Vikan - 09.07.1942, Page 9
VIKAN, nr. 23, 1942
9
Kndalok japansks flugmanns. Þessi mynd, sem komin er frá brezku upp-
lýsingaþjónustunni, sýnir endalok japansks flugrnanns, sem flaug flugvél
sinni of nálægt loftvamabyssum Breta og varð þeim að bráð.
Amerískur hermaður á Irlandi. Á myndinni sést hermaður, sem er að fara
í land á Norður-lrlandi, með gítar sinn. Hann er úr fylkingarliði því, sem
Roosevelt lofaði Bretum. Hann ætlar að spila fyrir félaga sína á gítarinn.
Þau giftu sig á gamals aldri. Á myndinni sést John J. Geiger, 70 ára, og
Elizabeth Hoffem, 74 ára. Þau höfðu verið trúlofuð í fjögur ár. Þau
hittust fyrst á elliheimili í New York og urðu ástfangin hvort af öðru. Á
myndtnni er brúðurin að skera niður brúðkaupskökuna, en hann horfir á.
Frænka Mc Arthurs, hetjunnar frá Filippseyjum, frú John L. Reybum,
starfar nú sem sjálfboðaliði við hjúkrun á barnasjúkrahúsi í Washington.
Hún sést hér vera að annast lítið, hrokkinhært bam.
Rauða hersveitirnar hylla leiðtoga sinn. Þessi mynd var tekin af Josef
Stalin, er hann var að halda ræðu í Moskva í tilefni af tuttugu og fjögurra
ára afmæli kommúnistabyltingarinnar. Neðri myndin sýnir syngjandi her-
menn, sem gengu fylktu liði fram fyrir Stalin við þetta tækifæri.
Lítil stúlka, sem lenti i sjávarháska. Janet Johnson frá London var um
borð í kanadiska skipinu „Lady Hawkins", sem varð fyrir sprengju og
sökk. Hún sést hér sofandi um borð í skipinu ,,Coamo“, sem bjargaði
nokkrum af farþegunum. Janet litla og sjötiu aðrir komust lifs af.