Vikan - 15.12.1977, Side 44
sem læknirinn sagði henni að gera;
henni fannst það vera það minnsta,
sem hún gæti gert fyrir barnið.
Garðurinn var þakinn blómum;
grænum trjám og safamiklu grasi,
og meðfram ánni voru faldir stígar.
Hann var í miðborginni, borginni,
þar sem Lísa var alin upp.
Móðir hennar hafði eitt sinn ekið
henni i barnavagni eftir þessum •
sömu stígum; seinna hafði Lísa
leikið sér á bökkum þessarar sömu
ár. Fyrir sex árum, þegar hún var
átján ára, hafði hún farið úr
borginni til að nema í myndlistar-
skóla í London. Hún hafði komið
aftur, þegar læknirinn tjáði henni,
að hún væri ófrísk.
Lísa var heppin, og hún vissi það.
Foreldrar hennar höfðu tekið við
henni og lofað að styðja hana. Þau
höfðu farið dult með eigin sársauka
og áfall. Þau höfðu ekki reynt að fá
hana til að gefa barnið, né höfðu
þau reynt að fá hana til að segja sér
frá föður barnsins. Lísa hugsaði nú
til Malcolms. Hún hafði elskað
Malcolm, hafði viljað giftast hon-
um. Þangað til þessi æðislegu,
ásakandi rifrildi áttu sér stað, þegar
hún uppgötvaði, að hún átti von á
barni, þegar Malcolm hafði heimtað
að hún léti eyða fóstrinu.
„Það er það eina, sem hægt er að
<■ íáft
Smásaga eftir
KAREN BOREHAM
Barnið
hennar Lísu
I garðinum var hlýtt og fallegt í
sólskininu. Mæður með barnavagna
gengu rabbandi eftir stígunum, og
lítil börn léku sér á bökkum árinnar.
Eldri hjón gengu með hunda sína og
brostu og kinkuðu kolli til ungu
kvennanna með vagnana.
Þau brostu líka og kinkuðu kolli
til þessarar aðlaðandi og greinilega
ófrísku ungu konu, sem sat á bekk i
sólskininu. Hún brosti veikt á móti,
ánægð, ljómandi og afslöppuð í
hlýrri morgunsólinni. En dásamlegt
að vera ung og heilbrigð og eiga von
á barni, hugsuðu gömlu konurnar,
sem gengu úti með hunda sína og
minntust þess, þegar þær voru
ungar og gengu með börnin sín.
Stúlkan, sem hét Lísa, hallaði sér
aftur á bekknum og lagði báðar
hendumar á útþaninn kviðinn. Hún
hafði i rauninni engan rétt til þess
að vera ánægð. Hún var ekki gift.
Lísa stóð hægt upp frá bekknum
og fór að ganga um garðinn.
Læknirinn hafði sagt henni að
ganga eins mikið og hún gæti, án
þess að þreyta sig. Lísa gerði allt,
•»
44VIKAN 50. TBL.