Vikan - 15.08.1985, Side 45
Þýðandi: Anna
mín notaði þá í fyrrasumar til að
styðja tómatplöntur. Ég held að
þeir verði aldrei samir eftir það.
Við trítluðum allir á eftir
honum niður í billjarðkjallarann.
Kjuðarnir voru ekkert ónýtir.
Hansen vann fyrstu umferð og
Lassi næstu, enda voru þetta hans
græjur. Hann var líka í æfingu.
Við spiluðum í nokkra
klukkutíma. Lassi var einmitt
farinn aö sýna umtalsverð tilþrif
þegar Maríanna birtist í
dyrunum.
— Stattu þig, maður, sagði
Hansen, ef þú vogar þér. . . Hann
snarþagnaði þegar konan hans
birtist fyrir aftan Maríönnu.
— Hvað í ósköpunum eruð þið
að gera hér? sagði Maríanna.
Hagfræðingsfrúin, konan hans
Linda og konan hans Mortens
stóðu fyrir aftan hana. Þaö er
gróandi í loftinu og hérna eruð þið
. . . hvað meinið þið eiginíega
meðþessu?
— Ja, skilurðu, elskan, sagði ég,
og færði mig ósjálfrátt í hvarf
fyrir aftan breiða bakiö á Lassa,
málið er í stuttu máli sagt að ég
fann út að ég hefði lánað kantsker-
ann og svo fór ég til Hansen að
athuga um hann og. . .
Þaö tók okkur, fimm, sex
fílhrausta karlmenn, að minnsta
kosti klukkutíma að útskýra í
smáatriðum gang mála þennan
sunnudagsmorgun. Þegar ég kom
heim og ætlaði að fara að byrja á
garðvinnunni og njóta gróðurang-
anarinnar almennilega uppgötv-
aði ég að ég var ekki enn búinn aö
fá kantskerann minn. Ég var með
eitthvað allt annað í hendinni.
Það var snjóskafan hans
Hansens, svo ég leyni nú engu. Ég
hætti mér ekki út í að fara að skila
henni. En ef þú, Hansen minn,
skyldir nú lesa þessi orð, og ef þú
þarft á henni að halda í sumar —
til dæmis til að skafa innan úr
sundlauginni þinni — þá veistu
hvarhún er!
EÍ Stjörnuspá
Hrúturinn 21. mars-20. april
Það er í nógu að
snúast. Vertu samt
ekkert að vorkenna
þér. Það er
áreiðanlega hægt að
rekja þessi óþrjót-
andi verkefni til þín
sjálfs. Þetta gengur
vel.
Nautið 21. apríl -21. mai
Þaö er dálítil spenna
í þér vegna
ákvöröunar sem á aö
taka á næstu dögum
og skiptir þig miklu.
Það bendir margt til
þess að það dragist
aö niðurstaða fáist.
Tvíburarnir 22. mai 21. júni
Það liggur fremur
lítið eftir þig í vinn-
unni þessa dagana.
Þú hefur látiö tímann
fljúga hjá. Taktu þig
nú á og reyndu aö
vinna upp trassa-
skapinn.
Krabbinn 22. júní 23. júli
Slakaðu nú á. Reyndu
aö forðast fólk sem
fer í taugarnar á þér.
Farðu í gönguferðir
eða lestu góöa bók.
Vertu heldur ekkert
að skipta þér af
málum sem koma
þér ekkert við.
Ljónið 24. júli - 23. ágúst
Það verður mikið að
gera um miöja vik-
una. Þaö á við þig.
Sambandið við fjöl-
skylduna verður
ánægjulegt á þessum
tíma. Vertu á varð-
bergi gagnvart slef-
berum.
Meyjan 24. ágúst 23. sept.
Þetta verður
ánægjuleg vika og
þaö eru miklar líkur
til þess að þú farir í
ferðalag sem þú
minnist lengi. Þú um-
gengst kunningja
þína óvenjumikið og
er það vel.
Vogin 24. sept. - 23. okt.
Einkalífið er eitthvað
að angra þig um
þessar mundir.
Margt bendir til þess
aö þú takir hlutina of
alvarlega. Sem betur
fer eru raunir þínar
senn á enda. Þó tekur
ekki alveg fyrir
óþægindin.
Sporðdrekinn 24. okt. 23. nóv.
Þaö er verið að gera
grín aö þér enda ertu
búinn aö vinna fyrir
því meö framkomu
þinni undanfariö. Á
þriðjudag færðu
gamlan vin í heim-
sókn sem gleöur þig
með smágjöf.
Bogmaðurinn 24. nóv. 21. des.
Það er einhver að
reyna að leika á þig.
Samt er engin ástæða
til að hræöast og að
öllum líkindum
sleppur þú úr klóm
svikaranna. Líklega
kemuröu ekki auga á
þetta strax.
Steingeitin 22. des. 20. jan.
Taugarnar eru dálítið
slappar enda verður
margt til þess aö
reyna á þær um þess-
ar mundir. Þú
stendur þig meö
stakri prýði og
veröur reynslunni
ríkari. Þetta á jafnt
við í starfi og leik.
/
Vatnsberinn 21. |an. 19. febr.
Vertu ekki að freista
gæfunnar um of. Það
gæti reynst þér kostn-
aðarsamt að leggja
út í einhver glæfra-
fyrirtæki. Helgin
verður sérstæö.
Heillatala er sex.
Fiskarmr 20. febr. 20. mars
Öskir þínar rætast.
Næstu dagar ein-
kennast af ást og
sterkri tilfinninga-
legri útrás. Vikulokin
verða sérstaklega
skemmtileg. Happa-
litur er blár og heilla-
tala sjö.
33, tbl. Víkan 45