Vikan - 13.07.1978, Qupperneq 27
v jafnvel þó ég hefði aldrei fengist við slíkt á
>þeim tíma. Ég fann að ég vildi leika í
sorgarleik, en ég vildi einnig fá fólk til að
hlæja samtímis. Þú getur ekki tekið hvaða
kvikmynd eða leikrit sem er og látið fólk
hlæja áð þvi, af því að þau eru ekki ætluð
til þess, Þá kviknaði sú hugmynd hjá mér
að skrifa handrit, þar sem ég gæti látið
dramatíkina ráða, eða skopið, ég gæti
fléttað því saman, eða skilið það sundur. Ég
væri að baka köku, sem væri nákvæmlega
eins og ég vildi hafa hana.”
Gene Wilder fann fyrst fyrir ánægjunni,
sem fylgir því að stjórna, þegar hann
skrifaði og stjórnaði Ævintýrum yngri
bróður Sherlock Holmes. Því miður upp-
fyllti myndin ekki kröfur áhorfenda, gagn-
rýnenda eða Gene Wilder sjálfs. En síðasta
sköpunarverk hans The Worlds Greatest
Lover, hefur bætt það upp, og fær alveg
stórkostlegar viðtökur.
Myndin er byggð upp á tveimur
söguþráðum. Annar fjallar um leit eins
kvikmyndafélags, að arftaka Rudolfs-
Valentino. Hinn söguþráðurinn fjallar um
einn þeirra, sem komu til greina sem
Valentino — Wilder og konu hans, sem er
leikin af Carol Kane.
„Meginuppistaða kvikmyndahandritsins
er ást,” útskýrir Gene. „Þetta er eiginlega
viðkvæm ástarsaga með skoplegu ívafi,
ehemmm...!
Þið eigið sjálfsagt eftir að finna margar
kunnuglegar persónur í myndinni. Þar má
sjá Marx-bræðurna, Abbott og Costello,
Ritz-bræðurna, þar má jafnvel sjá Chaplin,
Mel Brooks, og ef vel er að gáð, þá er ég
þarna einhvers staðar líka!”
elskhugi Hollywood.
Til mBcillar skelfingar fyrir Rudy, fellur kona hans
Anníe (Carol Kane) fyrir töfrum Valentinos.