Vikan - 21.09.1978, Blaðsíða 54
PÓSTLRIM
Systrunum kem-
ur illa saman
Kœri Póstur!
Mér þykir svörin, sem þú
gefur við sumum bréfunum
mjög góð, og vona að þú gefir
mér hreinskilnislegt og gott
svar. Þannig er mál með vexti,
að ég er hrifin af strák, sem ég
held að sé eitthvað hrifinn af
mér líka. En það gerir strik í
reikninginn að hann er í félags-
skap með systur minni, sem er
eldri en ég. Okkur systrunum
kemur illa saman, og henni er
illa við að ég sé að skipta mér
af hennar vinum. Þess vegna
get ég ekki kynnst honum.
Jæja, hvaða þyngd passar við
manneskju, sem er 1.65 á hæð?
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna.
Ein í vandræðum
Ég get nú engan veginn
komið því heim og saman,
hvernig pilturinn á að vera
hrifinn af þér, ef þú ert enn
ekki farin að kynnast honum
... Bíddu bara róleg, ef hann
hefur áhuga á þér, — þá tekur
hann þig örugglega fram yfir
systur þína. Þú ættir að vera
59—60 kg, ef þú ert 1.65 á
hæð (meðalþyngd).
Eftirlýstur:
„Pennavinur á
Akureyri'
Góðan daginn, kæri Póstur.
Mig langar til að athuga,
hvort þú getir hjálpað mér í
vandrœðum mínum. Þannig er
mál með vexti að ég sendi einu
sinni nafnið mitt í „Pennavina-
dálkinn” hjá ykkur. Égfékk
nokkur bréf, en svo um daginn,
eða réttara sagt í vor, fékk ég
bréf frá stelpu, sem býr á
Akureyri. Ég ætlaði að skrifa
henni, en var svo óheppin að
týna bréfinu með heimilis-
fanginu og öllu. Þess vegna
langar mig til að biðja ykkur
að birta þetta bréf bráðlega, ef
ske kynni að hún myndi rekast
á þetta.
Kristín Þorsteindóttir,
Kleppsvegi 80,
104 Reykjavík.
Erfitt líf
Kæri Póstur.
Það er svo margt, sem mig
langar til að biðja þig að reyna
að hjálpa mér með, en ég veit
varla hvar ég á að byrja. Jæja,
fyrst eru það foreldrarnir. Sko,
ef mig langar til þess að tala
við mömmu, þá eru það ekki
beint útúrsnúningar, sem ég
fæ, en það verður einhvern
veginn þannig að ég verð alltaf
hálf vandræðaleg, og þori ekki
að spyrja meira. Og það er
margt, sem mig langar að
spyrja bæði pabba og mömmu,
en ég þori það ekki, vegna þess
að ég er ekki viss hvernig þau
taki því. Hvort á ég að hætta á
að þau verði kannski reið, eða
á ég bara að vera í óvissu í
lengri tíma? Svo ég snúi mér að
öðru. Ég á vinkonur. Tvær
þeirra eru mjög góðar stelpur,
en það er ein stelpa, sem segir
að ég sé besta vinkona sín og
hún treysti mér best, en hvað
oft, sem ég er að reyna að tala
almennilega við hana, þá er
eins og hún sjái mig ekki
(oftast nær í skólanum). Þessi
stelpa er ágæt svona út af fyrir
sig, en á ég bara að segja henni
að ég þoli ekki svona fram-
komu eða á ég að þola þetta?
Það er líka eitt, sem ég veit
ekki hvað ég á að gera við. Ef
ég heyri eitthvað, eða sé eitt-
hvað, sem er hrollvekjandi,
gleymi ég því ALDREI. Það
bara hverfur ekki úr hausnum
á mér, og stundum kemur það
Dalíur? Mér sýnist þetta
líkara vafningsviði!
( ^j>j» .
Farðu með mig til Kúbu!
ósjálfrátt fram i huga mér
(oftast á kvöldin). A maður
nokkuð að leita til læknis út af
svoleiðis? Jæja Póstur minn, ég
fer nú að hætta þessu. Hvað
eru margar villur í bréfinu?
Bestu þakkir fyrir allt í
Vikunni og Póstinum.
Fröken Vandamál.
Auðvitað áttu að ræða við
foreldra þína um allt, sem þú
þarft að tala um. Er þetta ekki
bara einhver ímyndun í þér að
móðir þín svari þér ekki? Þú
ert nú á erfiðum aldri, og mikl-
ar hlutina sennilega fyrir þér.
Þú átt alls ekki að óttast að
ræða við foreldra þína, og fá
hjá þeim svör við þvi, sem þú
þarfnast að vita, sama hvers
eðlis það er. Til þess eru nú
foreldrarnir — að kenna
börnum sínum og ala þau upp
á réttan hátt. Ég skil nú ekki
alveg þetta vinkonumál þitt. Ef
stúlkan hundsar þig svona í
skólanum, þá skaltu bara
sleppa því að tala við hana, og
halda þig að hinum tveimur. Ef
þér þykir hins vegar vænt um
þessa þriðju spurðu hana þá
bara beint út, hvað hún meini
með þessari framkomu sinni;
annað hvort treysti hún þér, og
sé vinkona þín, eða ekki. Þetta
með hrollvekjuna er afskaplega
algengt og eðlilegt, og það upp-
lifa örugglega flestir. Ef þetta
er aftur á móti á mjög háu stigi
hjá þér, haldi t.d. fyrir þér
vöku nótt eftir nótt, eða eitt-
hvað slíkt, þá sakar aldrei að
tala við sálfræðing, eða ein-
hverja persónu, sem gæti hjálp-
að þér að leysa þetta vanda-
mál. Villurnar i bréfinu voru
fjölmargar, og orðalagið alveg
hræðilegt.
Hvernig á að
segja upp
strák?
Kœri Póstur.
Geturðu sagt mér hvernig ég
á að segja upp strák, án þess
að særa hann eða að við
54 VIKAN 38. TBL.