Vikan - 16.03.1944, Side 9
VIKAN, nr. 11, 1944
9
Einkennileg' byssa. Hér er verið að handleika
og gefa upplýsingar um nýja byssutegund, sem
er all-einkennileg útlits.
I.andgöngusveitir. Þetta eru landgöngusveitir Ný-Sjálendinga að ganga á land á Gulleyjunni í
Kyrrahafinu, til þess að hrekja Japana þaðan.
Stórir sltriðdrekavagnar. Þessir nýju vagnar eru not-
aðir til að flytja hina þungu skriðdreka á aðalorustu-
svæðin, svo að þeir komi þangað ,,kaldir“ og með
nógu eldsneyti. Burðarvagnarnir eru 58 feta langir
og vega um 40 tonn; þeir eru vopnaðir byssum til
að verjast árásum bæði af jörðu og úr lofti og eru
útbúnir öðrum hergögnum og vistum ti) fjögra daga.
Brezkir hermenn f Bandaríkjunum.
Þessi mynd var tekin, þegar verið
var að bjóða velkomna í New York
350 menn úr brezku loftvarnaliði.
Þeir fóru vestur til þess að sýna
foringjum ameríska hersins aðferðir
sínar og útbúnað.
G6ð kýr! Þetta er verðlaunakýr frá
Kalifomíu, sem gaf í bú eigandans
1100 pund af smjöri á 350 dögum!
„Flugfiskar" eru þau kölluð þessi tundurskeyti, sem notuð eru aí:
flugvélum Bandaríkjaflotans. Hver „flugfiskur" kostar 75.000 kr.