Vikan - 12.10.1978, Síða 51
sameiningu að negla saman timbrið og
gera við brotinn lásinn á dyrunum.
Tommi leit á Pétur. „Það er best, að
þú farir niður í þorp og sækir Evu, áður
en aftur fer að rigna. Ég verð hjá
hestunum. Hvað segirðu um að taka til í
kompunni fyrir Pétur, Kalli?”
„Ó, guð minn góður, því hef ég
steingleymt.” Hún flýtti sér inn.
Loks lægði storminn. J>egar herbergið
var tilbúið, var orðið aldimmt. Kalli
þvoði sér þreytulega og tók að elda
matinn.
Þegar álútur líkami Rikka Lockett
birtist í eldhúsdyrunum lá við að hún
fyki gegnum þakið af reiði. Hvern
skollann vildi karluglan núna?
Rikki yggldi sig. „Þú kemur mér á
óvart, Kalli Rowe. Þú ert engu betri en
hún og það er alveg satt.”
Varir Kalla urðu að þunnu striki og
hún leit hörkulega á hann. „Ef þú ert að
tala um Evu kemurðu mér á óvart,
Rikki. Hún er þó dóttir þín. Geturðu
ekki skilið, hvað hún á erfitt?”
„Ég skil það eitt að hún hefur komið
sér i klipu og getur sjálfri sér um kennt.
Nú ert þú svo gott sem að segja henni,
að hún hafi gert rétt. Hún geti komið og
búið hér, og allt sé t himnalagi.” Hann
var miður sin af bræði og reiði Kalla
lægði.
Hann skildi þetta ekki. Það sást á
framkomu hans og svip. Dóttir hans
hafði sett blett á fjölskyldunafnið og
hann hugsaði ekki um annað.
„Ég er ekki að dæma hana, Rikki, og
þú myndir ekki gera það sjálfur, ef þér
þætti raunverulega vænt um hana. Eins
og er kvelur þú alla. Evu, Pétur, konuna
Þina, en mest sjálfan þig.”
Svo bætti hún kuldalega við: „Ef þér
er sama er ég önnum kafin. Góða nótt!”
Hann starði reiðilega á hana smá-
stund, en svo barði hann skítinn af stig-
vélunum við þröskuldinn og skellti á
eftirsér.
KvÖLDVERÐURINN var góður.
Tommi hélt uppi skemmtilegum sam-
rasðum og sagði sitt af hverju um ævi
sína í Ástraliu.
Loks var kvöldið á enda. Það var búið
að þvo upp. Eva hafði hitað kaffi og svo
buðu þau Pétur góða nótt og fóru upp.
Nú var Kalli orðin ósegjanlega þreytt.
Hún hallaði sér að hörðu viðarbaki
bekksins, lokaði augunum og var farin
að dotta, þegar einhver eðlishvöt fékk
hana til að opna augun aftur.
Hún sá Tomma brosa til hennar.
-.Kalli, manstu, hvernig við vorum vön
að stelast að heiman og fara í reiðferðir
yfir heiðina? Manstu eftir Teignhead?”
Teignhead. Kalli hallaði sér aftur á
bak, skyndilega leið henni betur og hún
var hamingjusöm. Hún sá það fyrir sér.
Aldrei gæti hún gleymt þeim stað. Hann
var greiptur í huga hennar um aldur
°g ævi. Eftirlætisstaður hennar á
Dartmoor. Fjarlægt býli í rústum með
hrörlega veggi og fallið þak.
Framhald í næsta blaði.
Ráðleggingar handa konum og körlum:
LÍTIÐ LOKKANDI
ÚT FYRIR
HÁTTINN
Þú getur gert háttatímann að
rómantískasta tíma dagsins, ef
þú kannt að búa þig vel undir
hann, segja tveir frægir
fegrunarsérfræðingar.
George Masters, fegrunarsér-
fræðingur í Hollywood fyrir
stjörnur eins og Ann-Margaret,
Elisabeth Taylor og Ritu
Hayworth, segir að undir-
búningurinn undir háttinn eigi
að vera mikilvægasti þátturinn í
lífi konunnar.
