Vikan


Vikan - 25.11.1943, Blaðsíða 10

Vikan - 25.11.1943, Blaðsíða 10
10 VIKAN, nr. 47, 1943 Gœtið unglinganna. --Eftir Garry Cleveland Mayers. . _ II i sr i m III 1 I i n, nbi í III1 E. 1 U Matseðillinn. Sítrónusúpa. 1% 1. vatn, 2 litlar sxtrónur, 2 egg, 140 gr. sykur, 40 gr. smjör, 40 gr. hveiti. Eggin eni hrœrð með svo miklu af sykrinum, sem nauðsynlegt er til þess að þau verði hvít. Sítrónusafinn er látinn í vatnið og sítrónubörkur- inn er soðinn í 10 mínútur. Þá er súpan siuð. Hveitið er hrært út með litlu af saftinni kaldri og siðan hellt yfir eggin, suðan látin aðeins koma UPP °g stöðugt hrært í. Smjörið er látið i rétt áður en súpan er fram- reidd. Borin á borð með litlum tvi- bökum. írskur jafningur. 1 kg. lambakjöt, % kg. kart- öflur, 2 gulrófur, 4 næpur, salt, pipar, 75 gr. smjör. Kjötið er skorið í sneiðar. Kartöfl- umar, gulrófurnar og næpurnar eni lika skomar i sneiðar. Feitin er bædd í potti yfir eldi. Ofurlitlu vatni er bætt í pottinn, síðan er grænmetið lagt niður í hann í lögum, og kjöt og krydd lagt á milli laganna. Þetta er soðið saman við hægan eld, þar til kjötið og grænmetið er orðið meyrt. Gæta verður þe3s, að ávallt sé vatn í pottinum meðan síður. Áður en jafn- ingurinn er framreiddur, er gott að láta lítið eitt af köldu smjöri út í. Húsráð. Til þess að hita upp grænmeti, svo að það fari ekki í mauk, er ágætt að setja grænmetið í síu, en hana aftur yfir pott með sjóðandi vatni. Lyfta svo grænmetinu varlega tll með gaffli, svo að'gufan geti leikið um það. Benzín ætti ekki að vera notað í heimahúsum til neinna hluta. Upp- gufun þess myndar eldfimt gas, sem ekki þarf nema lítinn neista til þess að valda sprengingu eða eldhafi. Þær húsmæður, sem notað hafa benzín til þess að hreinsa bletti úr fötum, ættu í stað þess að nota blettavatn (Tetra- kiorkulstof), sem fæst í lyfjabúðum og er ekki eldfimt. Þessi snotra ,,dragt“ er úr brúnu- ullarefni. Kraginn er úr „beige" ull- arefni. Framan á pilsinu er djúp fell- ing. Undir jakkanum er jafnsnoturt að nota peysu eins og blússu. (Grein þessi er eftir ameriskan lækni, sem stöðugt skrifar í blöð vestan hafs ýmsar leiðbeiningar fyr- ir foreldra. Mætti hér ef til vill eitt- hvað af henni læra). 1 mörgum bæjum, einkum þeim, þar sem mikið er um hemaðariðnað og herbúðir, er það orðið mjög al- gengt, að unglingar, einkum stúlku- böm á aldrinum 10—18 ára sæki ,,næturklúbba“ og veitingahús; og sjást þær þar oft undir áhrifum víns og í fylgd ókunnugra manna. Margir þessara imglinga fá næst- um ótakmarkaða peninga hjá for- eldrum sínum,' og þúsundir unglinga vinna fyrir óhemju miklu kaupi, jafn- vel á meðan þeir eru í skóla. 