Vikan


Vikan - 09.07.1942, Side 7

Vikan - 09.07.1942, Side 7
VIKAN, nr. 23, 1942 Lúðrasveit Reykjavíkur 20 ára Viggó H. V. Jónsson form. Lúðrasveitar Reykjavíkur. Auk þess, sem Lúðrasveitin hefir leikið í Reykjavík og- nágrenni hefir hún farið þrjár stórar hljómleikaferðir út um land, árin 1925, 1927 og 1939 og sþilaði þá víðsvegar. Um það munu allir sammála, að Lúðrasveitin er ómiss- andi í bæjarlífinu og því betra sem vegur henn- ar og gengi er meira. Talið frá vinstri. Fremri röð: Sigurður Þorgeirsson (Es-klarinett), Viggó H. V.^Jónsson (1. klari- nett), Magnús Jósefsson (2. klarinett), Októ Þorgrímsson (1. klarinett), Árni Björnsson (2. flauta), Oddgeir Hjartarson (1. flauta), Eggert Jóhannesson (1. cornet), Óskar Þorkelsson (1. tromba), Albert Klahn (stjórnandi, baryton), Guðjón Þórðarson (2. tenorhorn), Bjarni Þóroddsson (1. tenor- hom), Sveinbjörn Kr. Stefánsson (3. tenorhorn), Pétur Einarsson (3. tromba), Jón Bergsveinsson (2. cornet). Aftari röð: Einar Jónsson (2. trombone, básúna), Jóhannes Eggertsson (1. básúna), Eirikur Magnússon (1. fogott og bai-yton), Magnús Sigurjónsson (1. túba), Sigurður Hjörleifsson (2. túba), Óskar Jónsson (1. waldhorn), Magnús Magnússon (2. waldhorn), Stefán Guðnason (stóra- tromma), Lárus Jónsson (litla-tromma), Guðlaugur Magnússon (1. cornet), Björn Björnsson (1. tromba), Hans Jónsson (2. tromba). Reykvíkingum er verulega hlýtt til Lúðrasveit- arinnar. Hún hefir svo oft skemmt þeim, og raunar miklu fleiri iandsmönnum, með prýði- legum leik — og látlausri framkomu, þvi þótt hún geti haft hátt, þá er það á sviði listarinnar, en ekki tilgerðar! Tvær starfandi lúðrasveitir, Harpa og Gígja, runnu saman 7. júlí 1922 í eina sveit, sem hlaut heitið Lúðrasveit Reykjavíkur, en aðalhvatamað- ur að stofnun beggja eldri sveitanna var Hall- grímur Þorsteinsson söngkennai'i, góður og gamalkunnur hljómlistarmaður. Fyrstu stjórnina skipuðu: Gísli Guðmundsson bókbindari og söngv- ari, formaður, Björn Jónsson kaupm., Karl O. Runólfsson tónskáld, Óskar Jónsson prentari og Pétur Helgason verzlunarmaður. Fyrsti kennari sveitarinnar var Otto Böttscher, þýzkur hornleikari, en Páll ísólfsson tónskáld tók við 1. apríl 1924 og annaðist kennsluna í rúm tólf ár, að undanskildum nokkrum tíma 1930, er dr. Franz Mixa leysti Pál af hólmi. Albert Klahn, þýzkur hornleikari tók við stjórninni 3. ágúst 1936 og hafði hana á hendi þangað til síðastliðið haust, að hann lét af starfi sínu sökum heilsubrests, en við tók Karl O. Runólfsson tónskáld. Ljúka for- ustumenn sveitarinnar miklu lofsorði á Albert Klahn, að öðrum stjórnendum ólöstuðum. — Lúðrasveitin hefir ekki einungis sýnt atorku í æfingum og íeik fyrir almenning. Meðlimir henn- ar hafa verið dugmiklir á fleiri sviðum í sam- bandi við starfsemina. Þeir komu upp hljóm- skálanum við Tjörnina og studdu mjög að stofn- un Tónlistarskólans, hins þarfasta fyrirtækis og nú hafa þeir i hyggju að koma upp hljómleika- palli (Pavillon), sem líklega verður í Hljómskála- garðinum. Á síðastliðnu ári safnaði einn félag- inn, Kjartan Guðmundsson inheimtumaður, nægi- legum peningum, hjá útgerðarmönnum og félög- um, til kaupa á nýrri hljóðfærasamstæðu, mjög vandaðri. Núverandi stjórn skipa: Viggó Jónsson, for- maður, Oddgeir Hjartarson gjaldkeri, Magnús Sigurjónsson ritari, Guðlaugur Magnússon og Magnús Jósefsson meðstjórnendur. Litlu bílarnir eru til margra hluta nytsamlegir Þau óteljandi hernaðartæki, sem framleidd eru í Bandaríkjunum verða ekki til einskis eftir ófriðinn, því að það er þegar farið að reyna, að hvaða gagni þau megi koma, er friður kemst á. Hér sjást nemendur við fjöllistaskóla í Ala- bama vera að nota lítinn bíl — sem framleidd- ir hafa verið í hernaðarlegum tilgangi — til þess að draga sláttuvél, sem notuð er til þess að slá rúg á tilraunabýli stjórnarinnar. Á bak- sviðinu sést nútíma mjólkurbúshlaða, þar sem stöðugt eru gerðar tilraunir til þess að bæta landbúnaðaraðferðimar. Það er álitið, að þessi litla bílategund eigi eftir að verða almenningseign að stríðinu loknu. i>au áttu að rífast. Samkvæmt gamalli venju i Hollywood voru rithöf- undurinn Louis Browne og fyrri kona hans saman í samkvæmi og hlustuðu á tilkynninguna um skilnað sinn, í útvarpinu. Daginn eftir hringdi Leopold Stokow- sky, hljómsveitarstjóri, sem einnig var í samkvæminu, til Louis til þess að striða honum. „Mér finnst það hreint og beint ósæmandi af ykkur að skemmta ykkur svona vel saman," skammaðist Stokowsky. ,,Að minnsta kosti rifumst við, ég og konan mín, þegar við skildum."

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.