Vikan - 10.10.1985, Page 25
Eldhús Vikunnar
Smjörsteikt
grænmeti
Mörgum sem þykir hrátt grænmeti gott er meinilla við það
soðið. En það getur verið erfiðleikum bundið að bera fram mikið af
hráu grænmeti með mat (nema þá niðurrifið eða skorið í salati).
Hafið þið til dæmis prófað að stinga gaffli í hráa rófu?
En hvernig væri að fara milliveginn. Grænmetið er þá snögg-
soðið eða steikt. Við það verður það mýkra en þó enn stökkt undir
tönn og ferskt á bragðið.
Hvítkál, blómkál, gulrætur, rófur, sveppir,
3 msk. smjör, salt.
Takið eitthvað af þessu grænmeti eða allt og skerið í fremur
þunnarsneiðar.
Bræðið smjörið á pönnu, stillið á miðlungshita. Bregðið græn-
metinu á pönnuna og látið stikna í um 3—5 mínútur. Snúið oft
með spaða. Bragðið til að kanna hve stökkt grænmetið á að vera
aðykkarsmekk. Saltið dálítið.
Rækjusúpa með karríi
Þetta er afskaplega fljótlagaður réttur en þó herra-
mannsmatur og hentar sem forréttur í matarboði, aðal-
réttur þegar ætlunin er að þorða eitthvað fljótlegt og
gott, að ekki sé minnst á hvað þetta er góður nátt-
verður í góðra vina hópi.
Fyrir3—4:
3 msk. smjör eða smjörvi
3 msk. hveiti
1 msk. karrí
1 iítri vatn
2 dl rjómi (eða mjólk, sem þó gerir ekki sama gagn)
2 fisksúputeningar (eða kjúklingateningar)
1—2 msk. sérrí (má sleppa)
rækjur eftir smekk og efnum, þó varla minna en 1 bolli og
meira en 3 bollar
1 msk. estragon (þurrkuð, græn kryddjurt eða annað grænt,
svo sem steinselja)
Takið fram góðan, þykkbotna súpupott. Bræðið smjörið og
stráið karríinu yfir. Gætið þess að minnka hitann svo ekkert brenni
nú við. Stráið hveitinu yfir og hrærið saman við. Hækkið hitann
aftur á mestan straum. Hellið vatninu í pottinn og þeytið af öllum
kröftum með sósuþeytara svo blandan verði kekkjalaus. Hellið
rjómanum út í. Bætið súputeningunum í pottinn og látið þá leys-
ast upp. Setjið síðan rækjurnar út í (ef þið hafið lítinn tíma er í lagi
að segja þær frosnar út í). Setjið að síðustu sérríið saman við og
stráið kryddjurtunum yfir. Látið þetta malla í svona fimm mínútur.
Ágætt meðlæti eru brauðsneiðar sem rifnum osti hefur verið
hrúgað á og stungið undir grill eða í heitan ofn þar til osturinn er
orðinn gulbrúnn.
Til þess að setja punktinn yfir i-ið er mjög gott að setja vænan
topp af hálfþeyttum rjóma út á súpuna og/eða rifinn ost.
41. tbt. Vikan 25