Vikan


Vikan - 15.08.1940, Side 7

Vikan - 15.08.1940, Side 7
VIKAN, nr. 33, 1940 7 Við þvottakarið. Fiskþvotturinn hjá H.f. Hengli var í fullum gangi. Saltfiskveiðarnar höfðu gengið sérlega vel, togaramir fylltu sig á örstuttum tíma og miklar annir hjá öllum starfsmönnum félagsins. Bílamir komu hver af öðrum, fullfermdir saltblaut- um rígaþorski. Það var líf í tuskunum og fljót handtök margra manna og kvenna. Hvergi var þó hamast eins og í þvotta- húsinu. Inni í því vom fimm kör og sex konur við hvert þeirra, þrjár hvoru megin. Og þar var ekki legið á liði sínu. Fiskur- inn var þveginn í ákvæðisvinnu og hver bar úr býtum eftir því, sem þrek og flýtir leyfðu. En afköstin voru misjöfn hjá kon- unum, eins og við alla aðra vinnu. Sumar litu aldrei upp, nema rétt á meðan þær drukku kaffið, aðrar gáfu sér alltaf tíma til þess að tala og rífast út af hvaða smá- munum sem var. Þrjár voru hagmæltar og höfðu gaman af að kasta fram ferskeytl- um, sem þær ortu við karið. Fiskinum var ekið til þeirra í járnbör- um og látinn í hrúgu hjá hverri konu. Þær tóku síðan tuttugu þrjátíu fiska og settu á fjöl, sem lá yfir karið, og skáru oftast um leið blóðið úr hnakkanum. Svo var fiskur tekinn, dregin af honum himnan, burstanum skellt í vatnið og þvegið með snörum handtökum og að því loknu fleygt í körfu. Og þetta gekk allan daginn frá sex á morgnana til sex á kvöldin. Kæmi það fyrir, að konurnar vantaði fisk, þá var hrópað fullum hálsi: — Fisk! . . . fisk! . . . mig vantar fisk! Og þætti það dragast um of, að maðurinn, sem að þeim ók, léti þær hafa fisk, þá átti sá ná- ungi ekki upp á pallborðið. En svo var líka annað, sem gat gert þeim gramt í geði. Það átti sér stað, að sá, sem ók þvegna fiskinum frá þeim, rak í þær fisk aftur og sagði hann illa þveginn. Og þeirri athöfn tóku þær mjög misjafnlega. Sumar sögðu ekki neitt, létu bjóða sér þetta þegj- andi, eins og til dæmis Þóra. Aðrar urðu hamslausar af reiði og tóku slíkum send- ingum með orðgnótt mikilli. Meðal þeirra var Anna. Enda fór það svo, að fiskur var sjaldan rekinn aftur í þær, sem kunnu að svara fyrir sig. 1 þessu efni var, eins og víðar, lagst á lítilmagnann og þá, sem ekki báru hönd fyrir höfuð sér. Það bar margt á góma í þessu þvotta- húsi, þótt unnið væri af kappi. Stundum flugu hnútur um körin og þá ekki alltaf kastað þyrmilega, því að þessum hraða í vinnubrögðum virtist ekki fylgja nein tungumýkt. Þar fauk mörg setningin óþvegin, að því leyti gjörólík þorskinum, er konurnar voru búnar að handfjatla hann. En hér áttu ekki allar óskorað mál frek- ar en í vinnuafköstunum. Sumar sögðu fátt og aldrei neitt, sem særði aðra. I þeirra hópi var Þóra. Hún var iðin, en sein. Það var sama, hve mikið hún reyndi' að flýta sér, hún kom aldrei miklu af. Og virðing og álit í þessum mikla þvottasal fór yfirleitt eftir því, hve dugnaðurinn var mikill. Hinu megin við karið stóð Anna. Hún var fljótust þeirra allra, sannkallað- ur vinnuforkur. Það var eins og hún þreyttist aldrei og virtust ekki afköstin minnst, þegar hún talaði mest. Annars var hún þögulli í seinni tíð en áður. Hún sagði stundum ekki eitt orð tímunum saman. Allt í einu gat hún svo gripið inn í um- ■•ll111111*11"1111111,1111111111111111111 l,,l,llll,lllllll,all,lll"lial> 't, 1 S M A S A G A [ eftir I JÓN H. GUÐMUNDSSON. | ræðumar með gázka og hálfkæringi og hlífði þá fáum —nema Þóru. Þær höfðu verið mikið saman utan vinn- unnar, Anna og Þóra, þangað til fyrir nokkmm vikum. Og Anna hafði alltaf haldið hlífiskildi yfir vinkonu sinni, fram að þeim tíma. Nú lét hún hana algerlega afskiptalausa og þær sáust aldrei saman, nema við karið. Þær yrtu ekki hvor á aðra, en sýndu heldur ekki hvor annarri neinn f jandskap. Það var bara eins og þær hefðu aldrei þekkzt og vildu ekki þekkjast. Sam- verkafólkið tók eftir þessu, en vissi ekki, hvernig í því lá, var undrandi yfir því, gizkaði fyrst í