— Ég get ekki skilið af hverju
konur leggja aðaláhersluna á
dagsnyrtingu, segir hann. —
Það mikilvægasta fyrir þær er
að líta sem best út þegar þær
fara í háttinn með manninum
sem þær elska.
Charles Hix, þekktur snyrti-
sérfræðingur fyrir karla, er
starfsbróður sínum sammála.
— Sérhver maður ætti að
hirða húð sína og líkama af sér-
stakri nákvæmni áður en hann
fer í rúmið með elskunni sinni,
segir hann.
Og hér eru nokkrar
ráðleggingar úr fegrunarhand-
bók þeirra félaga, fyrir konur og
karla:
George Masters ráðleggur
konum eindregið að breyta sem
oftast um aðferð við andlits-
þvottinn og setja á sig nætur-
krem áður en farið er í háttinn.
— Það er heldur ekkert rangt
við að setja á sig andlitsfarða að
þvotti loknum, segir hann.
Konur ættu að gera sér eftir-
farandi að fastri venju:
Sleppa öllu púðri og undir-
lagskremi nota aðeins dálítið af
augnskugga, augnaháralit og
kinnalit.
Gæta þess að varaliturinn sé
ekki of áberandi. Karlmenn, sem
kvarta undan því að konan sé of
mikið máluð, er í rauninni bara
að segja að varaliturinn hennar
sé of rauður.
Það er mikilvægt að beina
athyglinni að augunum þar sem
fólk horfist oft í augu undir þess-
um kringumstæðum.
Sveigið augnhárin upp á við
áður en litur er borinn á þau.
Dökkan augnskugga má nota
i kringum augun til að augn-
hárin sýnist þéttari og augun
stærri og skærari.
Notið rakan bursta til að bera
á augnskugga svo farðinn setjist
ekki í hrukkur.
Charles Hix, sem hefur gefið
út fegrunarhandbók fyrir
karlmenn, segir:
— Fyrsta skrefið er að fara í
sturtu.
Síðan ættu karlmenn að
fylgja eftirfarandi venjum:
Burstið tennurnar — og gætið
þess að engin óhljóð fylgi
munnskoluninni.
Raksturinn er ákaflega
mikilvægur. Engin kona kærir
sig um að mjúk andlitshúðin sé
rispuð eftir skeggbrodda. Góður
rakstur kemur í veg fyrir það.
Skvettið heitu vatni á andlitið
í um það bil tvær mínútur til að
mýkja skeggbroddana um allt að
því 60%.
Notið raksápu og fylgið legu
skeggháranna við raksturinn.
Eftir raksturinn ætti
maðurinn að bera létt lyktar-
laust andlitsvatn á rakt andlitið.
Gleymið ekki handaáburði!
Mörgum karlmanninum finnst
kannski of kvenlegt að nota
handaáburð, en engin kona
kærir sig um að láta klappa sér
með hrjúfum höndum.
Hix ráðleggur mönnum
fremur að nota baðpúður undir
hendurnar en svitaáburð þar
sem lyktin af honum gæti orðið
of áberandi.
— Gleymið ekki að öll lykt
magnast upp er líkamshiti
hækkar. Séu ilmefni borin á
líkamann dreifast þau eftir því
sem hitinn hækkar, segir hann.
Karlmaðurinn ætti einnig að
nota ilmvötn af mikilli gætni.
Farið að ráðum konunnar. Ef
hún notar ilmvatn ætti honum
einnig að vera óhætt að nota
það. En ekki of mikið, aðeins
dálitla skvettu á brjóstið.
Sléttið úr hárinu, sama hvaða
hárgreiðsla er notuð.
Karlmaðurinn ætti ekki að fara
áberandi skrýfður í rúmið, eins
og hann væri nýkominn af
hárgreiðslustofu.
Karlmaðurinn verður að
klæða sig samkvæmt líkams-
byggingu sinni. Sé hún í góðu
lagi er næstum alveg sama
hverju hann klæðist. Hinir geta
notast við stuttan eða síðan
náttslopp sem gefur þeim
karlmannlegt og girnilegt yfir-
bragð.
.Sloppurinn ætti að vera úr
léttu efni, helst bómullarefni,
lauslega bundinn saman í mittið,
svo sjáist vel í brjóstið.
41. TBL. VIKAN 51