Vikan - 10.10.1946, Síða 15
VIKAN, nr. 41, 1946
15
Árnasafnið
í Kaupmannahöfn.
(Framh. af bls. 3).
tveir íslenzkir stúdentar skyldu
jafnan hafa styrk úr sjóði sem
hann stofnaði, til að vinna við
safnið. En sökum verðfalls pen-
inga hefur einlægt kveðið minna
og minna að þessum styrk,
þangað til um síðustu aldamót
að hann þótti ekki lengur til
tvískipta. Síðan hefur hann ver-
ið veittur einum manni, 1000 kr.
á ári, það er nú allt og sumt.
Meðal styrkþega frá fyrri árum
eru mörg kunn íslenzk nöfn, svo
sem Bjarni Thorarensen, Jón
Sigurðsson, Konráð Gíslason,
Guðbrandur Vigfússon, Stein-
grímur Thorsteinsson. Síðasti
styrkþegi hefur verið Jakob
Benediktsson.
— Og að lokum, Jón prófes-
sor Helgason, eykst safnið
nokkuð, berast því handrit eða
bækur, eða er aðalstarfið að
varðveita það sem er og gefa
út það, sem bezt er handrita?
— Safnið gerir sér ekki far
um að bæta við sig handritum.
Þó hafa einstaka viðbætur kom-
ið síðan um daga Árna Magnús-
sonar, þar á meðal handrit sem
Rasmus Rask eignaðist á Is-
landi.
Kveldsólin varpar geislum sín-
um inn um hinn háa glugga
safnsins og við hann hefir Jón
Helgason skrifborð sitt.
Sjálfsagt hefir Árna Magnús-
son aldrei dreymt um það, að
safn hans yrði sá ásteitingar-
steinn milli íslendinga og Dana,
sem raun ber vitni.
SÆLUEYJAN.
(Framhald af bls. 7).
tók þátt í hergöngunni á ftalíu, ég
var settur á land á suðurströnd
Frakklands og nú kem ég frá Þýzka-
landi. 1 öllum þessum löndum heim-
sótti ég Esperantista og það á ég ár-
bókinni minni að þakka, því hún birt-
Orðsending
til neytenda frá Jarðhúsunum
Garðávextir eru um helmingur daglegs fæðis manna.
Það skiptir því meira máli um garðávexti, en nokkra aðra
fæðutegund, að þeir séu heilbrigðir og óskemmdir. Mikill
hluti þeirra garðávaxta, sem fólk almennt leggur sér til
munns hefir verið sjúkt af geymsluskemmdum, þegar kom-
ið hefir fram á veturinn.
Það er einkenni vaxandi siðmenningar að gera strang-
ari kröfur um heilbrigt mataræði, það er tryggasta leiðin
til heilbrigðis og þroska. — Neysla skemmdra matvæla
heyrir" liðnum tíma til, tíma skorts, fátæktar og vanþekk-
ingar, enda þung syndagjöld goldin í vanþroska og sjúk-
leika fyrii' þá vanmenningu.
Á tímum allsnægta, sem vér nú lifum á, er það dýrasti
munaðurinn að borða skemmd matvæli, sem hefnir sín
grimmilega í minnkandi næringargildi og vanheilsu. — Ein
kartafla skemmd lamar ekki mikið heilbrigði neytandans,
en margar kartöflur skemmdar 5—600 sinnum á ári vinna
spellvirki á heilsu hans og lífi.
í dag hefir neytandinn völdin. — Seljandinn er ávallt
tilneyddur að laga sig eftir kröfum hans. Krafa neytand-
ans er: Heilbrigð fæða. Heilbrigðir garðávextir. Heilbrigð-
ar kartöflur-Sú krafa verður ekki þögguð heldur fram-
borin með vaxandi þunga.
Jarðhúsin við Elliðaárnar bjóða beztu fáanlegu geymslu
garðávaxta. — Framvegis mun neytandinn spyrja: Eru
þessar kartöflur úr Jarðliúsunum? I svarinu verða fólgin
örlög seljandans.
JARÐIIÚS
♦»»»:♦»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»:
ir nöfn og heimilisföng fjölda Esper-
antista. Alls staðar hjá þeim átti ég
slikum viðtökum að fagna, að ég
gleymdi ógnum og þrengingum ófrið-
arins.
Fyrir utan þetta varð hæfni þessa
hjálparmáls mér að gagni í viðskipt-
um mínum við þá, sem ekki voru
Esperantistar. Með aðstoð orðabók-
arkvers gat ég gert mig skiljanlegan
við menn, sem aðeins skildu sína
eigin þjóðtungu."
Svo skildu leiðir okkar og Joern-
sens liðþjálfa, litla, sérkennilega
mannsins, sem neyddist til að læra
eitthvað hrafl í ensku, vegna þess
að hann var í bandaríska hernum.
Þýtt úr „La Praktiko".
Snyrting undir berum himni.
Þessi mynd er frá Las Vegas í Nevada i Bandaríkjunum og sýnir „rakara-
stofu“ á götu úti.
Slippfélagið
í Reykjavík h.f.
»
— STOFNSETT 1902 —
Símar: 2309, 2909, 3009.
Símnefni: Slippen.
\
Kekum verzlun með allskonar
Skipa- og byggingarvörur
Framkvæmum:
Skipaviðgerðir og
Skipamálun