Vikan - 03.07.1980, Qupperneq 13
Kaffihúsamenning í Luxem-
bourg er blanda af þvi sem gerist
í Frakklandi og Þýskalandi.
Bjórinn er ieinn sá besti í heimi
og kostar Utiö svo ekki sé
minnst á kaffið og brauð-
snúðana.
c>
Luxembourg hefur í aldanna rás
verið hernumið af flestum þjóð-
um álfunnar. í dag er þjóðin
frjáls og vill vera það áfram eins
og marka má af einkunnar-
orðum hennar „Mir wölle
bleiwe wat mir sin” sem þýðir:
Við viljum fá að vera eins og við
erum, eða látið okkur nú i friði!
I nœsta blaði:
íslendingarnir í Lux. — Munkarnir í
Clervaux — Gröf Pattons — Bruggarar og
vfngerðarmenn — Fæðingarstaður Karls
Marx
kvikmyndasýningar og þar eru sjússinn
ódýrari. Yfirleitt eru veggir ekki fleiri en
fjórir á þessum stöðum, við einn vegginn
er þar, við annan stólar, við þann þriðja
borð og á fjórða veggnum eru
klámsýningar sem tæpast geta talist hafa
listrænt gildi nema i einstaka
undantekningartilfelli. Bæði er um að
ræða lifandi sýningar svo og á tjaldi.
Einnig þessir skemmtikraftar eru sagðir
útlendir, illa launaðir og komnir af
albesta reki — þó ungir. Þarna ganga
stúlkur um gólf og biðja gesti um að
kaupa sér glas, ef það er gert þá er
viðkomandi um leið búinn að kaupa sér
skyndikonu og verðið mun vera frá
1000-1500 frankar (15.000 22.500 ísl.
kr.).
Fyrir þá sem kjósa að sitja heima á
kvöldin er sjónvarpsgláp alls ekki vitlaus
afþreying i Luxembourg. Hægt er að
velja á milli 9 stöðva, þriggja franskra,
þriggja þýskra, tveggja belgískra og
einnar luxembourgískrar. Stöðvar þessar
eru hver annarri betri fyrir fólk sem á
annað borð skilur frönsku eða þýsku.
Hinum er ráðlagt að gera eitthvað
annað. Fyrir utan allt sjónvarpsefnið,
sem er áberandi vel unnið, vekur hvað
mesta athygli hversu sjónvarpsþulurnar
eru líflegar, fallegar og skemmtilegar.
Þeim nægir ekki að sitja eins og
steingervingar og þylja upp dagskrár —
þær brosa, strjúka hárið frá enninu, slá
höfðinu aftur, segja tvíræðar sögur
(stuttar) og blikka jafnvel áhorfendur.
Má ætla að samkeppni sé á milli
sjónvarpsstöðva hver sé með friskleg-
ustu stúlkuna. Sem sagt, ákaflega
skemmtilegar.
Islenskum ferðamönnum þykja það
líkast til góðar ' fréttir að bjórinn í
Luxembourg er bæði ódýr og góðui.
Kráarverð er í kringum 18 franka (270
isl. kr.) og er luxembourgískur bjór í æ
ríkari mæli að ryðja sér til rúms erlendis
sem fyrsta flokks gæðavara. Enda hafa
Luxembourgarar verið bruggarar frá
alda öðli og stunda umtalsverða vin
rækt. Minna er drukkið af kaffi i land
inu, en það er samt sem áður ágætt og
kostar um 25 franka bollinn (375 ísl. kr.|.
Að lokum skal fólk varað við því að
fara með luxembourgíska franka úr
landi þvi þeir gilda hvergi annars staðar í
veröldinni líkt og myntin okkar. Einnig
skal fólk varað alveg sérstaklega við þvi
að kaupa sér mat á veitingastaðnum í
járnbrautarstöðinni þótt „menuið” kosti
ekki nema 100 franka. Þar blæðir ekki
einungis úr steikunum heldur líka úr
kartöflunum og dósasperglinum. Nóg er
af betri stöðum þótt verðið sé eilitið
hærra ... góða ferð! E.J.
Z7. tbl. Vlkan 13