Vikan


Vikan - 15.08.1940, Page 5

Vikan - 15.08.1940, Page 5
VIKAN, nr. 33, 1940 5 kostaði offjár — London að almennu athlœgi, „Snarken" og gerði Jack en þó að hann væri vægast sagt lífshættulegur að sigla á, fór Jack í ævintýralega ferð á hon- um til Suðurhafseyja — og skemmti sér prýðilega. Kjölurinn að ,,Snarken“ var ekki lagð- ur fyrr en í júní 1906, og um það leyti var Jack langt kominn með skáldsögu, sem hann kallaði ,,Járnhælinn“ og fjallaði um jafnaðarstefnuna. Það var framtíðardraumur, sem ske átti sjö hundr- uð ár frammi í tímanum. Anatole France, sem hafði kallað Jack ,,Karl Marx Ame- ríku“, skrifaði formála fyrir henni. Jack var það alveg ljóst, að Macmillan mundu ef til vill neita að gefa ,,Járnhælinn“ út, að ekkert tímarit mundi vilja prenta hann, og vel gæti svo farið, að hann gæti skaðað söluna á öðrum bókum hans, jafnframt því að „Snarken“ grynnkaði mjög á bankainneign hans. Hann hafði pantað dýrustu þilfarsborð, sem hann gat fengið, frá Washington; hann hafði látið byggja fjögur vatnsþétt hólf, svo að ,,Snarken“ gæti ekki sokkið, hvað mikill leki sem kæmi að hon- um; hann hafði pantað dýran sjö- tíu hestafla mótor frá New York; hann hafði útvegað sér fyrirmynd- ar akkerisvindu, sem hægt var að setja í samband við mótorinn. Hann útbjó sér baðherbergi með alls konar tilfæringum, ventlum, vogastöngum og dælum til að dæla inn sjó. Hann keypti sér lítinn ára- bát og lítinn, hraðskreiðan vélbát. Stefnið í „Snarken“ kostaði vænan skilding, en engin alda gat skollið yfir það, og honum fannst það vera fallegasta stefni, sem hann hafði nokkurn tíma séð. Áður en komið var fram í miðjan júní uppgötvaði hann, að hann hafði lagt 10.000 dollara í „Snarken", og að hann var ekki hálfbúinn enn. Þessir 10.000 doll- arar voru aleiga hans; því að hann varð að sjá fyrir Flóru og fósturbarni hennar, Jenny gömlu, Bessie og tveim dætrum hennar, Roscoe Eames og að sumu leyti Ninettu Eames, Charmian og Ed- ward Payne. Auk þess hafði hann ráðsmann og marga vinnumenn á Hills Ranch, sem plægðu og plönt- uðu, keyptu verkfæri og efnivið. Ritstjórarnir, sem hann hafði skrifað eftirvæntingarfullur í febrúarmánuði, neit- uðu beiðni hans um fyrirframgreiðslu á greinunum, sem hann ætlaði að skrifa um ferðina. Hvernig Jack tókst að útvega peninga til að sjá fyrir ættingjum sínum og starfsfólki og til þess að borga þeim mönnum laun, sem unnu við „Snarken“, var ráðgáta, sem allir töluðu um. En hon- um tókst það, án þess að þurfa að hætta við nokkuð af því, sem hann hafði á prjón- unum. Hverja stund dagsins skrifaði hann smásögur, greinar og ritgerðir — allt sem hann gat grætt peninga á. Fyrsta október — daginn, sem hann hafði ákveðið að leggja af stað í ferðina — var búið að leggja 15.000 dollara í „Snar- ken“, og enn var hann ekki nema hálfbú- inn. Ef hann ætlaði að halda áfram með bátinn, varð hann að taka lán út á húsið, sem hann hafði keypt handa móður sinni. Jafnframt varð honum Ijóst, að honum hafði skjátlast mjög í að ráða Roscoe Eames til sín. Eames var þrætugjarn og duglítill. Hann var reikull í ráði og borg- aði oft mismunandi verð fyrir sams konar efni, keypti sitt af hverju, sem hann hafði engin not fyrir og borgaði oft og tíðum, án þess að skeyta um, hvort vörurnar, sem hann pantaði, væru afhentar eða ekki. Það bætti ekki úr skák, að „Cosmo- politan Magazine“, sem lagt hafði 1000 dollara í fyrirtækið, birti nú stórar aug- lýsingar, sem kunngerðu, að það væri þeir, sem ætluðu að senda Jack London í ferða- lag umhverfis jörðina á „Snarken“. „Alls staðar gera menn sér að skyldu að græða á mér, af því að þeir halda, að það sé ekki ég sjálfur, sem kosta ferðina heldur fjár- sterkt tímarit." Því var lofað, að „Snarken“ skyldi vera ferðbúinn fyrsta nóvember, svo fimmt- ánda nóvember og loks fyrsta desember. I vandræðum sínum flutti Jack til Oakland, sendi Ros- coe Eames heim til að læra sigl- ingafræði og tók sjálfur við eftir- litinu með byggingu bátsins. Hann réði fjórtán menn, borgaði þeim há laun og lofaði þeim að auki ein- um dollar á dag, ef þeir yrðu dug- legir. Til þess að geta staðið straum af öllu þessu, varð hann að taka lán út á Hills Ranch. Þrátt fyrir alla þessa peninga, sem hann lagði fram, kom það í ljós fímmtánda desember, að „Snar- ken“ var jafnlangt frá að vera til- búinn og fyrsta október. Blöðin fóru að birta háðvísur um seinlæti Jacks London. „The Womans Home Companion", sem var móðgað yfir því, að „Cosmo- politan" fékk fyrstu greinina um „Snarken“, kvartaði yfir því, að hann skyldi ekki komast af stað og heimtaði grein um íbúa Kyrra- hafseyjanna á meðan Jack var enn í San Francisco. Og vinir hans veðjuðu um, hvenær hann mundi komast af stað. Ferð „Snarkens“ var aðalum- ræðuefnið manna á milli í Ame- ríku, og Jack fékk bréf í þúsunda- tali frá mönnum og konum, sem sárbáðu hann um að lofa sér að koma með. Níutíu og fimm af hverjum hundrað voru fúsir til að gera hvað sem væri og níutíu og níu voru fúsir til að vinna fyrir ekki neitt. „Það voru fjöldi af læknum, skurðlæknum og tanm Jack London var hreykinn eins og bam yfir stefninu á „Snarken". Hann eyddi offjár í aS gera það eins fullkomið og hægt var, en það urðu allt tóm svik, því að það stakk sér í báruna í staðinn fyrir að lyfta sér á henni.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.