Vikan


Vikan - 15.08.1985, Blaðsíða 14

Vikan - 15.08.1985, Blaðsíða 14
kynnt aö varöhaldiö yrði fram- lengt um 90 daga ef ég játaöi ekki. Þaö endaði meö því að ég játaöi á mig sölu á 6—7 kílóum. Ég var dæmdur í tveggja ára fangelsisvist en ég áfrýjaöi sem betur fer og í allt var þetta mál sex og hálft ár að veltast í réttar- kerfinu. Þegar dóminum var loks- ins fullnægt var ég búinn að fara í meðferð og steinhættur aö drekka. En þetta er nú ekki einsdæmi á Islandi. Seinagangurinn er fyrir neðan allar hellur. Hæstiréttur lækkaði dóminn niöur í 18 mánuði og ég bað um aö fá að afplána dóminn á Kvíabryggju á Snæfells- nesi. Þá var eitt og hálft ár liðiö síðan ég hafði verið í afvötnun á Silungapolli og seinna farið á Staðarfell. Hringdi tvisvar í AA Það var erfið ákvörðun að fara í afvötnun. Ég var á tímabili í sam- búð sem gekk náttúrlega ekki því ég var til dæmis alltaf fullur þegar ég var í landi. Konan og fleiri reyndu að hafa áhrif á mig. Einu sinni þegar ég var alveg aur- þunnur var hringt á AA-mann sem sagði mér frá reynslu sinni. En fyrst hafði þetta engin áhrif á mig. Hann talaöi til dæmis um að hann hefði sprautað vodka inn í appel- sínur til að leyna drykkjunni. Þetta hafði ég aldrei gert og mér fannst þessi maður þá vera meiri alki en ég. Þetta er alltaf gamla sagan hjá okkur ölkunum; við viðurkennum aldrei okkar vanda- mál og erum ánægðari ef við finn- um einn sem er sokkinn dýpra en við sjálfir. En þessi appelsínualki sótti á mig löngu á eftir þannig að þetta hafði að lokum tilætluð áhrif. Ég var farinn að gera mér grein fyrir því að það var eitthvað að hjá mér. Ég gat ekki verið lengi í vinnu og gat til dæmis ekki verið á sjó nema reykja hass upp á hvem dag. Þaö var kominn mikill ör- væntingarbragur á sálarástand mitt svo ég hafði það á tilfinning- unni að ég væri að fara yfir um. Þetta endaði með því að ég hringdi á skrifstofu AA-sam- takanna í Tjamargötu. Mér var boðið að koma þangað. Þetta varð svolítill brandari út úr þessu öllu saman. Ég hringdi sem sagt í AA-samtökin en svo þegar ég sá húsið í Tjamargötunni hélt ég að ég væri að villast því ég haföi alltaf haldið að þetta væri rónabæli. Nú, ég fór í næsta síma- klefa og hringdi aftur og ég var aftur boðinn velkominn. Þá lét ég sjálfan mig vaða. Ég var boðinn velkominn í þriðja sinn og fór strax að sækja fundi. Ég fór síðan í afvötnun á Silungapolli þremur Þafl sakar ekki að brýna Ijáinn þó afl maður só hœttur i grasinu. með menn í vinnu út um alla Kaupmannahöfn, jafnvel 7—8 menn. Ég var orðinn eins konar heildsali og keypti kannski inn 5 kíló í einu. Ég sótti efnið sjálfur til Amsterdam og Rotterdam og sendi líka reglulega hingað heim til íslands, aðallega með frökt- urum. Það var auðveld leið. Ég seldi líka í Svíþjóð og þar var ég handtekinn með 300 grömm á mér árið 1976. Ég sat inni í þrjá mánuði, fyrst í einangrun í tvær vikur. Múrarnir hindruðu ekki fangana að dópa sig; þaö var meira að segja dílað mikið í fang- elsinu. Úr öskunni í eldinn Öll þessi ár fannst mér þetta vera töff, maður vildi láta lífið snúast um þetta og var í uppreisn gegn lögunum og samfélaginu al- mennt. Nú er ég eldri og reyndari og veit betur. En á meðan ég var að vasast í þessu var ég alltaf að leika mér í bófahasar. Maður varð líka að láta sér þetta vel líka; þetta var atvinnan og lifibrauðið. Ég var oröinn verulega háöur víni og stuði og ég fjármagnaði eigin neyslu með sölu. Þetta togaði hvað í annað og var í raun og veru algjör vítahringur. Þaö var búiö að vísa mér úr Svíþjóð og raunar frá Danmörku líka í fimm ár. Ég var sendur heim á kostnað ríkis- ins. Það var bannaö að afgreiöa mig um áfengi í flugvélinni. Þá vissi ég hvað klukkan sló. Islenska fíkniefnalögreglan tók á móti mér í Keflavík. Þaö hafði komist upp að ég hafði stundað hasssmygl svo ég fór þarna í raun og veru úr ösk- unni í eldinn. Þá sannaöist enn einu sinni seinagangurinn í ís- lenska dómskerfinu. Ég var fyrst settur í gæsluvarðhald í 34 daga. Ég neitaði öllu fyrstu þrjár vikumar. En þegar gæsluvarð- haldið var að renna út var mér til- 14 Víkan33. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.