Vikan


Vikan - 15.08.1940, Side 12

Vikan - 15.08.1940, Side 12
12 VIKAN, nr. 33, 1940 klukkutíma sátu þeir grafkyrrir á kletta- snösinni, stungu hausunum aftur undan vængjunum og fylgdu hverri hreyfingu okkar með svörtu, kringlóttu augunum. Þeir voru orðnir stálpaðir, eftir eina viku yrðu þeir sennilega fleygir. Þegar við vorum búnir að taka myndir af þeim eins og okkur lysti, færðum við okkur til á klettabrúninni, og komum þá auga á móður, sem var að mata unga. Hún sat á um tveggja metra breiðri klettasnös, tíu metra fyrir neðan okkur — það var hreiðrlö. Engir kvistir eða fjaðrir mörk- uðu staðinn, þar sem eggin höfðu legið. Gammarnir í Magaliesfjöllunum búa ekki til nein hreiður, þeir verpa aðeins á berar klappirnar. Mötunin var allt annað en geðsleg, en fyrir okkur, sem vorum komnir alla leið frá Johannesburg, til þess að taka myndir af hfnaðarháttum þessarra fugla, var þetta einstakt tækifæri. Með ógurlegum krampakippum ældi móðir upp matnum og gaf unganum. Á næsta augnabliki barst röm fýla til okkar, og mjög á móti vilja okkar urðum við að hörfa undan og hætta við allar frekari rannsóknir á heimilis- i'iögum gammamóðurinnar. Áður en við lögðum af stað í þessa ferð, hafði náttúrugripasafnið í Prætoría beðið okkur að útvega sér nokkra gamma úr Magaliesfjöllunum. Bóndinn, sem átti land að klettabeltunum, leyfði okkur að drepa nokkra fullvaxna fugla, en heimtaði, að við annað hvort næðum ungunum eða dræpum þá, svo að þeir dræpust ekki úr sulti. En ég vildi komast hjá að drepa ung- ana, og hafði því tekið vænan kjötbita, til að láta í hreiðrið, ef okkur tækist að skjóta foreldrana. Og af því að ungarnir voru t>eir sátu grafkyrrir í þverhnýptum hömrunum og tinnusvört augun fylgdu hverri hreyfingu okkar. 1 tvo tíma klifruðum við upp eftir hamraveggnum, og félagi minn, sem ekki lét sér allt fyrir brjósti brenna, náði mörgum góðum myndum. næstum fleygir, mundi það hjálpa þeim yfir örðugasta hjallann. ____________________ Við skriðum aft- ur fram á kletta- snösina og biðum eftir að komast í skotfæri. Góð stund leið og mér hefir sennilega runnið í brjóst, því að allt í einu hrökk ég upp við ógurlega mikinn vængjaþyt og rétt í því kvað við skot. Ég var glaðvakn- aður áður en ég heyrði fuglinn falla þungt til jarðar. En skyndilega komst allt í uppnám. Það var eins og hver klöpp og hver gjóta yrðu lifandi. Alls staðar þustu gamm amir upp, jafnvel þar, sem við áttum sízt von á, ekki einn, ekki tveir, heldur í tugatali. Þeir steyptu sér á ská niður með eld- ingarhraða, og þeg- ar þeir komu niður undir jörðu, snéru þeir upp í vindinn og svifu burt á renniflugi eins og stórt líkan af svifflugvél. Okkur tókst þó að leggja tvo fugla að velli og með það fómm við heim í leirkofann með stráþakinu, sem var aðalbækistöð okkar þarna við fjöllin. Á hverjum degi í heila viku klifmðum við um kletta og gjótur og myndasafn okkar óx ört. Á kvöldin unnum við úr þeim athugunum, sem við höfðum gert um daginn. Fjórða kvöldið, sem við vomm þarna, gat ég ekki sofnað fyrir vælinu í sjakölunum, og af því að ég vissi, að þeir em þjófóttir, fór ég út til þess að líta eftir matarforðanum okkar. Ég gekk á hljóðið, en sjakalamir em skynsöm dýr og vælið f jarlægðist því lengra sem ég gekk. Allt í einu heyrði ég grein bresta. Ég lyfti riffl- inum. Það gat verið hlébarði eða eitthvert annað óargadýr — en á næsta augnabliki sá ég tunglsgeisla falla á mann, sem lædd- ist á milli trjánna. Það var Musutu-negri. Ég veitti honum eftirför. Mig grunaði, að hann hefði eitthvað illt í hyggju. Hann var ekki á dýraveiðum, því að hann hafði eng- in vopn með sér. Hann nam staðar spöl- korn frá kofanum, eins og hann væri í vafa um, hvað hann ætti að gera. Ég var að því kominn að kalla á hann, til að spyrja hann, hvað þessi undarlega hegðun ætti að Framhald á bls. 15.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.