Vikan - 16.11.1939, Side 19
Nr. 46, 1939
VIKAN
19
Shirley litla
er einhver vinsælasta kvik-
myndaleikkonan, þó að hún
sé ekki nema tíu ára gömul.
Shirley Temple lék í fyrsta skipti, þeg-ar hún var
þriggja ára gömul, og síðan hafa vinsældir
hennar aukizt. Ef nefndar væru peningaupphæðir
þær, sem hún hefir unnið sér inn, væri sagt, að
það væri ósatt. Faðir hennar hefir lagt þessa
peninga fyrir, og þegar Shirley verður tvítug, fær
hún nokkra dollara, þegar hún verður fertug aðra
og þriðja hlutinn, þegar hún verður fimmtug.
Shirley gengur í skóla alveg eins og önnur
böm, en kennaramir koma heim til hennar. —
Shirley fer á fætur kjukkan 7 á hverjum morgni.
Þegar hún hefir borðað morgunverð, leikur hún
við hestinn sinn eða hvolpana sína, og því næst
situr hún á skólabekk í þrjár klukkustundir. Sið-
ari hluta dagana vinnur hún hjá kvikmyndafé-
laginu.
Henni hefir tekizt bezt í kvikmyndinni „Litla
prinsessan", sem er litmynd og fjallar í stuttu
máli um litla, ríka stúlku, sem er á finum skóla,
þar sem allt gengur vel, þar til fréttist, að faðir
hennar hafi dáið sem fátækur maður í Búastríð-
inu.
Nú snýst allt við. En litla stúlkan trúir því
ekki, að faðir stnn sé dáinn og leitar hans á
öllum sjúkrahúsum. Að lokum nær hún tali af
Viktoríu drottningu, og með hjálp hennar finn-
ur hún föður sinn, sem hefir misst minnið, en
fær það þegar hann sér dóttur sína.
Shirley hefir aldrei verið máluð í neinni kvik-
mynd. Síðustu fimm árin hefir hún hvorki leikið
meira né minna en í átján kvikmyndum fyrir fé-
lagið Twentieth Century-Fox. Shirley er alls stað-
ar vinsæl. Hún fær bréf frá 2000 aðdáendum á
dag. Móðir hennar fer með henni yfir hlutverk
hennar á kvöldin. Enn hefir aldrei komið fyrir, að
hún hafi ekki kunnað hlutverk sitt, og allar kvik-
myndir, sem hún hefir leikið í, hafa verið tilbún-
ar nokkrum dögum áður en búizt var við.
Shirley Temple og Viktoría drottning. — í „Litlu prinsessunni" leikur Shirley litla stúlku, sem trú-
ir því ekki, að faðir hennar hafi fallið í Búastríðinu. Viktoría drottning hjálpar henni að finna hann.
Herinn í „Litlu prinsessunm“ er enskur. Kvikmyndin er gerð eftir sögu Frances Hodyson Bumett, sem ber sama nafn og gerist í Búastríðinu 1899—1902