Vikan - 03.07.1980, Side 18
Framhaldssaga
Copyright 1979 hy A\'ery Corman.
Avery Corman
Kramer
GEGN
Kramer
Ég elska son minn. Mig langar til að vera eins
mikið í návist hans og ég get. Hann er bara
fimm ára. Hann þarfnast mín. Ég er ekki að
segja að hann þarfnist ekki föður síns. En hann
þarfnast mín meira. Ég er móðir hans.
Hann kom aftur eftir tíu míniitur
ásamt manni á sextugsaldri. Þeir tókust i
hendur. auglýsingastjórinn settist í stól
og hallaði sér aftur á bak i sætinu.
—Svo þér eruð framagjarni ungi
maðurinn.
—Getið þér endurtekið það sem þér
höfðuð að segja? spurði framkvæmda
stjórinn.
Og Ted hóf aftur sölumennskuna á
sjálfum sér. Nú var komið að lokaat
riðinu.
— Mér skilst að kaupið sé 25 eða 26000.
Ég býst við að það sé 26000 fyrir mann
með mína reynslu.
—25000 sagði auglýsingastjórinn
slóttugur.
—Allt í ligi. Ég vil gera ykkur tilboð. Ég
tek vinnuna fyrir 24.500. Það er fimni
hundruð dölum minna en þið eruð fúsir
til að borga. En með þvi skilyrði að þér
gefið mér svar núna, á stundinni. Ekki á
morgun eða eftir viku. Eða eftir hátiðir.
Það er þessara fimm hundruð dala virði
fyrir mig að fá svarið strax. Ég býst við
að ég vinni þetta líka upp i
umboðslaunum.
—Þér eruð duglegur sölumaður.herra
Kramer.sagði auglýsingastjórinn.
—Þetta einstaka tilboð stendur aðeins i
dag. 24.500.
— Viljið þér hafa okkur afsakaða, sagði
auglýsingastjórinn og benti Ted að fafá*
fram.
Hjálpi mér. Ég hlýt að vera genginn
af göflunum. Hvað er ég að reyna að
gera? Ég hlýt að vera alveg örvinglaður.
Ég var alveg örvinglaður.
Ted var beðinn um að koma inn til
þeirra aftur. Auglýsingastjórinn leit enn
einu sinni yfir úrdráttinn hans.
—Við ætlum að athuga nokkur af
meðmælum yðar. sagði hann.
—Já. gerið það.
—Ég er viss um að þau standast öll
nánari athugun.
—Herra Kramer, sagði auglýsinga-
stjórinn. — Við bjóðum yður velkominn
í hópinn fyrir 24.500.
Mér tókst það! Góði Guð!
— Herrar minir. Min er ánægjan að fá
aðstarfa með ykkur.
Hann þaut niður götuna og að
byggingunni þar sem Karlmannatiskan
var til húsa. Horaði jólasveinninn stóð
þar enn þá og hringdi bjöllunni sinni.
Ted lét fimm dala seðil falla I boxið hjá
honum og þrýsti hönd hans svo fast að
jólasveinninn stundi undan handtakinu.
Það var ekki mikið að gera hjá
McCall’s yfir hátíðirnar oe það gerði
honunt auðveldara að venjast' nýja
starfinu sinu og umhverfi. Þetta var
gamalt og virt fyrirtæki og strax eftir
nýár var hann tekinn við fullri sölu.
Hann hafði fengið þessa nýju atvinnu
svo snemma að hann hafði ekki þurft að
snerta á því tveggja vikna kaupi sem
hann fékk í sárabætur á gamla staðnum.
Hann ætlaði að geyma það upp i
kostnaðinn við málaferlin. Hann hafði
ennekki heyrt neitt fráJóhönnu.
Kvöld eitt hringdi síminn um
tíuleytið.
—Herra Kramer, þetta er Ron Willis.
Ég er vinur Jóhönnu.
—Og hvað með það?
—Ég hélt ég gæti kannski hjálpað
eitthvað til við flækjuna á milli ykkar.
—Ég hef ekki fundið fyrir neinni flækju.
—Ég held ég geti skýrt ýmislegt fyrir
þér ef viðgætum hist.
—Ertu lögfræðingur Jóhönnu?
