Vikan


Vikan - 03.09.1942, Side 3

Vikan - 03.09.1942, Side 3
VIKAN, nr. 31, 1942 3 Hver er sinnar gcefu smiður♦ I grein þessari segir kona nokkur, sem ekki vill láta nafn síns getið, frá pví, hvernig hægt sé að öðlast sanna hamingju. UM DAGINN var ég að tala við mann, sem fær þúsundir bréfa frá óhamingjusömu fólki. Hann sagði: „Það er eins og villt börn, sem leita ákaft að einhverjum til þess að veita þeim það öryggi, sem þau hafa ekki getað byggt sér upp sjálf.“ Ég vissi, við hvað hann átti, því að ég hefi sjálf verið svona. Óhamingja er lík því að vera niðri í djúpum brunni með hálar hliðar, sem maður reynir að klifra upp og kemst stundum upp að barminum, en déttur svo niður aftur. Þegar maður kallar á hjálp, heyrir enginn, og að lokum verður maður að brjótast út hjálparlaust. Hamingja er ekki annað en sjálfstraust — sú öryggistilfinning, sem stafar af því að maður finnur að maður getur mætt raunveruleikanum einn og óhikandi. Það er þrekvirki, og ég er hreykin af þvi, að mér skuli hafa tekizt að sigrast á því að nokkru leyti. Þið skulið ekki halda að ég sé alltaf kát. Stundum er ég þunglynd, gröm og þreytt. En ég hefi lært það að óttast ekki depurð sálu minnar, vegna þess að ég veit, að hún er ekki varanleg. Tár eru óhjá- kvæmilegur þáttur í lífi mínu; samt er hægt að gera von og hlátur óhjákvæmi- legan líka, það geta þeir, sem treysta sjálf- 'um sér. Þar til ég var 25 ára þurfti ég ekki á neinu sjálfstrausti að halda í lífinu. Eigin- maður minn og dóttir voru ekki eingöngu miðpunktur heims míns, heldur voru þau mér allur heimurinn. Ég var háð eigin- manni mínum eins og ég hafði verið háð foreldrum mínum, sem höfðu jafnað alla erfiðleika, er á leið minni urðu. Mér datt það aldrei í hug, að öryggi fullorðinnar manneskju gæti ekki verið tryggt í hönd- um annarra. Eg skil núna, hve skortur minn á áhuga- efnum utan heimilisins hefir gert hann graman. Það kom stundum fyrir, að hann væri kuldalegur og þögull. En ég vildi ekki trúa því, að neitt væri að. Ég hélt, að hann væri þreyttur og þyrfti að skemmta sér og fékk því miða í leikhús. Hann virtist ekki gleðjast yfir því. Hann sagðist bara skyldi hitta mig í biðsal veitingahúss nokk- urs klukkan sjö. Allan þann dag var ég full eftirvænt- ingar. Ég man eftir því, að ég fór inn í leikfangaverzlun og keypti spiladós handa dóttur okkar. Ég var með hana í hendinni, þegar ég kom inn í biðsalinn. Maður minn kom ekki fyrr en klukkan átta. „Ég hélt, að þú mundir vera farin,“ var allt, sem hann sagði, þegar hann kom. Andlit hans var hörkulegt, eins og andlit óvinar. Ég hélt uppi leikfanginu eins ,og til þess að verja mig, og snéri sveifinni, svo að tónar komu úr dósinni. „Sjáðu,“ sagði ég, „ég fékk þetta fyrir 10 cent.“ „Ég get eins vel sagt þér það strax,“ sagði hann. „Ég er orðinn þreyttur á þess- ari uppgerð. Ég er ástfanginn af annarri konu og vil fá skilnað.“ Hann skildi mig eftir eina. í fyrstu voru hugsanir mínar eins og laufblöð, sem þyrl- ast í vindi. Svo fór ég að hugsa skynsám- lega: „Aðrar konur hafa komizt yfir þetta. Nú verð ég að læra það.“ í hörmungum skilnaðarins var ég þó svo skynsöm, að ég fann það, að ég gæti aldrei orðið hamingjusöm, nema ég hætti að vorkenna sjálfri mér. Þetta var þýð- ingarmikið spor, en ég átti langa leið fyrir höndum, því að ég var enn ekki búin að læra það, að sönn hamingja býr innra með manni. Ég átti barn mitt, það eina góða, sem ég átti eftir frá þessum árum, sem höfðu farið svo illa. Ósjálfrátt snéri ég mér að henni til þess að fá það öryggi, er ég hafði glatað. Vinir hennar, skólinn og vandamál hennar urðu áhugamál mín. Það var mér mikil ánægja, að horfa á hana leika sér með leikföng sín og syngja. Hún bjó til myndir fyrir mig, allar útpáraðar og óhreinar. Mér tókst oft að finna til vellíð- an vegna hennar, og bros hennar yljuðu mér um hjartaræturnar. En dag nokkurn varð mér það ljóst, að með ást minni gerði ég hana mér of háða. Hún vafði handleggjunum um háls mér og sagði: „Mamma, við skulum alltaf vera saman. Við skulum aldrei verða stórar.