Vikan


Vikan - 14.11.1940, Page 1

Vikan - 14.11.1940, Page 1
Nr. 46, 14. nóvember 1940 Menn verða ekki ríkir af að grafa eftir demöntum. Voein um að finna einhverntíma „steininn“, sem geri þá ríka, gefur demantsgrafaranum kjark til að halda áfram, þó að stríð og óhagstætt verðlag hafi að mestu gert þá von þeirra að engu. Hugsið þér nokkurn tíma út í það, hve æfintýralegur þróunarferill demants- ins, sem þér dáist að í glugga gim- steinasalans, hefir verið. Ef til vill hefir hann fundist í einni demantsnámu Suður- Afríku. I upphafi vega var hann lifandi gróður á yfirborði jarðar, sem síðan breyttist i kol. í ofurhita þeim, sem ríkir í iðrum jarðar, breyttust þessi kol í demant, sem svo fyrir tilstilli einhvers óþekkts kraftar hefir aftur borist upp á yfirborð jarðar milljónum ára seinna. í þann mund hafði jörðin þar tekið miklum stakkaskiptum, yfirborðið var alþakið ís. Skriðjöklarnir hafa hrúgað saman grjót- urðum — og í þessum grjóturðum eru demantarnir. Þegar jöklarnir breyttust í ár og fljót, sukku demantarnir til botns, því að þeir eru þyngri en flestar aðrar steintegundir, og ofan á þá hlóðst leir og sandur. En liðu nokkrar milljónir ára, og svo kom maðurinn og fann demantana. Maðurinn lærði fljótt að meta geislandi fegurð þeirra, og af því að þeir voru sjald- gæfir, urðu þeir dýrir. Að ferðast til Suður-Afríku án þess að skoða demantsnámurnar, er sama og að koma til Rómaborgar án þess að skoða Vatikanið. Ég setti því Ford-bílinn minn Framhald á bls. 5. Demantgrafararnir nota venjulega innfædda menn við gröftinn. Sjálfur aögreinir hann mölina. Hann er sjaldan svo heppinn, að finna nokkuö við fyrstu leit. Steinarnir finnast oftast ekki fyrr en aðgreiningin er komin lengra á leið, og þeir eru sjaldan svo stórir, að þeir gefi mikið í aðra hönd.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.