Vikan - 10.10.1985, Blaðsíða 14
flokki sendiráöa í Washington er
skrifstofuhúsnæði Sovétmanna.
Þeir fengu fyrir nokkrum árum
úthlutaö lóö undir gríöarmikla
skrifstofubyggingu á horni
Wisconsin Avenue og Tunlaw
Road. Þetta væri svo sem ekki í
frásögur færandi ef svo vildi ekki
til að lóðin, sem um ræöir, er
nákvæmlega þar sem Wisconsin
Avenue ber hvaö hæst. Þannig
hafa Sovétmenn feiknagott útsýni
yfir höfuðborgina. Þessu útsýni
fylgir svo vitaskuld sá kostur að
allur tæknibúnaður nýtist ótrúlega
vel. Sovétmenn hafa reist stórhýsi
á lóö sinni. Umhverfis lóöina er
svo rammgerð víggirðing sem
óneitanlega vekur athygli vegfar-
enda. Það vekur furðu að sendi-
menn ríkis, sem í ven.julegum
skilningi yrði talið óvinveitt, skuli
fá að hreiðra um sig svo sem hér
hefur gerst. Sérstaklega verður
málið athyglisvert þegar um er að
ræða Sovétmenn og borgin er
höfuðborg sjálfra Bandaríkja
Norður-Ameríku.
Bandaríkjamenn
í dalverpi
Mjög treglega gekk að afla upp-
lýsinga um hvernig það hefði bor-
ið að að Sovétmönnum var úthlut-
að lóð á þessum einstaka stað.
Viðmælendur blaðamanns í
bandaríska utanríkisráðuneytinu
vildu ófúsir ræða þetta. Einn upp-
lýsti þó að Bandaríkjamönnum
hefði um svipað leyti veriö úthlut-
að lóð í Moskvu. „Sú lóð var
reyndar í dalverpi samanborið við
lóöina á Visconsin,” sagði viömæl-
andinn.
Upplýsingar um fjölda sovéskra
starfsmanna í Washington lágu
heldur ekki á lausu, ekki vegna
þess að þær séu í eðli sínu leynileg-
ar heldur einfaldlega vegna þess
að starfsmenn utanríkisráðu-
neytisins eru mjög varkárir um
leið og minnst er á Sovétmenn.
750 Sovétmenn
Skorður voru settar við fjölda
sovéskra starfsmanna fyrir tæp-
um tíu árum. Þeir munu nú vera
um 300 talsins, bæði á vegum
sendiráösins og undir ýmsum öðr-
um titlum, svo sem verslunarfull-
trúar og þess háttar. Þessi tala
þýðir að ef fjölskyldur eru taldar
meö eru starfsmenn Sovét-
ríkjanna, búsettir í Washington,
um 750. Innan girðingarinnar við
Wisconsin er rekinn sérstakur
skóli fyrir börn þessa fólks og
Massachusetts númer 2419: Sendiráð Zambiu, í eina tíð hús frægs
rithöfundar.
Númer 1746 við Massachusetts: Kanadiska sendiráðið. Húsið var reist af
milljónamæringi eins og fleiri sendiráð.
ýmis önnur þjónusta á sovéskan
máta.
Byggingin á Wisconsin Avenue
hýsir ekki höfuðstöðvar sendi-
ráðsins. Þær eru eftir sem áður til
húsa í gömlu og viröulegu húsi á
16. stræti í nágrenni við Hvíta hús-
ið. Auk þess hafa Sovétmenn
þrengri aðsetur víðar um borgina.
Kínverjar beittu öðrum aðferð-
um en Sovétmenn. í stað þess að
byggja stórhýsi gerðu þeir sér lítiö
fyrir og festu kaup á heilu hóteli,
Windsor Park á Connecticut
Avenue númer 2300.
Lýðveldið Ísland
Og fyrst atburðarásin hefur
færst yfir á Connecticut Avenue er
rétt aö geta þess að þar er sendi-
ráð lýöveldisins íslands. Við núm-
er 2022 er mjóslegið hús á þremur
hæðum. Islenska skjaldarmerkið
blasir við á húsveggnum og lítið
skilti við innganginn getur þess að
þarna sé skrifstofuhúsnæði sendi-
ráðsins.
Innandyra eru þröngir og bratt-
ir stigar, íslensk dagblöö og lipurt
starfsfólk.
Annars er Connecticut ekki
aöalsendiráðagatan. Massachu-
setts Avenue er venjulega kölluð
Embassy Row (sendiráöagatan).
Þar er kanadíska sendiráðið núm-
er 1746, í húsi sem upphaflega var
reist af milljónamæringi eins og
fleiri hús sem nú hýsa sendiráð.
Ástralska sendiráðið er númer
1601 við sömu götu. Á því blasir
við útfærð mynd af skjaldarmerki
þjóðarinnar með myndum af
áströlskum dýrum. Sendiráð
Zambíu ber númerið 2419. Þar bjó
í eina tíð rithöfundurinn Mary
Roberts Rhinehart. Hún skrifaði
margar sögur sínar á meðan hún
bjó í húsinu, á árunum 1910 til 1938.
Ein þeirra ber nafnið Hringstig-
inn. Enginn slíkur stigi er hins
vegar í sendiráðinu eftir því sem
næst verður komist. Autt og yfir-
gefið húsnæði íranska sendiráðs-
ins er við Massachusetts Avenue
númer 3005. Á sínum tíma var það
þekkt af samkvæmishaldi og síðar
af mótmælum og óeiröum í ná-
grenni þess. Og af því aö það teng-
ist sendiráðum verður að segja
söguna af De Gaulle. Hann var þá
staddur á heimili franska sendi-
herrans í Washington. Hann leit út
um gluggann og lýsti þeirri skoð-
un sinni aö sér þætti sérlega við-
eigandi að Frakkar hefðu svo góö-
ar og víðáttumiklar lendur um-
hverfis bústaö sinn í Washington.
Enginn þorði að segja honum að
hann væri að horfa yfir Rock
Creek Park sem liggur þvert í
gegnum alla borgina.
14 Vikan 41. tbl