Vikan - 13.07.1978, Blaðsíða 4
Sumargetraun
Vikunnar 1978
VERÐLAUNIN:
1. Hálfsmánaðar Úrvalsferð fyrir tvo
í íbúð á Ibiza.
2. Hálfsmánaðar Úvalsferð fyrir tvo
í íbúð á Kanaríeyjum.
3. Hálfsmánaðar Úrvalsferð fyrir tvo
í íbúð á Mallorca.
Kanaríeyjar
„Las Islas Afortunadas”
eða Sælueyjar er spænskt
auknefni, sem segir okkur
kannski meira um Kanarí-
eyjar en allt annað. Frá
upphafi vega hefur farið
sliktorðaf veðurbliðu, feg-
urð og frjósemi eyjanna
undan norðvesturströnd
Afríku, að þær hafa verið
kenndar við eilíft vor. Plató
gat sér til, að Kanaríeyjar
væru leifar hinnar sokknu
paradísar, Atlantis, og
vissulega kemur mönnum
slíkt í hug, þegar þeir sjá
eyjarnar rísa úr hafinu, sem
skilur tvo heima. Kanarí-
eyjar eru eldfjallaeyjar,
þrettán talsins, þar af sjö í
byggð. Spánverjar hafa
ráðið yfir eyjunum frá því í
byrjun 15. aldar, og fyrr á
tímum voru eyjarnar mikil-
vægur áningarstaður þeirra,
sem áttu fyrir höndum
langa og hættulega sjóferð
til Nýja heimsins. Nú eru
Kanaríeyjar fjölsóttur
ferðamannastaður, enda er
veðurfarið með eindæmum,
og munar aðeins sex stigum
á meðalhita hlýjasta og
kaldasta mánaðar, en
meðalhiti í „svartasta
skammdeginu” er tuttugu
stig. Á Kanaríeyjum er að
finna stórbrotna náttúru-
fegurð, og landslag er svo
margbreytilegt, að stundum
er sagt, að sérhver
Kanaríeyja sé heilt megin-
land í hnotskurn.
Gran Canaria er þriðja
stærsta eyjan í Kanaríeyja-
klasanum. Sundurgrafið
fjalllendi, kulnuð eldvörp,
hlýlegir, gróðursælir dalir
og víðfeðmar sandlengjur
með sjó fram auðkenna
landslag á eynni. Gran
Canaria er þekkt fyrir bað-
strendur, og ber þar einkum