Vikan - 14.11.1940, Síða 2
2
VIKAN; nr.. 46, 1940
Pósturinn. | H
Undir þessari fyrirsögn mun
framvegis verða svarað
bréfum, sem Vikunni berast
og almennt gildi hafa. Blað-
inu er ljúft að birta stutt
bréf eða kafla úr bréfum
frá lesendum og mun svara
þeim eftir beztu getu.
Hvernig eiga smásögur að vera?
Þessari spurningu hefir verið beint
til oss í bréfum frá fleirum en einum
af öllum þeim, sem senda blaðinu
sögur til yfirlestrar.
Smásagnagerð hefir færst mjög í
aukana meðal Islendinga síðustu ára-
tugina. Nokkuð af þeim aragrúa
manna, sem aðeins fékst við að yrkja
kvæði sér til hugarhægðar, hefir tek-
ið annað form skáldskapar í þjón-
ustu sína, smásagnagerðina. En það
er eins um sögurnar og kvæðin, að
þær eru mjög misjafnar, bæði að
formi og efni. Svo er að sjá sem að-
eins örfáir hafi lært þau vinnubrögð,
er viðhafa verður á þessu sviðið. Og
menn virðast almennt vera mestu
klaufar i að finna yrkisefni. Þeir vilja
skrifa, og geta sumir skrifað, en
hafa ekkert til að skrifa um. Og þó
er efniviður í smásögur á hverju
strái.
Mörgum hættir við að hafa sög-
urnar alltof langar, láta í rauninni
fleiri en eitt og fleiri en tvö smá-
söguefni flakka með í hverri sögu,
auk þess, sem þeir hafa hugsað sér
aðaluppistöðu sögunnar. Þetta dreif-
ir áhrifunum og gerir sögurnar laus-
ar í byggingu. 1 fáum orðum sagt
finnst oss aðaleinkennin á vel-
byggðri smásögu eiga að vera þessi:
Eitt söguefni, markvisst og útúrdúra-
laust rakið að heppilegum enda-
punkti, sem helzt þarf að koma að
óvörum. Og síðast en ekki sízt: Is-
lenzk blöð þola ekki langar smásög-
ur. Þau eru of lítil til þess.
Vitið pér pað?
1. Hvað þýðir nafnið Anna?
2. Hver fór fyrstur yfir þveran
Grænlandsjökul og hvenær var
það?
3. Hver er 1. þingmaður Reykvík-
inga?
4. Hvað heitir höfuðborg Ástralíu?
5. Hvenær hernámu Englendingar
Island ?
6. Hvar nam Bekan land?
7. Hvenær var skátahreyfingin
stofnuð og af hverjum og hvað
átti það skylt við Búastriðið ?
8. Hvað þýða orðin ,,Preludium“ og
„Postludium“ ?
9. Eftir hverja er lagið og Ijóðið
„Álfakóngurinn“ ?
10. Hvað heitir austasti oddi Is-
lands ?
Sjá svör á bls. 7.
Skrítlur.
„Er hundurinn þinn vitur?“
„Já, hann gerir allt, sem honum
er sagt. Ef maður segir t. d.: „Ætl-
arðu að koma, eða ekki?“ þá kemur
hann — eða ekki.“
Ungi maðurinn sagði við stúlkuna,
að ef hún vildi ekki giftast sér, þá
mundi hann fá sér reipi og hengja
sig fyrir framan gluggann hennar.
„Nei, góði, gerðu það ekki,“ sagði
hún, „þú veizt, að hann pabbi sagði,
að hann vildi ekki hafa þig alltaf
hangandi hérna.“
„Áður en ég giftist manninum mín-
um, fannst mér hann vera eins og
grískur guð.“
„Og finnst yður það ekki lengur?“
„Jú, eins og Bakkus.“
Efni bladsins m. a.:
Menm verð ekki ríkir á að
grafa eftir demöntum.
Eftir Ulmer Finn.
Þáttur úr sögu Alþiugis-
kosninga.
Eftir Kristján Jónsson frá
Garðsstöðum.
Sýnin. Smásaga
eftir Friðjón Stefánsson.
Framhaldssagan.
Sundmaðurinn mikli, barna-
saga.
Heimilið. — Gissur og teiknar-
inn. — Skrítiur. — Maggi og
Kaggi. — Eria og unnustinn. —
Krossgáta.
HEIMILISBLAö
Ritstjórn og afgreiðsla: Kirkju-
strætil. Simi 5004. Pósthólf 365.
Verð: kr. 2,00 á mánuði,
0,50 í lausasölu.
Auglýsingum í Vikuna veitt
móttaka í skrifstofu Steindórs-
prents h.f., Kirkjustræti 4.
Prentsm.: Steindórsprent h.f.
¥arnings og starfsskrá
Kaupskapur.
