Vikan


Vikan - 10.01.1946, Side 2

Vikan - 10.01.1946, Side 2
2 VIKAN, nr. 2, 1946 Pósturinn Hcimilisblaðið Vikan Reykjavik. Ég þakka mj ög innilega fyrir svarið við bréfinu hennar Maggí og sendi yður því hér með kr. 25,00 og viðurkenni þar með tap veðmálsins. Yðar einl. Dúna. Svar: Þökkum bréfið. Peningana sendum við í Vinnuheimiiissjóð S. 1. B. S. Kæra Vika! í>ú sem leysir ailar hugsanlegar spumingar mjög greiðlega. Gætir þú sagt mér eitthvað um leikkonurnar Jinx Falkenberg og Carmen Miranda t. d. fæðingardag og ár og ýmislegt fleira. Með fyrirfram þökk. Gulla. Svar: Jinx Falkenburg er fædd 21. janúar 1919 í Barcelona. Hún heitir réttu nafni Eugenie. Er 124 pund að þyngd, 5 fet og 7 þuml. há. Hún er mjög vinsæl fyrir það, hve blítt hún brosir. Carmen Miranda er fædd í Portu- gal árið 1914 og heitir réttu nafni Mario da Carmo da Cunha. Hún stundar fjölmargar íþróttir. Er 5 fet og 2 þuml. há og er 98 pund að þyngd. Kæra Vika! Viltu vera svo góð að birta fyrir okkur eftirfarandi: Við undirritaðir óskum að komast í bréfasamband við stúlkur á aldrin- um 15—17 ára hvar sem er á landinu óskum helst að mynd fylgi bréfinu. Guðjón ólafsson, Vesturgötu 94. Akranesi. Leifur Sigurðsson, Vesturgötu 17. Akranesi. Kæra Vika! Ég sé að þú svarar öllu fljótt og vel, sem þú ert spurð að, og nú lang- ar mig að biðja þið að segja mér dálítið. Ég er að byrja að læra í gagn- fræðaskóla hérna í bænum og geng- ur illa í starfræði. Þess vegna býst ég við að kaupa mér aukatíma í reikningi. Nú langar mig að spyrja þig: 1) Hvar er hægt að fá slíka kennslu ? 2) Hvað kostar hún um klukkutímann ? 3) Hjálpar kennar- inn mér með skóladæmin min eða setur hann mér sérstaklega fyrir? Mér þætti vænt um, ef þú vildir svara þessu án þess að birta bréfið. Vonast eftir svari í næsta blaði. Ég þakka þér svo fyrir alla ánægjima, sem þú hefir veitt mér. Vinsamlegast, þinn Skóladrengur. Svar: Kennslu er hægt að reyna að fá á þann hátt að auglýsa í einhverju blaði eða leita upplýsinga hjá upp- lýsingaskrifstofu stúdenta, þar mun og hægt að fá upplýsingar um kennslugjald. Þú munt sjálfsagt geta komizt að samkomulagi við væntanlegan kenn- ara um kennslutilhögun. Við sjáum ekki ástæðu til annars en að birta bréfið, fyrst við svörum því. Kæra. Vika! Þú, sem allt veizt, getur þá alltaf sagt mér, hvaða maður Pablo Ríuz Picasso er. Með fyrirfram þökk. Þinn labbakútur. Svar: Pablo Ruiz Picasso er fædd- ur 1881 í Maiaga á Spáni. Hann er tallnn höfundur stefnu þeirra í mál- aralist, sem kölluð er kubismi. Húsmóðirin við nýja þjóninn: — „Þér voruð þá hjá doktor Thorsen, áður en þér komuð hingað. Hvemig er hann?“ Þjónninn: „Ég veit ekki, frö Hem- berg. Hann var úti, þegar ég byrjaði og var ekki kominn heim, þegar ég hætti." IÚtvegum LOFTHITARA, 1 allar stærðir. if Hitararnir settir í samband við i miðstöðvarhitun bygginganna. ; HAMAR H.F. Frægir kvikmyndaleikarar. að rekja til fransks miðstéttarfólks. Hann lagði mikið kapp á að kynna sér leiklist og eðli hennar og segir, að leikari geti lært að þekkja lífið Hedy Lamar Ieikur i kvikmyndinni „Samsærismenn," sem sýnd var hér fyrir skömmu. Hún heitir réttu nafni Hedwig Eva Maria Keisler og er fædd í Vín, dóttir mjög auðugra for- eldra. Hún þykir ákaflega fögur kona og er þrígift. Fyrsti maður hennar var Fritz Mandel austurískur vopna framleiðandi. Annar maður hennar var Gene Markey og nú er hún gift John Loder. Hún er alþýðleg og vin- gjarnleg og hefir mikla ánægju af börnum. Charies Boyer leikur I kvikmynd- inni „Hið dygga man,“ sem sýnd var hér fyrir skömmu. Hann á rót sína með því einu móti að lifa því. Hann er talinn einhver vinsælasti og bezti leikari, sem upp hefir verið. Hann les allt milli himins og jarðar og stundar margskonar íþróttir. Góð rœða. Nýi presturinn: — „Hvernig þótti yður ræðan hjá mér á sunnudaginn?" — Agæt, prestur minn. Agæt og mjög uppfræðandi. Við hérna vissum alls ekki, hvað synd var fyrr en þér komuð hingað." Höfum jafnan fyrirliggjandi og útveg- um með stwttum fyrirvara flestar fá- anlegar vörur frá Englandi og Norður- löndum. Olvir h.f. Umboðs- og heildverzlun Sími 6444 Otgefandi: VIKAN H.F., Reykjavlk. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365. I

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.