Vikan


Vikan - 14.11.1940, Blaðsíða 13

Vikan - 14.11.1940, Blaðsíða 13
VIKAN, nr. 46, 1940 13 Sýnin Kaxl var einn af þessum ungu mönn- um, sem hafa megnustu óbeit á hjónaböndum með sínum ströngu ófrelsisfjötrum, eins og hann orðaði það. En þrátt fyrir það hafði hann síður en svo á móti kvenfólkinu. Nei, hann gat svo að segja ekki kvenmannslaus verið, enda var hann talinn mesti kvennabósi. Hún hét Sigríður og var saumakona að atvinnu. Fyrir nokkrum árum var hún trú- lofuð og eignaðist þá dóttur. En það fór allt út um þúfur, vegna þess að klæðsker- inn, sem var henni hjálplegur við að eign- ast dótturina, kvæntist dóttur útgerðar- manns og gerðist síðan útgerðarmaður sjálfur. Þetta var í annað skiptið, sem þau sáust, Karl og Sigriður, og það var í kvöldboði hjá Elíasi lækni. En þessi kvöldboð hans voru í því fólgin að drukkið var kampavín og viskí og sódi fyrir þá, sem þess óskuðu. Svo var að sjálfsögðu sungið og dansað með tilheyrandi skemmtiatriðum, allt eftir því sem hugur boðsgestanna stóð til. Samsætið var í algleymingi. Kampavínið hafði gert ungu stúlkurnar svo hláturmild- ar, að þær þurftu ekki annað en að reka olnbogann í borð eða stþl til þess að geta velzt um af hlátri lengi á eftir. Og brosið hvarf aldrei af þriflega andlitinu hans Elíasar læknis. Viskísjússarnir höfðu gert hann voteygðan. Hann sat með magabeltis- vindil í annarri hendinni og lét móðan mása um hin furðulegustu ævintýri, sem hann hafði ratað í, þegar hann var í Þýzkalandi. Auðvitað var meira og minna af því hauga- lýgi. En hvað gerði það til? Það var ekki hætt við að það rækist hingað nokkur, sem gæti sannað það. Verst að honum entist ekki tími til þess að segja frá svo miklu sem helmingnum af því, sem hann þurfti að segja. Karl sat á legubekk og hafði lagt annan handlegginn um herðar Sigríðar. Merkilegt, hvað svona yndisleg stúlka eins og hún Sigríður gat haft stórar og ljótar hendur, hugsaði hann, um leið og hann virti fyrir sér blómlegan vanga henn- ar. Og þessar rósrauðu og vellöguðu varir. Þetta voru áreiðanlega þær girnilegustu varir, sem hann hafði nokkru sinni séð. Og hann fann til hliðstæðrar ánægjukennd- ar og svangur sveitadrengur, sem veit að það á fyrir sér að liggja að fá góðan mat að borða. Þetta var allra elskulegasti kven- maður, bara að hún væri ekki svona þung- lyndisleg á svipinn. Skyldi hún hafa svik- izt um að dreypa á kampavíninu? — Af hverju ertu svona ,,tragisk“ á svipinn, Sigríður? spurði hann. Þú lítur út eins og þú værir í mjög alvarlegum hug- leiðingum. — Ég veit það ekki, svaraði hún bros- andi og leit á hann. Og þó veit ég það, bætti hún við eftir nokkur augnablik. — Smásaga eftir Friðjón Stefánsson. Ég var að hugsa um litlu telpuna mína. — Það hefði verið hægt að velja sér heppilegri stund til þess, hugsaði Karl, en sagði upphátt: — Það er þó áreiðanlega ekki ástæða til þess að verða alvörugefin. Dóttur þinni líður auðvitað ágætlega hjá foreldrum þín- um þarna á Norðurlandi, eða er það ekki þar, sem þau eiga heima? Nú leit Sigríður beint í augu hans um leið og hún sagði: — Mig langar til þess að segja þér nokk- uð og vita, hvort þú trúir því. Ég veit að fólk, sem ég hefi sagt það, trúir mér ekki, enda þótt það láti mig beinlínis ekki heyra það. Nú langar mig sérstaklega til þess að vita, hvort þú munir trúa mér. En ég ætla að biðja þig að svara mér aðeins hreinskilnislega á eftir. En þú verður að- eins að hafa dálitla þolinmæði á meðan ég skýri þér frá öllum málavöxtum viðvíkj- andi því, sem ég ætla að spyrja þig um. — Sjálfsagt, en þú mátt bara ekki vera mjög langorð, því mig langar til þess að fara að dansa, en „nota bene“ aðeins við Þig- Sigríður kinkaði kolli og hóf máls: — Eins og þú veizt, var ég einu sinni trúlofuð og eignaðist þá telpuna mína. Þú veizt líka, að svo slitnaði upp úr trúlofun- inni. Ég hélt áfram við atvinnu mína og hafði dóttir mína hjá mér í hér um bil f jögur ár samfleytt. Hún er eitthvert það elskulegasta barn, sem til er á jarðríki. Ég segi þetta ekki af því að hún er dóttir mín eða af því að ég er móðir hennar. Nei, mér myndi áreiðanlega finnast það sama, þó að ég ætti ekkert í henni. Ég veit, að þú skil- ur ekki, hve f jarskalega mér þykir vænt um hana. En sleppum því í bih. Foreldrar mínir, sem eiga heima á Norðurlandi höfðu hvað eftir annað skrifað mér og beðið mig að heimsækja sig með litlu dóttur mína. Ég er nú eina barnið þeirra, svo að það er auðvitað ekki óeðlilegt. Svo í sumar lét ég loksins verða af því. Ég var hjá þeim í tvo mánuði og ég veit að þeim þótti mjög vænt um það, gömlu hjónunum, en ég held, að þeim hafi þótt miklu meira varið í að hafa telpuna mína en mig sjálfa. Þau sáu ekki sólina fyrir henni. Fyrst eftir að bróðir minn lieitinn dó voru þau að vonast eftir, að ég myndi setjast að hjá þeim. Ekki sízt af því að ... Ja, ég skal segja þér alveg eins og er, að það er nefnilega ungur mað- ur þarna heima, sem alltaf hefir viljað fá mig fyrir konu. — Hvað þú hefir, sem betur fer, ekki viljað, skaut Karl inn í. — Ég vil ekkert dæma um það, hvort því er betur eða ver farið. En mér finnst alltaf, að ég geti hvergi kunnað við mig nema hérna í Reykjavík. En ég kenni mik- ið í brjósti um foreldra mína, þau eru svo miklir einstæðingar. Og þess vegna var það, aðeins þess vegna, að ég féllst á það, að skilja dóttur mína eftir hjá þeim. Það Maggi og Raggi J i' u '-jQPr- 1940, King Fcaturcs Syndicatc, Inc., World Raggi: Mig langar aS spyrja þig að dá- Raggi: Náðirðu nokkurn tíma prófi í litlu, afi. skólanum ? Afi: Hvað er það? Afi: Já, auðvitað, og það með 1. eink- unn. Raggi: Hvernig stendur þá á því, að ég fékk núll í skólanum í dag? Afi: Hvað veit ég um það? Ekki er það mér að kenna. Maggi: Jú, einnntt. Þao varsc pu, sem hjálpaðir mér með heimadsemin.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.