Nýja fornsalan, Aðalstræti 4,
kaupir allskonar húsgögn og
karlmannafatnað gegn stað-
greiðslu.
Simlykill (Code), Bentley’s eða
A.B.C., óskast til kaups. Af-
greiðsla Vikunnar vísar á.
Þúsundir manna vita
að ævilöng gæfa fylgir
trúlofunarhringunum frá
SIGUBÞÓR, Hafnarstjæti 4.
Frímerki.
Kaupi notuð íslenzk frímerki.
Sigurður Kjartansson, Lauga-
vegi 41. Sími 3830.
Notuð islenzk frímerki kaupi
ég ávallt hæsta verði. Duglegir
umboðsmenn óskast um land
allt. Há ómakslaun. Sig. Helga-
son, frim.kaupm. Pósthólf 121.
Reykjavík.
Saumastofur.
TAU OG TÖLUK
Lækjargötu 4. Sími 4557.
Saumum allskonar kjóla og
kápur. Aðalbjörg Sigurbjörns-
dóttir, Hverfisg. 35. Sími 5336.
Stimplar og signet.
Gúmmistimplar eru búnir til
með litlum fyrirvara. Sömu-
leiðis signet og dagsetningar-
stimplar. Steindórsprent h.f.
Kirkjustræti 4, Reykjavík.
Signeta-gröft og ýmiskonar
annan leturgröft annast Bjöm
Halldórsson, Laufásveg 47,
Reykjavík.
Skó- og gúmmíviðgerðir.
Allar skóviðgerðir vandaðar og
vel unnar. Júlíus Jónsson, Aðal-
stræti 9.
Bækur - Blöð - Tímarit
V i k a n er heimilisblaðið yðar.
Gerist áskrifandi og mun blað-
ið þá verða sent yður heim á
hverjum fimmtudegi. Afgreiðsl-
an er í Kirkjustræti 4, Reykja-
vík. Simi 5004. Pósthólf 365.
Bon-bækur fyrir hótel og veit-
ingastofur fást í Steindórs-
prenti h.f., Kirkjustræti 4. Sími
1174.
Vasa-orðabækur: Islenzk-ensk
og ensk-íslenzk fást í öllum
bókaverzlunum. Hver sá, sem
þessar bækur hefir um hönd,
getur gert sig skiljanlegan við
Englendinga, þótt hann kunni
ekki ensku. Verðkr. 3,00 og4,00.
Verndið heilsu barnanna!
B ARNIÐ
bók handa móðurinni.
Eftir Davíð Scheving Thor-
steinsson lækni, 144 bls. með 64
myndum, fæst ibókaverzlunum.
Verð: í bandi 3,00, heft 2,00.
Ýmislegt.
Borðkort
ýmis konar, svo
sem: Tvöföld,
skáskorin og
ýmsar aðrar
tegundir fást í Steindórsprenti,
Kirkjustræti 4, Reykjavík.
Ef þér gerist áskrifandi að
Vikunni, fáið þér á hverjum
fimmtudegi fjölbreytt og
skemmtilegt heimilisblað. 1 því
er eitthvað handa öllum: Fróð-
legar greinar, skemmtilegar
sögur, fréttamyndir, barnasög-
ur, framhaldssaga, heimilissíða
o. m. fl. — Hringið í sima 5004
og gerist áskrifandi, eða skrif-
ið: Vikan, Pósthólf 365, Rvík.
TAU &
<9
T Ö L U K Lækjargötu 4.
Nýkomið úrval af töium og hnöppum.
Komið á meðan nógu er úr að velja.
Kaupi og sel allskonar
verðbréf og fasteignir.
Garðar Þorsteinsson
Símar 4400 og 3442. Vonarstræti 10.
Félagið INGÓLFUR
Tilgangur félagsins er að
gefa út, eftir því sem
efni leyfa, rit, er heitir:
Landnám Ingólfs,
safn til sögu þess.
Félagið hefir þegar gef-
ið út III bindi í 10 heft-
um. Þessi rit fá meðlimir
ókeypis. Ennfremur hefir
félagið gefið út Þætti úr
sögu Reykjavíkur. Bók
þessi fæst hjá bóksölum.
Þeir, sem gerast vilja
meðlimir, snúi sér til af-
greiðslunnar: Steindórs-
prent h.f., Kirkjustræti4.
Reykjavík.
Viðskiftaskráin 1940 fæst í öll-
um bókaverzlunum. Nauðsyn-
leg bók öllum þeim, er við
kaupsýslu fást.
Hótel Borg,
Pósthússtr. 11.
Sími 1440.
Gistihús. Ifaffi- og matsöluhús.
Hliðstætt beztu erlendum
hótelum.
DAGCREnE-NÆTURCREME
Sendið auglýsingar
í Vikuna í
Steindórsprent h.f.,
Kirkjustræti 4.
Útgefandi: VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Kirkjustræti 4, sími 5004, pósthólf 365,