“ Mig langaði til þess að gráta og segja, að ég vildi ekkert frekar; en ég sá að lokum, að ég mátti ekki láta hana bera byrði mína. Svo ég sagði: „Það verður skemmti- legt að verða stór. Þér mun þykja gaman að því.“ Ég hafði einungis umgengizt hana og því ekki leitað til vina minna um stuðning. Nú fór ég til þeirra, hvers á fætur annars og vonaði, að því er ég býst við, að fá ein- hverja töfrauppskrift fyrir hamingju. Sumir þeirra töluðu óljóst um „inn- sýni“ og ,,samsvaran“. Aðrir sögðu mér að „hlæja að sjálfri mér“, „kunna að taka gamni“ og „sjá hve skemmtilegt allt í rauninni væri“. Engin þessara uppá- stungna gerði mikið gagn. Óhamingjusamt fólk á eitt sameiginlegt — það hugsar í sífellu um sitt eigið ,,ég“. Það er fangar ótta og kvíða og það skoðar lífið eins og það horfði á það út um fang- elsisglugga. Þetta amaði líka að mér; ég þurfti, eins og stundum er sagt: „að losna við sjálfan mig.“ Á þessum tíma skeði smáatburður, sem festist mér í huga og hefir ekki horfið það- an síðan. Ungt hlynitré dó í garði mínum. Maðurinn, sem tók það í burtu, sýndi mér, hvernig það hefði vafið rótunum um bol- inn í stað þess að teygja úr þeim éftir næringu. Er hann sagði mér þetta, sá ég allt í einu, að ég hafði snúið rótum tilfinninga minna og skynsemi inn á við. Ég varð ann- að hvort að deyja andlegum dauða, eða breiða þær út, eins og heilbrigt tré, til þess að snerta lífið á sem flestum stöðum. Er ég tók að dreifa huga mínum og hjarta, skeði ekkert skyndilegt furðuverk. Ég tók að hvetja forvitni mína, rannsaka hluti, sem ég hafði venjulega ekki virt við- lits. I fyrstu voru þessar rannsóknir á byrj- unarstigi. Ég fekk mér bók um stjörnu- fræði og á sumarkvöldum lá ég úti í garði og horfði á stjörnurnar. Sum kvöldin sat ég við útvarp mitt. Þar voru flutt fræðandi fyrirlestrar um efni, sem voru mér alveg ókunn, skemmtilegar og fróðlegar dag- skrár á smá-útvarpsstöðvum, sem ég hafði aldrei hlustað á áður. Ég fór líka að lesa allskonar bækur — allt frá „Ferdinand“ til „Glæpur og refsing“. Ég var eins og manneskja, sem stendur við matarborð, og tekur á disk sinn dálítið af hverri tegund. Ég umgekkst annað fólk meira — hugs- aði á annan hátt um vini mína, ekki um vináttu þeirra til mín, heldur hvernig þeir í raun og veru væru. Ég reyndi að kynnast þeim betur, og komst að því, mér til mik- illar undrunar, að þeir voru líka að mörgu leyti einmana, leitandi og villtir vegar. Smátt og smátt varð kunningsskapur okk- ar nátengdari, og ég varð þeirrar gleði að- njótandi að geta veitt huggun. Áður, þegar ég hafði reynt að gera eitt- hvað fyrir fólk, þá hafði ég ekki verið einlæg í tilraunum mínum. Þess vegna hafði það ekki heppnast. Fólk finnur strax, ef maður sýnir ekki fulla einlægni, en geri maður það, þá er manni tekið með opnum örmum. Auðvitað féll mér ekki allt vel, sem ég gérði. En hefði ég ekki áhuga fyrir ein- hverju eftir að hafa reynt það, þá strik- aði ég það út af lista mínum. Maður verður ekki hamingjusamur, ef maður er áhuga- laus. Þannig fór ég að fást við nokkur efni, sem ég hafði áhuga á og naut að fást við, og það fékk mig til að finnast ég vera hluti þess litla heims, sem ég tilheyrði. Ég aflaði mér þeirrar kunnáttu, sem þau Framhald á bls. 13.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.