðstöfun vinningsins á skrifstofu
Úrvals. Elsa og Gunnar ætla að
fara í Ibizaferðina næsta vor, þar
sem nú var naumast nægur tími til
stefnu. Þau sögðu blaðamanni
Vikunnar að þau keyptu alltaf
Vikuna og hefðu um tíma verið
umboðsmenn á Blönduósi. Við
óskum þeim hjónum til hamingju
með vinninginn.
Snorri dregur út vinningshafa i sumargetrauninni.
FERÐAFATNAÐUR FRÁ
HERRAHÚSINU
Fjórðu verðlaun var ferðafatn-
aður frá Herrahúsinu og reyndist
verðlaunahafinn Inga Jóhanns-
dóttir, Foldahrauni 42, Vest-
mannaeyjum. Inga,sem er 26 ára,
var erlendis þegar við ætluðum að
hafa samband við hana, en
vinningurinn kemur eflaust í góðar
þarfir þótt hann sé í rauninni
stílaöur á herramann.
hreppti ferð til Ibiza
á vegum Ú rvals
ÚTIVISTARFERÐ
Prýðisgóð þátttaka var í sumar-
getraun Vikunnar. Það var 4ra ára
snáði, Snorri Þorbergsson sem
dró út verðlaunahafana og hiutu
eftirtaldir vinninga:
Þriðju verðlaun var berjaferð
með Útivist og hlaut þau Sigfríður
Hallgrímsdóttir, Víðivöllum 1,
Fljótsdal, Norður-Múlasýslu. Sig-
fríður, sem er 17 ára og verður í
gagnfræðaskóla á Akureyri i
vetur, ætlar að eiga vinninginn
inni og skreppa í ferð með Útivist
þegar betur stendur á.