Vikan - 07.09.1944, Qupperneq 10
10
VIKAN, nr. 36, 1944
utimn m
n K IIII ■ l i v
Samtal við drengi.
Matseðillinn
Steikt lifur.
2 pund lifur, 25 gr. hveiti, 150
gr. smjör, 2—3 pelar kjötsoð. 4
laukar, salt, hveiti og pipar til
þess að velta lifrinni í, matar-
litur.
Lifrin er þvegin, himnur og sinar
teknar af, skorin í fínar, þunnar
sneiðar, velt upp úr hveiti með dá-
litlum pipari. Steikt á pönnu ljós-
brún og sett upp i fat. Soðið er lát-
ið i pott ásamt ofurlitlu af matar-
lit og salti. Þegar sýður er sósan
síuð og jöfnuð með hveitinu, sem
áður er þynnt út í köldu vatni. Soðið
hægt í 5—6 mínútur. Þá er lifrin
látin í og fínt brytjaður, brúnaður
laukur. Þetta allt er soðið hægt i
5 mínútur. Soðnar kartöflur bomar
með.
Bláberjasúpa.
2 lítrar vatn. 250 gr. bláber. 125
gr. sykur. 40 gr. kartöflumél,
jiálítið salt.
Bláberin eru skoluð vel, sett yfir
eldinn í köldu vatni og soðin í 30
mín. Þá er þeim hellt í gatasíu. Pott-
urinn skolaður innan, súpan mæld i
hann aftur og síuð i gegnum fína
feiu; sett yfir eldinn ásamt sykri og
salti, og þegar sýður er súpan jöfn-
uð með kartöflumjölinu, sem áður
er hrært út með köldu vatni. Munið
að kartöfluméi má ekki sjóða.
III. Ávaxtahiaup.
2. Krækiberjahlaup.
Krækiber 1500 gr., vatn 750
gr., sykur 1400 gr., PECTINAL
1 pakki.
Að öðru leyti er krækiberjahlaup
búið til eins og bláberjahlaup.
Tízkumynd
Þessi snotri kjóll er úr dökkbiáu
ullarefni. Blússan er hneppt að fram-
an og á beltinu eru einnig hnappar.
Tveir stórir vasar eru á pilsinu.
Kjötfars ber að geyma með sér-
stakri varúð. Geymið það í lokuðu
íláti og á köldum stað, bezt í ísskáp.
Fjórum dögum eftir að lýðveldis-
hátíðir höfðu farið fram viða um
land, var ég staddur í all-stórum
kaupstað úti á landi. Um morgun-
inn varð mér gengið um bæinn til
þess að skoða hann og hitti þá tvo
drengi niður við sjóínn. Þeir hafa
líklega verið átta til tíu ára gamlir,
geðugir strákar og ekki ógreindar-
legir.
Komstu ríðandi? spurði annar
drengurinn. Ég var þannig klæddur.
Nei, svaraði ég og vár ekkert á
móti því að tala við drengina. Það
er alltaf fróðlegt að heyra, hvað
æskulýðurinn segir. Ég kom gang-
andi yfir fjallið. Það er svo mikill
snjór á því, að bílamir komast ekki
ennþá.
Hvaðan varstu að koma? spurði
hinn drengurinn.
Frá Rafnseyri, svaraði ég. Þar
voru mikil hátíðahöld 17. júní.
Af hverju? spurði annar drengur-
inn.
Þar fæddist Jón Sigurðsson 17.
júní 1811.
Hvaða maður var það? spurði
hinn.
Hafið þið aldrei heyrt hann nefnd-
an?
Nei, svöruðu báðir drengimir í
einu.
