Vikan - 23.01.1941, Blaðsíða 9
VIKAN, nr. 4, 1941
9
„Hvers vegna voruð þér tekinn ?“
„Ég var ekki nógu fljótur að hlaupa.“
„Eg á við, hvaða sök þeir höfðu á hendur
yður.“
„Ég var of fingralangur."
Hnefaleikameistarinn er veikur.
„Hve mikinn liita hefi ég, læknir ?“
„40 stig.“
„Og hvað er heimsmetið?“
I
„Það er óheppilegt að koma með reikning
í dag."
„Nú, það er sá fyrsti í dag!“
' „Já, en ég fæ ekki útborgað fyrr en þann
síðasta."
Hann: „Veiztu, að þessi jarðgöng, sem við
ókum í gegnum, kostuðu 2 milljónir?"
Hún: „Nei, en þau eru áreiðanlega þess
virði!"
„Hann ætlaði að sýna, hve þægilegt rúmið
væri en rann þá óvart i brjóst!"
„Tókstu eftir baðfötum konunnar minnar í
boðinu í gærkveldi?"
,,Já; hvað er með það?“
„Það var kjóll."
„Fyrir tveimur mánuðum var ég bráðskot-
inn í Valdimar, en nú þoli ég hann ekki. Það
er merkilegt, hvað karlmenn eru fljótir að
breytast."
„Halló, er það Suður-Ameriku-linan ? Ég
ætla að skipta á 3. farrýmis-miðunum og fá
í staðinn á 1. farrými."
Gesturinn: „En hvað þetta er fallegt bam
og hve hann líkist manninum yðar.“
Konan: „Guð hjálpi mér, það vona ég ekki!
Við tókum hann í fóstur af vinkonu minni!"