Vikan - 07.08.1941, Side 15
VIKAN, nr. 32, 1941
15
„H. M. S. King George V.“ er eitt af nýjustu og stærstu orustu-
skipum Breta. Það er útbúið með risastórum, ferföldum 14 þumlunga
fallbyssum og sérstökum 5,25 þumlunga fallbyssum.
Major Áttlee innsiglisvörður heimsækir brunaliðssveit. Major C.
R. Attlee innsiglisvörður sést hér vera að tala við menn úr bif-
hjólasveit slökkviliðsmanna í London, þegar hann heimsótti aðal-
bækistöðvar þeirra í London.
]/)að er
a/veg dteíðan/egí/
I Englandi er til veitingahús, sem hefir
uppljómað.fiskabúr með marglitum fiskum
í staðinn fyrir þak. í Boise í Idaho er veit-
ingahús, sem engir þjónar eru í. Gestim-
ir velja réttina af hreyfanlegum renningi,
sem rennur meðfram borðunum og öllum
matnum er raðað á.
*
Það eru mörg dæmi þess, að hænur verpi
fúlum eggjum. Þetta getur komið fyrir,
þegar hæna, sem ætlar að fara að verpa,
verður mjög hrædd og verpir þá ekki egg-
inu fyrr en 3—4 dögum seinna.
*
Eftirspurn eftir einkennilegum og van-
sköpuðum mönnum til að sýna í „cirkus-
um“ hefir aukizt mjög mikið. Nú hefir
verið sett á stofn efnarannsókna- -
stofa í Mið-Evrópu, þar sem náttúr-
unni er hjálpað til að framleiða van-
skapað fólk. Fyrir skömmu átti að
fara að búa til dreng með fuglshöfuð.
Þrem vikum áður en fyrsta ítalska
sprengjan féll í Abessiníu árið 1935
auglýstu ítölsk ferðafélög ódýrar
ferðir til hinna nýju ítölsku landa í
Afríku með svofelldum orðum:
Ferðamenn! Árið 1936 önnumst við
sérstakar ferðir frá Milano til Addis
Abeba. Heimferðin er um Eritreu og
Libyu. Heimsækið fyrrverandi kon-
ungsríki Negusar!
Sovjet-Rússland lætur í ljósi hatur
sitt til Zaranna, með því að breyta
áletruninni á líkneski Alexanders III.
á „Byltingartorginu" í Leningrad. —
Áletrunin, sem nú er á líkneskinu,
hljóðar þannig: „Sonur minn og fað-
ir minn voru teknir af lífi og sjálfur
stend ég hér eins og fugláhræða úr
steypujárni í landinu, sem um tíma og
eilífð hefir kastað oki harðstjórnar-
innar af sér.“
M. F. A. gefur út bókina
Out of the Níght
Menningar- og fræðslusamband alþýðu hefir ákveðið, að
þriðja bók þess á þessu ári verði hin mjög umtalaða sjálfs-
æfisaga Jan Valtins, „Out of the Night“. Upplagið verður
takmarkað við tölu félagsmanna og þeirra, sem kunna að
vilja gerast áskrifendur að þessari bók sérstaklega. Þeir,
sem vilja tryggja sér að fá þessa bók, gefi sig fram sem
fyrst við skrifstofu M. F. A. í Reykjavík, sími 5366, eða við
umboðsmenn þess úti um land.
Þeir eru 800 dollara virði hvor.
■■■■■■•
Myndin er af konu Charles S. Harrimans frá Auburn í Washing-
ton. Hún heldur á tveimur fyrstu „chinchillunum“, sem fæðst hafa
í Bandaríkjunum og eru 800 dollara virði hvor. „Chinchillar" eru
komnir frá Suður-Ameríku og skinn þeirra hafa verið flutt mikið
til Evrópu. Að útliti eru þeir eins og blendingur af mús og héra
og líkjast einna mest litlum kaninum með löng, loðin skott.