Ég reyndi að segja þeim frá því
með nokkrum orðum, hver Jón
Sigurðsson var, og hvers virði hann
var og er þjóð sinni. Þetta var
sundurlaus og ófullkomin fræðsla og
efalaust illa flutt, en drengirnir
hlustuðu á hana með athygli og
spurðu margs, eins og t. d., hvort
hann hefði verið prestur eða kann-
ske skipstjóri, og af hverju hann
hefði verið svona mikið í útlöndum,
fyrst honum þótti afskaplega vænt
um landið sitt; hvort það væri ekki
fallegt á Rafnseyri; hvort húsið, sem
Jón Sigurðsson fæddist í væri ennþá
til; hvort margt fólk hefði verið á
hátíðinni þar.
„Ó hvað það hefði verið gaman að
vera 17. júní, þar- sem þessi mikli
maður fæddist og átti heima, þegar
hann var lítill," sagði annar dreng-
urinn og hrifning skein úr svip hans.
Þegar ég gekk frá drengjunum,
rétti annar þeirra mér höndina og
sagði:
„Þakka þér. fyrir og vertu sæll.“
Þá kom hinn Uka, heldur feimnari,
og gerði það sama.
Mér þótti gott að taka í höndina
á þessum litlu drengjum, þótt mér
þætti leiðinlegt, að þeir vissu ekkert
um Jón Sigurðsson.
Þegar ég gekk frá drengjunum,
fór ég að hugsa um þetta.
Undanfama daga, og reyndar
vikur, hafði mikið verið rætt og rit-
að um lýðveldisstofnunina og Jón
Sigurðsson. Blöðin höfðu flutt marg-
ar greinar um þetta efni og mikið
hafði verið klifað á því i útvarpinu
— og samt vissu drengimir ekkert
um það. 1 hverju lá þetta? Vom öll
ljóðin um Jón Sigurðsson æskulýðn-
um dauður bókstafur? Var aldrel
minnst á „þjóðhetjuna" á heimilun-
um?
Lá ekki einmitt þar fiskur undir
steini ?
Þarna er verkefni, sem heimilin
mega ekki vanrækja. Jón Sigurðsson
á að vera lifandi með allri þjóðinni.
Jón Sigurðsson er íslenzkt mikil-
menni, hin dásamlegasta fyrirmynd
æskulýðnum. Fræðslan um hann á
að byrja strax, þegar börnin fara
að hafa vit á að hlusta. Efnið er
mikið og fjölskrúðugt. Jón var snill-
ingur, afburðamaður á mörgum svið-
um. Þjóðin þekkir hann ekki nærri
nógu vel, verk hans, og hvernig hann
brást við hinum ólíkustu viðfangs-
efnum. Það þarf að kenna börnun-
um kvæði um hann, og það eiga að
vera góðar myndir af honum á heim-
ilunum.
Þeim fræum, sem sáð er úr hinum
auðuga gróðurreit Jóns Sigurðsson-
ar í sálu barnanna, verður aldrei á
glæ kastað. Þau munu alls staðar
bera einhvern ávöxt.
Munið, að
Það er ósiður — ófagur og óheilsu-
samlegur — að sleikja blýantinn
áður en maður notar hann.
Husmœður! Sultutíminn er kominn!
Tryggið yður góðan árangur af fyrirhöfn yðar. Varð-
veitið vetrarforðann fyrir skemmdum. Það gerið þér bezt
með því að nota
BETAMON, óbrigðult rotvarnarefni.
BENSONAT, bensoesúrt natrón.
PECTINAL, Sultuhleypir.
VlNEDIK, gerjað úr ávöxtum.
VANILLETÖFLUR.
VÍNSVRU.
FLÖSKULAKIÍ í .plötum.
ALLT FRÁ
CHEMIAh/f
Fæst í öllum matvöruverzhinum.
nuiluniMtt áim rfiun uiuimi
AHir vita að
GERBER’S
Barnamjöl
hefir reynst bezta og
bætiefnáríkasta fæða,
sem hingað hefir flutzt
Fæst í
Verzlun
Theódór Siemsen
Sími 4205.
NB. Sendi út um land gegn
póstkröfu. —