Vikan - 16.03.1944, Blaðsíða 3
VIKAN, nr. 11, 1944
3
(Sjá forsíðu).
N. F. S. Grundtvig,
einn af mestu andans mönnum dönsku
þjóðarinnar, var fæddur 8. september
1783 skammt frá Vordingsborg á Sjá-
landi, þar sem faðir hans, Johan Ottesen
Grundtvig, var sóknarprestur, en móðir-
in, Catrine Marie, f. Bang, var af gamalli
danskri ætt. Móðir hans á að hafa sagt
áður en Grundtvig fæddist, að ef hún
eignaðist dreng, þá skyldi hún „láta hann
læra til bókarinnar“, þótt hún yrði að rýja
sig inn að skyrtunni. Hún efndi heit sitt
trúlega og vakti meðal annars hinn mikla
sagnfræði-áhuga Grundtvigs. Las hann
gömlu annálana upphátt fyrir móður sína,
en faðirin skýrði efnið fyrir drenginn.
Níu ára gamall var Grundtvig sendur til
prests á Jótlandi til að læra undir skóla
og hafði veran þar mikil áhrif á hann.
Minningin um józku bændurna, þrautseigju
þeirra í lífsbaráttunni, mál þeirra og orða-
tiltæki og sálmasöng, og náttúru Jót-
lands varð honum mikils virði. En Grundt-
vig var einmana og mætti litlum skilningi
í uppvextinum, og ekki batnaði þetta,
þegar hann 15 ára gamall fór í latínuskól-
ann í Árósum. Honum féll ekki andrúms-
loftið í skólanum. 1800 varð hann stúdent;
ómannblendinn og stirðlegur, og fátæklega
klæddur naut hann sín ekki í stúdenta-
hópnum. 1803 tók hann embættispróf í
guðfræði.
Um tíma var Grundtvig heimiliskennari,
en las mikið skáldskap meistaranna:
Oehlenschlægers, Shakespeares, Schell-
ings, Goethe og Schillers og skrifaði um
goðafræði, trúarbrögð og helgisiði og fór
sjálfur að yrkja. 1808 settist hann aftur-
að í Kaupmannahöfn og varð þar kennari
í sögu. Um þær mundir skrifaði hann verk,
Hvelfing Grundtvigs-Uirkjunnar.
Þriggja hæða hús gæti staðið undir miðhvelf-
ingu kirkjunnar. Það gefur nokkra hugmynd um,
hve þar er hátt til lofts. Turn kirkjunnar ,er
þrjátíu og fimm metra breiður, hæð hennar átta-
tiu metrar, lengd sjötíu metrar og um fimm
miljónir múrsteina voru notaðir í þessa glæsilegu
byggingu. Hver múrsteinn er ekki stór, en sam-
einaðir mynda þeir geysimikið mannvirki; eins
er með söfnun til bágstaddra bræðra: Margar
smágjafir geta orðið að einni stórgjöf, sem gagn
yrði í og þjóð vorri til sóma!
Ávarp til íslenzku þjóðarinnar.
1U ikill fjöldi danskra flóttamanna dvel-
ur í Svíþjóð og víðar um þessar
mundir. Flestir þessara manna hafa kom-
izt úr landi slyppir og snauðir, og munu
eiga litla kosti atvinnu og vera mjög hjálp-
arþurfa. Fólk þetta er úr öllum stéttum
þjóðfélagsins og meðal þess margt barna,
kvenna og gamalmenna.
Islenzka þjóðin hefir þegar sýnt Finn-
um og Norðmönnum samúð sína í verki og
efnt til almennrar fjársöfnunar þeim til
handa. Eru það þá Danir einir af hinum
nauðstöddu Norðurlandaþjóðum, sem
enginn slíkur vináttuvottur hefir verið
sýndur. Mun það hafa komið af því, að
fram til þessa hafa íslendingar litið svo
á, að eigi væri hægt að veita þeim hjálp,
er að gagni mætti koma, en nú mun þörf
hinna dönsku flóttamanna í Svíþjóð vera
einna brýnust þeirra Norðurlandabúa,
sem unnt er að rétta hjálparhönd eins og
sakir standa.
Islendingum hefur vegnað svo vel, þrátt
fyrir allar hörmungar stríðsins, að þeir
eru aflögufærir öðrum til styrktar, og
munu þeir fúsir að sýna Dönum þannig
vinarhug í verki. Verði þátttakan almenn,
erum við færir um að létta verulega raun-
ir margra danskra flóttamanna, og það
án þess, að nokkur einstaklingur taki
nærri sér.
Væntum vér því, að Islendingar liggi
nú ekki á liði sínu, heldur láti gjafir skjótt
og vel af hendi rakna, enda er ætlunin,
að söfnunin standi aðeins yfir næstu
mánuði. Mun sannast sem jafnan, að
fyrsta hjálpin er beeta hjálpin, enda verði
féð sent jafnóðum og það kemur inn.
Það má ekki einvörðungu telja rétt að
íslenzka þjóðin efni til slíkra samtaka,
heldur siðferðilega skylt. Islendingar
mega aldrei láta hlut sinn eftir liggja,
þegar unnið er að mannúðarmálum.
