Vikan


Vikan - 10.10.1946, Side 13

Vikan - 10.10.1946, Side 13
VIKAN, nr. 41, 1946 13 Happdrættismiðinn. BARNASAGA eftir Trolli Neutzsky Wulff. LISELOTTE hafði leikið sér lengi við Gerðu, dóttur smiðsins, þegar henni flaug í hug að það vœri drykk- löng stund síðan Kaja hefði komið með þau skilaboð til hennar, að hún ætti að fara í sendiferð til þorpsins fyrir pabba sinn. Nú varð hún hrædd við þær afleiðingar, sem þetta hirðu- leysi hennar kynni að hafa í för með sér, og þaut af stað, svo að ljósu fléttumar stóðu beint út í loftið. Til allrar hamingju rakst hún fyrst á mömmu sína, þegar heim kom. „Hefir pabbi beðið lengi,“ spurði telpan lafmóð. „Það held ég ekki; Jakobsen hrossakaupmaður kom til hans um leið og Kaja var farin til að kalla á þig. En vertu heima við — þú átt vist að fara til þorpsins, til að kaupa eitthvað fyrir hann.“ „Er það — þessi andstyggilegi og feiti hrossakkupmaður ? “ sagði Lise- lotte óiundarlega, „hvað er hann að gera hingað aftur?“ „Þú veizt, að faðir þinn á í við- skiptum við hann,“ svaraði frú Brandt og var bæði þreytuleg og kviðin á svipinn, eins og hennar var vani. „En hann er samt viðbjóðslegur," sagði telpan þrjózkulega. Skömmu síðar bættí hún við: „Er það satt, sem mér hefir verið sagt — að pabbi skuldi honum peninga?'1 „Þú átt ekki að hlusta. á slúðui !" sagði frú Brandt ávitandi. „Hlauptu nú út og leiktu þér, en farðu ekki út úr garðinum." En nú langaði Liselottu ekki lengur til að leika sér. Orð móður hennar höfðu ekki róað hana. Hljóð læddist hún út til Óla fjósamanns, sem var að lagfæra nokkur tjóðurbönd, og stóð hún hjá honum og rabbaði við hann. Skömmu síðar sá hún pabba sinn og hrossakaupmanninn koma út úr einu útihúsinu og ganga að bílnum, sem beið á hlaðinu. Sorg og reiði telpunnar braust út að nýju, þegar hún sá, hvað faðir hennar sýndist hnugginn og lítilmótlegur við hlið breiðmjmnta hrossakaupmannsins, sem talaði svo hátt að undir tók í öllum bænum. „En þetta verður siðasti fresturinn, Brandt," sagði hann hátt, „ég get ekki lifað á loforðum yðar einum, og þar sem ég þarf á peningum að halda til fyrirtækis míns, er til einskis fyrir yður að segja að þér hafið ekkert til að greiða skuld yðar með. Þér verðið að hafa einhver ráð, já — þér skiljið við hvað ég á — jæja, en núna fer ég' að minnsta kosti og læt endumýja happdrættismið- ann!" Síðan ók hann burt í reykjarmekki, sem þyrlaðist upp af veginum. Brandt stóð og horfði á eftir honum; hann vissi, að hann hafði lent í klónum á blygðunarlausum peningaokrara, sem vissi ekki hvað miskunnsemi var. Og lengi hafði hann haft ágimd á Brxi . . En nú kom Liselotte, sem hafði heyrt samtalið, og spurði, hvort hún ætti að fara til þorpsins. „Já, þú átt að hjóla til Brugsen í Stómgötu og fá það, sem ég hefi skrifað í þessa bók.“ Þegar kona hans kom í sama bili út á tröppumar, hélt hann áfram: „Það varð úr að ég hélt miðanum, Edel. Annars var ég búinn að ákveða að láta hann verða ógildan, en nú eigum við Jakobsen hann í sameiningu. Hann fór sjálfur með hann til að láta endumýja hann." „Hvers vegna þurfti það endilega að vera hann, sem gerði það?" spurði frú Brandt, og var ekki laust við að hún væri gremjuleg í rómnum. „Mér hefir aldrei fundizt sá maður verða okkur til gæfu!" ast. Þegar Jan í sama bih kom út úr eldhúsinu, þaut hún til hans með blaðið. Jan var mjög hægur og var- kár að eðlisfari og vildi ekki rasa um ráð fram, en þetta stóð skýmm stöf- um, svo að hann sagði hóglega: „Þetta bjargar pabba og verðum við að sýna honum það strax." „En Jakobsen á að fá helminginn af peningunum, ef þeir ynnu — það sagði ég þér um daginn." „Það verður samt nóg eftir handa okkur," sagði Jan og hló glaðlega. Þennan dag var allt á öðmm end- anum á Brú. Þegar gleðilætin stóðu sem hæst, hringdi Jakobsen og það varð langt simasamtal, sem frú Brandt og börnin hlustuðu á. „.. já, þetta var einstök heppni," sagði Brandt hlæjandi, „einkum fyrir mig — hvað segið þér — kvittunina ? — jú, auðvitað hefi ég hana. Annars hélt ég ekki, að hún væri svona „Æ, það segir þú satt,“ andvarpaði hann, „ekki frekar en mjðinn. Við höfum átt þennan sama miða í tíu ár og aldrei unnið neitt á hann, og mér óar hálf við því, að fleygja svona hárri peningaupphæð til að endur- nýja hann. Það var Jakobsen, sem rak augun í hann á borðinu og bauðst til að greiða helming kostnaðarins og féllst ég á það." Hann rétti Liselotte miða, þar sem á var skrifað ýmislegt, sem vantaði til búsins, og skömmu síðar hjólaði litla stúlkan út um garðshliðið