—Ég er að vísu lögfræðingur en ekki
lögfræðingur Jóhönnu.
— Hver ertu þá?
—Bara vinur hennar. En ég held að ég
geti forðað ykkur báðum frá nokkrum
óþægindum ef þú vildir hitta mig.
—Jæja. svo þú hringdir til að firra mig
óþægindum. Er þetta næsti leikur hjá
henni?
—Nei, þér er óhætt að trúa því.
—Hvers vegna skyldi ég trúa þér?
—Jóhanna bað mig ekki einu sinni um
að hringja.
—Og hún veit ekki einu sinni um það, er
það? '
—Jú.enþetta var min hugmynd.
Honum lék næstum þvi eins mikil for-
I
vitni á að hitta „vin” Jóhönnu og að fá
að vita hvað óvinurinn ætlaðist fyrir.
—Allt i lagi. herra Willis. Við getum
hist fyrir utan Martell á 83. götu og 3.
breiðgötu á föstudaginn klukkan átta.
Viðgetum talaðsaman yfir bjórglasi.
—Gott, herra Kramer.
—Já, þetta er allt saman stórágætt. er
þaðekki?
John Shaunessy hafði ekkert við það
að athuga að hann hitti þriðja aðilann
þar sem þeir fengju upplýsingar á þann
hátt en varaði hann við að drekka með
honum á bar. Það væri meira viðeigandi
að þeir fengju sér kaffi sarnan á ein-
hverju vinsælu kaffihúsi eða ættu
vingjarnlegar samræður fyrir framan
hús Teds. Aðalatriðið var að láta ekki
veiða sig í neina gildru — deilur, slags-
mál, hómósexúal framkomu, hann mátti
ekki lenda i neinu er gæti leitt til hand
töku. Hann baðst afsökunar á þessari
smámunasemi en vildi leggja áherslu á
að þvilik brögð væru ekki óalgeng og að
dómari mundi ekki lita slíkt mildum
augum.
Næsta morgun átti Ted bágt með að
trúa því sem Billy sagði við hann. Höfðu
börn slíka sálræna hæfileika? Hann
hafði gætt þess að ræða aldrei þessa
nýju stöðu málanna á meðan Billy var
vakandi. En á meðan þeir biðu eftir
grænu Ijósi á leiðinni I skólann sagði
Billyuppúrþurru:
—Hvenærfæég afturaðsjá mömmu?
—Ég veit þaðekki.
—Mig langarað hitta mömmu.
—Égveitaðþetta ererfitt. Billy.
Þeir gengu þegjandi áfram. Þegar þeir
komu til skólans leit drengurinn á föður
sinn. Hann hafði greinilega hugsað
málið.
—Erú Willewska er að nokkru leyti eins
og mamma. Hún er ekki alvöru
mamma mín, en hún er samt eins og
nokkurs konar mamma. Skilurðu hvað
ég á við?
—Já. Þú ert stórkostlegur krakki.
William Kramer.
Drengurinn gekk upp tröppurnar að
skólanum ánægður yfir að hafa róað
föðursinn.
Um kvöldið bað Billy um söguna um
kaninuna sem hljópst að heiman. Þetta
var myndasaga um litla kanínubarnið
sem vildi strjúka að heiman en
kaninumamma finnur það alltaf hvað
sem á gengur. Ted hafði falið þessa bók
eftir brottför Jóhönnu. Hann gat ekki af-
borið að lesa hana fyrir Billy. Hann
sagði að hún væri ekki til lengur og las i
staðinn um Babar gamla. Billy talaði við
sjálfan sig áður en hann fór að sofa.
þykjustu samræður milli mömmu og
drengsins hennar.
Ted gat ekki lengur varnað þvi að
drengurinn sem hann elskaði svo heitt
fengi að sjá móður sína, sem hann
langaði til að sjá. Hann hringdi til
Jóhönnu daginn eftir. Samtal þeirra var
jafnkuldalegt og um bláókunnugt fólk
væri að ræða. Hún gat fengið að hitta
Billy strax og hún vildi. farið út með
hann að borða eitthvert næsta kvöldið.
Ted ætlaði að tala um þetta við hús-
hjálpina. Þau ákváðu að Billy færi út að
borða með móður sinni daginn eftir
18 Vikan 27. tbl.