Vikan


Vikan - 27.07.1944, Page 15

Vikan - 27.07.1944, Page 15
15 VJKAN. nr. 30, 1944 Kvenréttindafélag íslands. Frainhald af bls. 7. því verða ekki raktar hér nema aðaltillag- an, sem felur í sér flestar hinar: „Landsfundur íslenskra kvenna gerir þá kröfu fyrir hönd íslenzkra kvenna, að jafnrétti karla og kvenna sé tryggt sérstaklega í stjórnarskránni, og tekið fullt tillit til aðstöðu konunnar sem móðir.“ Samþykkt samhljóða. Þessi málalok sýna einlægan vilja kvenna til þess að taka á sig þjóðfélags- lega samábyrgð í hinu unga lýðveldi okk- ar og líka, að þeim er alvara að þola ekki lengur að réttur kvenna sé fyrir borð bor- inn og þeirra ráð ekki að neinu höfð í þjóðfélagsmálum. Við ætlum ekki að búa til neinn sérstakan kvennaflokk, en með samvinnu kvenna allra flokka á að tryggja framgang sameiginlegra áhugamála. Við verðum að eiga kvenfulltrúa á Alþingi og konur verða að vera í fræðslunefndum og eiga sæti í hinum ýmsu nefndum og stjórn- um, sem fjalla um sveita- og bæjamál. — Jafnréttið er enn meira í orði en á borði, það sézt bezt þegar litið er á atvinnu- og launamál kvenna. Um þau var haldinn ágætur fundur með 16 ræðukonum og var fullt hús í Iðnó á björtu júníkvöldinu. Fundinum var sýnd margskonar velvild, sem ég vil þakka: Alþingi veitti f járstyrk, háskólinn lánaði hús endurgjaldslaust, borgarstjóri Reykjavíkur gerði fundinum þann mikla greiða að halda á Þingvöllum ágætlega fróðlegt erindi um stjórnar- skrána og bauð fundarkonum í veizlu, fyr- ir hönd Reykjavíkurbæjar, en kvenfulltrú- ar bæjarstjórnar stjóínuðu henni. Forseta- frú íslands og Forsetinn sýndu fundinum' þann sóma að bjóða fundarkonum til| Bessastaða og veittu þeim þar svo góðarj viðtökur, að seint mun gleymast þeim, sem; nutu. Allur var fundurinn ógleymanlegur á þann hátt sem ekki er hægt að lýsa, því að hin sama glaða trú og einlægni ein- kenndi hann eins og sjálfa fullveldishátíð- ina. Vil ég fyrir hönd K. R. F. I. þakka öllum fulltrúum og fundargestum, sem stuðluðu að því, hve vel þessi fundur tókst, og gerðu sumir sér ferð til þess langar leiðir. Og seinast en ekki sízt vil ég þakka; öllum þeim konum í Kvenréttindafélaginu í Reykjavík, sem unnu að undirbúningi fundarins. Nú er það hlutverk Kvenrétt- indafélagsins og stjórnar og fulltrúaráðs að stuðla að því, að vonir fundarkvenna um hina fyrirhuguðu samvinnu megi ræt-; ast. ^ j Laufey Valdimarsdóttir. Tilkynning Að gefnu tilefni skal það tekið fram, að öll umferð óviðkomandi manna um sorphauga bæj- arins á Eiðisgranda og allur brottflutningur þess, sem á haugana er kastað, er bannaður. Allir, sem flytja sorp á haugana, skulu snúa sér til varðmannsins, áður en þeir losa af bíl- unum. Reykjavík, 21. júlí 1944. Heilbrigðisfulltrúinn. 4I11IÍI1IIII11II1III11IÍ1I1IIÍ11II1III[II1I1III1I1I11!1IIIIII11I11I1I1IIIIIII111II11IIII1I1I1II1ÍI11IIÍ NEISTI Laugavegi 159. Framkv.stj.: Jón Sveinbjörnsson, vélstj. Framkvæmir aJlskonar: vélaviðgerðir rafmagnssuðu og rennismíði. Einnig málmsteypu. Áherzla Iögð á vandaða vinnu. Kraftbrauðin okkar eru beztu og hollustu brauðin sem eru fáanleg. Trygging fyrir því, að þau séu góð, er sú að Jónas Kristjánsson læknir fylgist með tilbúning þeirra. 4 Seljast eins og áður í öllum matvöruverzl- unum KRON. I Reynið þessi brauð, og þér munuð sannfærast. f.h. Sveinctbakarísins • Karl Þorsteinsson. Sumar á fjöllum \ Hvort sem þér dveljið í bænum eða farið í sveit, þá hafið þér ánægju af að lesa skemmtilega bók. En Sumar á f jöllum er skemmtileg bók og þó fróðleg. Lesið bókina og sendið hana vinum yðar. Bókaverzlun ísafoldar og útibú, Laugavegi 12.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.