á gömlum, skröltandi hjólgarmi. Frú Brandt hristi höfuðið og hvarf afbur inn í eldhúsið; hún var að hugsa um börnin, sem voru að vaxa upp, og að það myndi verða erfitt úr þessu að leyna þau, einkum Liselotte, baslinu og skuldunum, sem foreldrar þeirra væru að berjast við. Það var Liselotte, sem náði fyrst i blaðið með happdrættisvinningunum, þegar pósturinn lagði það í gluggann. Hún leitaði nú áköf eins og hún var vön að gera. Hún rak upp hálfkæft óp — þama stóð númerið þeirra. Það hafði unnið — hundrað þúsund krónur!! Hún vissi ekki hvort hún átti að hlæja eða gráta — en þetta stóð greinilega í blaðinu og hér var ekki um að vill- áríðandi — mér finnst þetta vera samkomulag okkar á milli, en engin viðskipti, og ég hefi þar að auki átt miðann árum saman — já, og nú skal ég leita að honum------ Þegar hann hringdi af, sneri hann sér að fólkinu og sagði: „Mér er næst að halda að hann muni hafa af mér peningana, ef ég finn ekki kvittun-, ina!“ „Þú hlýtur að muna, hvar þú lagð- ir hana?" spurði frú Brandt. „Hún liggur í bréfahylkinu, þar sem skjölin mín eru geymd," sagði hann og gekk inn í skrifstofuna, en þau heyrðu hann draga þar út skúffu. Það leið drykklöng stund, síðan fór frú Brandt inn til manns síns og Jan og Liselotte læddust á eftir. Allar skúffumar í skrifborðinu stóðu opnar og bréfahylkið tæmt. „Eg get ekki munað, hvar ég lagði hana," sagði Brandt og blés mæðu- lega. „Hún hlýtur samt að vera héma — —!“ Jan og Liselotte gáfu hvoru öðru kvíðafullt homauga; þau sáu að fát var á föður sínum, og þegar önnur leit í gegnum allt skrifborðið bar engan árangur, var frú Brandt að gráti komin. „Hvað eigum við að gera, ef við finnum hana ekki?" sagði hún hrygg, „reyndu að hringja til hans aftur, hann getur ekki verið svo vesalmann- legur — hvers vegna sóttir þú ekki miðan aftur til hans?“ „Því að mér fannst hann vera ein- skis virði, eftir að hafa aldrei unnið á hann i öll þessi ár,“ svaraði hann æstur. „Eg hefi verið svo önnum kaf- inn við annað, en auðvitað hlýtur kvittunin að liggja héma, ég fleygi aldrei slíkum hlutum!" öllu var snúið við á nýjan leik og leitað í hverjum krók og kyma i húsinu, en árangurslaust!" Hann reyndi að tala aftur við Jakobsen. „Þér ætlið þó ekki að svikja mig um minn hluta vinningsins, einungis vegna kvittunarinnar ? “ spurði hann náfölur af reiði. „Þér vitið þó eins vel og ég um samning okkar!" En Jakobsen varð ekki þokað; án kvittunarinnar var enga peninga að fá. Að síðustu skellti Brandt heymar- tólinu á og fól andlitið í höndum sér. Daginn eftir leitaði Brandt til lög- fræðings, en hjá honum var enga hjálp að fá — það voru engin vitni að samtali þeirra Brandts og Jakob- sens. Brandt kom heim til sín sem brotinn maður á sál og líkama, og fullur örvæntingar. Jan og Biselotte voru þau einu, sem höfðu ekki gefið upp vonina; það var orðinn hálfgerður sjúkleiki á þeim að snuðra í hverju skoti í húsinu, i leit að kvittuninni. Liselotte vaknaði stundum um miðjar nætur og fór að hugsa um staði, þar sem hún hafði ekki leitað á, en þegar hún fór að gá daginn eftir, fann hún ekkert. Yngsta dóttir Jakobsens, sem hét Ása, var í sama bekk og Liselotte. En því eins varð Liselotte dagleg;a vör við hina miklu gleði Ásu yfir vinningnum. Hún átti að fara til út- landa í sumar, fjölskyldan fékk nýj- an bíl — já, það vom öll ósköp, sem hún' átti að fá og gera. Haustið leið og vetur gekk 1 garð; en á Brú var dapurt þessa mánuði og lítil gleði og eftirvænting meðal bamanna, þótt nú tæki að liða að jólum. Það vom slæmar horfur fyrir heimilið og dapurleikínn óx með hverjum deginum, sem leið. Snemma morguns kom Liselotte hjólandi inn í þorpið. Það var kalt i veðri og var litla stúlkan bæði þreytt og með hroll í sér. Götumar vom dimmar og skuggalegar I morgunskímunni og það var salla- rigning. Liselotte var svo niðursokk- in í hugsanir sínar, að hún tók ekki eftir litlum „busa" úr fyrsta bekk, sem hentist með töskuna á öxlinni út á götuna. Hún áttaði sig fyrst þegar hún var búin að aka telpuna um koll og hún sá blóð renna úr enni henn- ar. Hún kraup óttaslegin niður við hlið hennar og reyndi að þerra blóð- ið. „Er þetta sárt?" spurði hún. Þetta var dóttir Óla fjósamanns, Geirþrúður litla, sem öllum stundum lék sér við Kaju litlu á Brú. „Já,“ snökti hún. „Og það blæð- ir —!" Við áreksturinn hafði skólataskan hennar opnazt og bækurnar lágu sem hráviði út um götuna. En allt í einu gleymdi Geirþrúður kvölunum. Framh. á bls. 14.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.