Vikan - 07.09.1944, Qupperneq 2
2
YIKAJNF, nr. 36, 1944
Pósturinn \ m
Loiðrétting.
Sú villa hefir slæðzt undir eina
myndina í greininni „Söngstjóri aust-
an hafs og vestan", að þar hefir
fallið burt nafn Guðlaugar Magnús-
dóttur. Myndin er á þriðju síðu (Vik-
an nr. 35, 31. ágúst) og er af kóm-
um, sem söng við móttöku Friðriks
áttunda 1907 i Alþingishúsinu. 1
þriðju línu að neðan á Guðlaug
Magnúsdóttir að koma inn á undan
„Elin Laxdal (einsöngvari)“. — Þess
hafði og láðst að geta, að greinin
var, með leyfi höfundar, tekin upp
úr tímaritinu „Heimir".
Kæra Vika!
Geturðu sagt mér hvaða maður
Sókrates var? S. S.
Svar: Sókrates var grískur stjóm-
málamaður og kenndi mælskulist í
Aþenu, hann var uppi 436—338 f. Kr.
Kæra Vika!
Ertu ekki ákaflega fljót að svara?
Ég fór á „bíó“ í gær og sá mynd um
skáldið Edgar Poe. Ég skil illa ensku,
þegar hún er töluð, þó ég skilji hana
sæmilega á bók, ég hefi nefnilega
ekki verið í „bransanum" (og ætla
mér ekki að fara í hann!), en nú er
ég farinn að skrifa, eins og ég skrifa
vinstúlkum mínum og svoleiðis má
ég ekki skrifa Vikunni. Mig langar
svo að vita meira um þennan Poe.
Lifandi ósköp var ég hrifin af hon-
um, þegar hann las kvæðið og prent-
aramir hlustuðu á og litli drengur-
inn þakkaði honum fyrir og sagði, að
það væri dásamlegt. Það skildi ég.
Og svo hljóp drengurinn á eftir hon-
um með peningana, sem prentaram-
ir höfðu skotið saman, af því að rit-
stjórinn vildi ekki taka kvæðið, en
kona skáldsins lá fyrir dauðanum.
Þetta var svo fallegt. Svona myndir
vil ég sjá. Getur verið að þetta kvæði
sé til á íslenzku ? Mikið væri gaman
að sjá það. 19 ára stúlka.
Svar: Um Edgar Allan Poe mætti
skrifa Iangt mál, en það verður ekki
gert hér. Hann var fæddur í Norður-
Ameríku 19. jan. 1809 og dó 7. okt.
1849, svo að ekki varð hann gamall
maður, þótt hann afkastaði ótrúlega
miklu um æfina. Hann var kominn
af fátækri, enskri ætt. Móðirin var
leikkona og Poé átti systur, sem dó
geðveik. Sjálfur var hann taugaveikl-
aður og tilfinninganæmur drengur,
var tekinn í fóstur af skozkum kaup-
manni, er Allan hét. Þegar Poe var
stúdent, eyddi hann svo miklum pen-
ingum, að Allan lét hann fara að
vinna á skrifstofu árið 1827, en það-
an flýði Poe og gerðist hermaður.
Fyrstu kvæði hans komu út 1828 og
annað safn 1831, en sögur sínar gat
hann ekki fengið prentaðar, og það
er sagt, að í nokkur ár hafi hann
þjáðst af skorti. 1835 varð hann rit-
stjóri tímarits og kvæntist ári síðar
14 ára gamalli frænku sinni, Virginiu
Clemm. Hún var brjóstveik. Hana
missti Poe 1847 og þá var þrek hans
að þrotum komið. Hann neytti eitur-
lyfja og varð ákaflega duttlungafull-
ur. 1849 hafði hann verið í fyrir-
lestraferð og unnið sér nokkuð mikið
inn, er hann í október kom til Balti-
more. Þar fannst hánn meðvitundar-
laus á götu og var fluttur á spitala
og dó þar, án þess að koma til sjálfs
sín. — Edgar Allan Poe er eitt af
merkilegustu skáldum heimsins, sum
kvæði hans, eins og til dæmis „Hrafn-
inn“, sem hann var látinn lesa i kvik-
myndinni, eru sígild listaverk, en þó
er hann enn frægari fyrir sögur sínar
og talinn „faðir" leynilögreglusagna
nútímans. Einar Benediktsson hefir
þýtt „Hrafninn" á íslenzku, og fleiri
munu hafa gert það, en slíku l'sta-
verki er örðugt að ná í þýðingu.
„Hrafninn“ er í fyrstu bók Einars:
Sögur og kvæði.
Kæra Vika!
Viltu reyna að segja okkur, hvað
er norðurlandamet og heimsmet í 100
metra hlaupi og hverjir það voru,
sem settu þau? Er ekki sænski mað-
urinn Gunder Hágg heimsmeistari í
einhverjum hlaupum?
Tveir drengir.
Svar: Úr „Árbók frjálsíþrótta-
manna" fyrir árið 1944 höfum við
eftirfarandi upplýsingar: Norður-
landamet í 100 m. hlaupi er sett af
Svíanum Lennest Strandberg 1936 og
er 10,3 sek. Heimsmet í 100 m. hlaupi
er sett af Bandarikjamanninum Jesse
Owens 1936 og er 10,2 sek. Gunder
Hagg á heimsmet í 3 og 5 km. hlaup-
um og sétti þau 1942.
Þessi föðurlandssinnaða hæna hefir
e.nungis verpt eggjum, sem eru eins
og sprengjur í lögun, síðan striðið
hofst.
•2
Vöruhúsið
Vöruhúsið
Laugaveg 22 (Inngangur frá Klapparstíg).
*
2
v
V
V
V
S
Laugaveg 22 |
(Inngangur frá Klapparstíg).
*
v
Höfum eins og að undanförnu allar beztu fáan- $
legar vörur svo sem:
Vcínaðarvörur allslconar.
Nærfatnað allskonar.
Byk og Regnfrakka
fyrir börn og fullorðna. '§
Karlmannaföt.
Karlmannafrakka.
Skyrtur.
Hattar o. fl.
>;<
9
2
v
V
V
2
v
o
2
V
s
Vélaverkst. Sigurdar Sveinbjörnssonar \
Skúlatúni 6. Sími 5753. Reykjavík.
FRAMKVÆMIR:
Ilverskonar v.iðgcrðir á bátamótorum
og bílamótorum, cinnig viðgcrðir og
uppsetningar á vcrksmiðjuvcimn.
SMlÐUM ENNFREMUR:
Ilolsteinamót.
Körstcypumót.
lskvarnir. , '
Síldarflökunarvélar.
Rafgufukatla
o. fl.
Vélaverkstœði
Sig. Sveinbjörnssonar
Sími 5753.
Útgefandi: VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Kirkjustræti 4, sími 5304, pósthólf S65.