1 flestum rikjum em til lög, sem banna sölu áfengra drykkja til ungl- inga, en hvar er slikurn lögum fram- .fylgt? Þegar ásakanir eru bornar á veitingamannirm, getur hann sagt, að hann kunni ekkert ráð til að dæma aldur unglinga eftir útliti þeirra. Ef lögreglan tekur pilt eða stúlku er hún oft í miklum vanda stödd með að sanna að hann eða hún sé undir aldurstakmarkinu. Og sumir foreldrar, einkum hinir svonefndu góðu foreldrar, em reiðubúnir að bera ljúgvitni vegna afbrota bama sinna. Nú á þessum tímum ættu öll börn á aldrinum 10—18 ára að vera skyld- uð til að bera á sér spjald, sem sann- aði aldur þeirra. Þessi spjöld ættu að vera gefin út af því opinbera og skólamir ættu að hafa yfirumsjón með því. Þessi spjöld væru mjög .æskileg til þess að framfylgja þeim lögum, sem banna unglingum að sækja knæpur. Að því er virðist eru það aðallega böm frá hinum svonefndu betri heim- ilum, sem eru í meiri hluta í knæp- um, næturklúbbum og við miðnæt- ursýningar. En ef nú þeir foreldrar, sem eru menntaðir og eru virtir af samborgurum stnum, hefðu einhverja ábyrgðartilfinningu gagnvart böm- um sinum og héldu þeim heima, þegar þau eiga að vera heima og létu þau ekki sækja næturklúbba, knæpur og miðnætursýningar, myndu aðrir foreldrar, sem síður eru þessum kostum búnir, brátt taka þetta upp eftir þeim, og afbrot og glæpir ungl- inga minnka í staðinn fyrir að halda áfram núverandi vexti. Ef þér emð í skólastjóm, stjóm einhvers borgaralegs- eða kristilegs félags; eða langar bara til þess að þekkja æskuna, sem byggir sömu borg og þér, og vita, hvað hún hefir fyrir stafni á síðkvöldum, þá ráðlegg ég yður (og eiginkonu eða manni) að eyða nokkrum kvöldum I að heim- sækja knæpurnar, næturklúbbana og miðnætursýningarnar, og taka eftir unglingafjöldanum, sem þar er. Ég hefi oft sagt það í þessum dálki, að ef ,,góðu“ foreldi'amir í bæjum og borgum, litu betur eftir bömum sín- um og héldu þeim af götunni á kvöldin, myndum við ekki missa svo marga unglinga í hóp iðjuleysingja, vandræða- og afbrotamanna. Fólk, sem stundar útivinnu. Fólk, sem stundar útivimiu, starf- ar tíðast í mun hollara umlxverfi en fólk, sem vinnur inni. Útivinnan stælir og herðir, gerir fólk djarft, áræðið og þolmikið til ýmsra fram- kvæmda. Liggja til þess margar ástæður. En þeir, sem úti starfa, hafa samt ekki eins alhliða hreyfingu og ýmsir halda. Margir vinna líka vafalaust meira en þeir hafa þol og krafta til, einkum til sveita. Það er efalítið, að erfiðismenn mundu endast lengur en mun er á, ef þeir hirtu betur líkama sinn en þeir gera yfirleitt. Fyrst og fremst þyrftu þeir að baða sig oftar en nú gerist eða helzt þvo allan líkam- ann daglega, en iðka að auki ávallt nokkrar leikfimiæfingar að loknu dagsverki. Erfiðismenn þuifa að visu yfirleitt ekki að æfa sig til þess að auka afl sitt, heldur miklu fremur til að liðka liðamótin, mýkja og teygja vöðvana eftir erfiði dagsins. Á þann hátt gætu þeir stuðlað að því, að viðhalda vinnuþoli sínu og öðlast frjálsmann- legan og eðlilegan limaburð. (Vaxtarrækt). MILO imflluitlNit: áam iIiuoil iiduiii • besta handþvottaefnið. öruggasta og Minnstu ávallt NOTIÐ eingöngu UNÍT PERFECT LAUNORY STARCH iffill-lMli-Jlt IMfflj IMJMJM: > Cpnptt LOOKÍ&IiOi FEfl UKf’lJN STÍFELSI i Heildflölubirgðir; GUÐMUNDUR ÓLAFSSON ft CO. Auflturstræti 14. — Siml 5604.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.