Vikan - 03.07.1980, Síða 7
„Ég held að öllum þyki áhugavert
að heimsækja svo lítið land sem
Luxembourg er, sérstaklega með tilliti
til þess hvernig þvi hefur tekist að lifa
af í nágrenni við mestu stórveldi
álfunnar. lslendingar eru líka lítil þjóð
og ég er viss um að þeir gætu haft
gaman af því að sjá hvernig við höfum
farið að því að lifa af — öðruvísi en
þið. Báðar þjóðirnar hafa í sig og á
með sæmilegu móti þrátt fyrir
smæðina og það getur verið gaman að
bera þetta saman. Einnig er hitt að
fólkið sem byggir þessi tvö lönd er
ákaflega áþekkt við fyrstu kynni, lokað
og tekur tíma að kynnast því.
Allur sá mikli skógur sem er hér í
Luxembourg mun vafalaust gleðja
< margan tslendinginn, svo ekki sé
minnst á góðan mat og drykki á
viðráðanlegu verði. Luxembourg er við
þröskuld þeirra sem á annað borð
ferðast frá tslandi til útlanda og þeir
hinir sömu ættu að athuga að héðan
liggja leiðir til allra átta.
Ef ég ætti að gefa tilvonandi gestum
okkar góð ráð þá myndi ég byrja á því
að benda fólki á að hafa belgiska
franka með sér inn í landið. Þeir gilda
jafnt og luxembourgískir og þeim má
skipta hvar sem er í veröldinni. Einnig
verða tslendingar sem hingað koma að
vera tilbúnir að breyta venjum sínum
og borða ekki eins mikinn fisk og þeir
gera heima hjá sér. Fiskur er nefnilega
munaður hér og því ættu ferðamenn
að halda sig meira að kjötinu.
Svo má nefna að oft getur verið
skemmtilegra að dvelja úti í sveit
hérna í Luxembourg, frekar en að vera
í borginni. Þar eru hótelin líka töluvert
ódýrari, kosta kannski 800 franka á
meðan hótelherbergi í miðbænum kost-
ar 1200.”
George Hausmer ferðamálastjóri —
Hjá okkur er nóg að sjá, nóg að
borða og drykkir á viðráðanlegu
verði.
Hvers vegna ættu íslendingar að
heimsækja Luxembourg?
„Við erum svo lík,
en samt allt
öðmvísi"
— segir George Hausmer, ferðamálastjóri
Luxembourgar