Vikan - 16.03.1944, Síða 10
10
VTKAN, nr. 11, 1944
nmu m.!
& i iii i h. b y i
i
1 m
m
m
!■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■•■■■■•■■■■■•■■■■••■■■■■■
Matseðillinn
Steiktir kjúltlingar.
2—4 kjúklingar, smjör, péturs-
selja, salt, 1 dl. jurtaseyði, 2
dl. mjólk, % dl. rjómi, 20 gr.
hveiti, sósulitur, ef með þarf.
6—8 vikna gamlir kjúklingar eru
góðir, en beztir eru þeir 4—5 mán-
aða. Þeir eru hreinsaðir vel og þerr-
aðir með hreinum klúti, fylltir með
ofurlitlu af smjöri og pétursselju, sem
tekin hefir verið af stilkunum og
skoluð úr köldu vatni. Kjúklingamir
Síðan saumaðir saman og brúnaðir í
potti, sjóðandi jurtafeiti hellt yfir þá
og soðnir við hægan eld í 1 klst.
Hveitið er jafnað með rjómanum og
hrært út í seyðið af kjúklingunum,
salt og sósulitur eftir smekk. Kjúkl-
ingarnir eru skornir í sundur, áður
en þeir eru framreiddir og nokkru af
sósunni hellt yfir þá á fatinu. Pram-
reiddir með brúnuðum kartöflum,
salati, sósu og berjahlaupi.
Aprikósubúðingur.
100 gr. aprikósur, 3 dl. vatn,
50 gr. sykur, 3 bl. matarlim,
1 dl. rjómi, 1—2 eggjahvítur.
Aprikósumar eru þvegnar og lagð-
ar í bleyti í 3 dl. af vatni yfir nótt-
ina. Soðnar í vatninu, sem þær hafa
legið i bleyti í, þar til þær eru alveg
komnar i mauk. Nuddað gegnum
gatasigti. Sykur látinn í eftir smekk
og matarlímið, sem lagt hefir verið
í bleyti, er hrært saman við. Þegar
þetta er alveg kalt og byrjað að
þykkna, er hinum stífþeyttu hvítum
blandað saman við. Hellt upp í skál
og skreytt með þeyttum rjóma, áður
en borðað er.
Húsráð.
Osturinn harðnar ekki eins fljótt,
ef þér smyrjið dálítið smjör á þá
hlið, sem skorið er af.
Tízkumynd
Þessi snotri kjóll er úr rauðgulu
ullarefni. Hálsmálið, sem er eins og
U í laginu, er mjög í tízku núna.
Svartar perlur, sem eru í kringum
hálsmálið, setja svip á kjólinn.
Ef þér búið til búðinga, sem ekki
þarf að sjóða, er þægilegast að búa
þá til í könnu og hella síðan beint í
smáskálamar.
I Nýja ameríska sápan i
f er handsápa hinna
vandlátu.
t
%
F æ s t v í ð a.
Öruggasta og —
bezta hanil|)vottael'nið.
Kiæðnaður getur haft áhrif á líð-
an manna alla og líkamsburð. Á það
ekki sízt við um skófatnað. Allar
hreyfingar verða að vera óhindraðar
af fötum, ekki sízt öndunarhreyfing-
arnar. Lífstykkin, sællar minningar,
voru andstyggilegar flíkur og eiga
vonandi aldrei afturkvæmt. Þegar
axlabönd eru notuð til þess að bera
uppi fatnað, þurfa þau helzt að vera
breið og liggja eins nálægt hálsinum
og kostur er. Hvíli þunginn yzt á
öxlunum, hættir þeim til að togast
fram og niður. Sérstaklega ber að
hafa gát á þessu hjá börnum og
óhörðnuðum unglingum. Sama máli
gegnir um yfirhafnir og aðrar þung-
ar flíkur. Þær eiga að vera sniðnar
þannig, að þunginn hvíli jafnt á, en
liggi ekki allur úti á axlarliðnum.
Einnig verður bakið á flíkinni að
vera það beint, að kraginn hvíli ekki
þungt aftan á hálsinum og ýti hon-
um fram. Reyni menn mikið á fæt-
urna, sér I lagi við stöður, hættir
þeim við ilsigi. Minnkar þá fjaður-
magn í ganginum, og limaburður
verður allur þunglamalegur. Mikið
má gera til þess að fyrirbyggja ilsig
með heppilegum fótabúnaði. Skórnir
þurfa að vera vel langir, rúmir um
tærnar, hælkappinn svo þröngur, að
hann liggi að hælnum, og skórinn svo
þröngur yfir háristina, að hann festi
fótinn aftur og niður i skóiðn við
reiminguna, láilin þarf að vera stinn,
hællinn með breiðum gangfleti og
ekki of hár. Nú eru fætur með
ýmsu lagi, sumir stuttir og gildir,
aðrir langir og grannir. Leiðir af
því, að skór þurfa að vera misvíðir,
þótt jafnlangir séu, enda framleiða
skóverksmiðjur fleiri en eina vídd —
að jafnaði þrjár — fyrir hverja lengd
og gerð. Fái einhver ekki mátulega
víða skó, ef lengdin er hæfileg, ætti
hann að biðja skókaupmann sinn um
næstu vídd fyrir ofan eða neðan, eftir
því sem við á, en kaupa ekki of
stutta skó, ef rétta lengdin er of
víð, eða of langa, ef hún er of þröng.
Þó að skólatöskur barna teljist
ekki til klæðnaðar, má vel minnast
á þær hér, því að þær geta gert sitt
til þess að skekkja vöxtinn. Skárstar
MILO
eru þær, sem bomar eru á bakinu í
silum, eins og venjulegir bakpokar,
hinar, sem bomar eru í ól yfir aðra
öxlina, eru mun lakari, svo og þær,
sem bornar eru í eða undir hendinni.
Bætir það ekki um, að venjulega em
töskumar bornar í sömu hendi eða á
sömu öxl. Enn verður að hafa gát á
því, að töskurnar séu ekki of þungar.
Mörgum börnum hættir við að fylla
töskur sínar af alls konar bók rm og
dóti, sem ekki kemur skólanu.-n við,
eða þau þurfa að minnsta kosti ckki
að nota á hverjum degi. Ætti að
gæta þess, að bömin hefðu ekki
meira í töskum sínum en nauðsyn
krefur.
Úr „Heilsurækt og mannamein“.
Skrautlegur klæðnaður.
Silfurplett
Borðbúnaður
6 hnífar
6 matskeiðar
6 gaflar
6 teskeiðar
24 stk. á kr. 104,85.
Sendum gegn póstlíröfu.
■JLi v e rp a a