Reykjavík 1. marz 1944.
Sigurður Nordal, prófessor. Lúðvíg Guðmundsson,
skólastjóri. Stefán Jóh. Stefánsson, form. Nor-
ræna félagsins. Bjöm Br. Björnsson, tannlæknir.
Bjöm Þórðarson, forsætisráðherra. Brynjólfur
Bjarnason, form. miðstj. Sósíalistaflokksins. Ey-
steinn Jónsson, form. þingfl. Framsóknarmanna.
Jón Hjaltalín Sigurðsson, rektor Háskóla Islands.
Pálmi Hannesson, rektor Menntaskólans. Jónas
sem setti hann í sumra augum við hlið
mestu skálda þjóðarinnar. 1810 vildi faðir
hans fá hann sem aðstoðarprest, en
Grundtvig gat þá ekki hugsað sér það að
hverfa úr höfuðborginni og verða fátækur
prestur meðal bænda úti á landi. En ræða,
sem hann hélt á þeim tíma um trúmál,
vakti miklar deilur og Grundtvig fékk þá
hugmyndina um að breyta dönsku kirkj-
unni og las mikið biblíuna, rit Lúthers og
sálma Kingos, og vakti við það dag og
nótt. Það varð úr, eftir mikla reynslu og
þjáningar, að Grundtvig gerðist aðstoðar-
prestur föður síns í maí 1811.
Árið 1822 var Grundtvig kallaður tií
embættis í Kaupmannahöfn og gekk þar
á ýmsu fyrir honum og er of langt að
rekja þá sögu hér. Hann eignaðist örugga
fylgjendur og svarna andstæðinga, eins og
oftast vill verða, þegar um mikilmenni og
mikla áhugamenn er að ræða. Hann skrif-
aði ódauðleg verk, þýddi og samdi ara-
grúa af sálmum og varð stórmenni í orðs-
ins fyllstu merkingu. Hann barðist fyrir
frelsi innan kirkjunnar og helgaði henni
mikið af starfskröftum sínum. Hann helg-
aði og mjög krafta sína lýðháskólahug-
sjóninni og trúði því, að slíkir skólar yrðu
dönskum æskulýð til mikillar blessunar,
gerði þann færan um að tileinka sér í rík-
um mæli andleg verðmæti. Sálmar hans
hljóma í dönsku kirkjunum og skoðanir
hans á kirkjumálum eignuðust mikil ítök í
mönnum, en danski lýðháskólinn hefir
hlotið virðingu allra, sem þekkja menn-
ingargildi hans.
N. F. S. Grundtvig andaðist 2. septem-
ber 1872.
Þorbergsson, útvarpsstjóri. Skúli Skúlason, form.
Blaðamannafél. Islands. Ásmundur Guðrnundsson,
próf., form. Prestafélags Islands. Helgi H. Ei-
ríksson, forseti Landssamb. iðnaðarmanna. Guð-
geir Jónsson, forseti Alþýðusamb. Islands. Valtýr
Stefánsson, ritstjóri Morgunblaðsins. Sigurður
Guðmundsson, ritstjóri Þjóðviljans. Þórarinn Þór-
arinsson, ritstjóri Tímans. Iíristinn Stefánsson,
stórtemplar. IMagnús Pétursson, héraðsl., form.
Læknafél. Isl. Daníel Ágústínusson, ritari sam-
bandsstj. U. M. 1. Steindór Steindórsson, form.
Akureyrardeildar Norræna félagsins. Jakob Jóns-
son, prestur. Garðar Svavarsson, prestur. Helgi
Tómasson, dr. med. Itristján Guðlaugsson, ritstj.
Vísis, form. M. F. 1. Ben. G. Waage, forseti 1. S. 1.
Páll S. Pálsson, form. Stúdentaráðs. Gisli Sveins-
son, forseti sameinaðs alþingis. Haraldur Guð-
mundsson, form. þingfl. Alþýðufl. Óiafur Thors,
form. Sjálfstæðisflokksins. Sigurður Sigurðsson,
form. Rauða kross Islands. Guðmundur Ásbjörns-
son, forseti bæjarstjómar Rvíkur.. Magnús Jóns-
son, próf., form. Utvarpsráðs. Jakob Kristinsson,
fræðslumálastjóri. Sigrurður Guðmundsson, skóla-
meistari, Akureyri. Ingimar Jóhannesson, form.
Sambands ísl. barnakennara. Hallgrímur Bene-
diktsson, form. Verzlunarráðs Islands. Tómas
Guðmundsson, form. Bandalags ísl. listamanna.
Stefán Pétursson, ritstjóri Alþýðublaðsins. Aml
Jónsson frá Múla, ritstjóri Islands. Bjami As-
geirsson, form. Búnaðarfélags Islands. Kjartan
Thors, form. Landssamb. isl. útvegsmanna. Ragn-
hildur Pétursdóttir, form. Kvenfélagasamb. Is-
lands. Bjarni Jónsson, vígslubiskup. Kristján
Jónsson, form. Isafjarðardeildar Norræna félags-
ins. Jón Thorarensen, prestur. Ami Sigurðsson,
frikirkjuprestur. Gunnlaugur Einarsson, læknir.