stað á hitt og þetta, en hætti að tala um það, er sennileg skýring fékkst á málinu. Það var sem sé ofur eðhlegt, að þær hættu að vera saman, af því að Þóra var nýlega opinberlega trúlofuð og auðvitað var hún öllum stundum með unn- ustanum. Og þá var von, að sambandið slitnaði milli þeirra vinstúlknanna. — En þær hefðu þó getað haldið áfram að tala saman í vinnunni, ekki er kærastinn þá á milli þeirra, sagði ein konan, og fles vm fannst þetta í rauninni rétt. — Vináttan helzt ekki lengi í þessum fólksf jölda, bætti önnur við. Sú kona var af Hornströndum. Anna og Þóra þekktu einar þessarra kvenna orsakir fálætisins. Þær söknuðu báðar samvistanna, en hvor á sinn hátt. Þær höfðu verið næstum óaðskiljanlegar í rúm þrjú ár. Þóra var tuttugu og fjögra ára, hin tuttugu og fimm. Þóru var enn hlýtt til Önnu, jafnvel hlýrra en nokkurri sinni áður. Og hún gat í rauninni aldrei skilið, að svona þyrfti að fara á milli þeirra. Þessu var öðru vísi farið með Önnu. Henni fannst stundum hún hata Þóru, fyrirlíta hana meira en nokkura aðra manneskju, sem hún hafði kynnzt á lífs- leiðinni. Hún hafði jafnvel verið að hugsa um að hætta fiskþvottinum, til þess að þurfa ekki að horfa framan í fyrrverandi vinkonu sína. En aðra stundina fannst henni samt, að Þóra gæti ekkert við þessu gert. Og þá greip það hana að sættast. En þetta var miklu sjaldnar. Anna og Þóra höfðu ekki verið einar saman utan vinnunnar. Þau voru oftast fjögur í hóp: Bróðir Önnu og Þorvaldur, félagi hans, og þær. Þau fóru saman í kvikmyndahús, á dansleiki, í ferðalög á sumrin og voru heima hvert hjá öðru, þangað til slitnaði upp úr öllu. Anna hafði reiknað þetta allt skakkt út. Og fyrir það var hún líka reið sjálfri sér. Hún ætlaði Þóru bróður sinn, en Þorvald- ur átti að verða hennar og við því hafði hún búizt fram á síðustu stundu. Þess vegna urðu vonbrigðin svo sár. Sökin var auðvitað mest hjá Þorvaldi. Hvers vegna kyssti hann hana svona oft, þegar hin vissu ekki um og lét blíðlega við hana? Reyndar tjáði hann henni aldrei ást sína í orðum, en hún hafði haldið, að þetta væri aðeins byrjunin og ekki flogið í hug, að hann væri á sama hátt með Þóru. Heppin var hún að hleypa honum ekki of langt. Nógu slæmt var þetta samt. Hún hugsaði um þetta aftur og aftur og stundum greip það hana heljartökum við karið og aldrei hamaðist hún meira en þá — og þagði. Átti hún að reyna að gleyma þessu með Jónbirni? Hann sóttist mikið eftir að vera með henni, og dekraði við hana í vinnunni, eins og honum var unnt. Hann ók frá þeim þvegna fiskinum. Aldrei rak hann nokk- urn fisk í hana aftur. Hann var alltaf að gefa henni eitthvert sælgæti og bjóða henni hitt og þetta. En þótt hann væri myndarlegur og frekar fríður, geðjaðist henni ekki fullkostar að honum. Það var eitthvað í svipnum, sem hún kunni ekki við. Og undirlægjuháttur hans við verk- stjórann fór ákaflega í taugamar á henni. Hvers vegna gat hann líka aldrei látið Þóm í friði ? Hann var að gera henni vinn- una alveg óþolandi, þótt hún hefði ekkert gert honum. Og þetta var alltaf að auk- ast, hafði varla komið fyrir meðan þær voru vinkonur. Allan daginn, hvenær sem hann gat komið því við, var hann að hrella hana: reka í hana fisk, skamma hana og skensa hana fyrir hroðvirkni og hæðast að því, hve sein hún væri. Persónulegur skætingur hans í garð þessarar stúlku var orðinn svo tíður og mikill, að samverka- konurnar vom sumar farnar að taka mál- stað hennar, því að aldrei svaraði Þóra fyrir sig. Skyldi Jónbjörn halda, að henni væri þægð í þessu, af því að grunnt væri orðið á því góða milli þeirra vinkvenn- anna? Þennan morgun hafði þó alveg keyrt úr hófi framkoma hans við Þóru. Anna sá ekki betur en að hún ætlaði einu sinni að fara að gráta og eftir eina skammakvið- •’una frá honum brá hún sér fram. Skömmu seinna kom hann að taka fisk Framh. á bls. 15.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.