Vikan - 24.02.1949, Blaðsíða 15
VIKAN, nr. 8, 1949
15
HIÆÞÐAÍtASÚGUR
í marz-apríl koma út á vegum íslendingasagnaútgáfunnar 3 bindi Riddarasagna. Á íslandi
hefir varðveizt fjöldi handrita af riddarasögum, en aðeins örfá þeirra hafa verið gefin út.
Þar sem stafsetning á þessum sögum prentuðum og í handritum er svo margvísleg, hef-
ir það ráð verið tekið að færa þær til nútíðarstafsetningar að mestu.
Bókmenntagrein þessi er frönsk að uppruna, en elztu riddarasögumar voru þýddar í Nor-
egi á fyrri hluta 13. aldar. En snemma tóku Islendingar sjálfir að semja sögur í
þessum sama stíl og héldu því áfram í margar aldir.
Frumtextamir frönsku voru kvæði, sum þeirra eru nú glötuð, og önnur hafa tekið miklum breytingmn. Hafa því þess-
ar þýðingar, sem hér hafa varðveizt, verið frönskum bókmenntafræðingum ómetanlegar heimildir um sögu þessarar
bókmenntagreinar á Frakklandi.
Sögur þær, sem út verða gefnar núna eru þessar:
I. bindi H. bindi
Saga af Tristram og Isönd (norsk) Ivents saga (norsk)
Möttuls saga (norsk) Partalópa saga (norsk)
Bevers saga (norsk) Mágús saga jarls (íslenzk)
(BragðarMágus saga)
Sögur þessar f jalla um líf riddaranna, ævintýri þeirra, ástir og hetjudáðir.
Kiddarasögumar munu tvímælalaust vera það skemmtilegasta og merkilegasta, sem íslendingar hafa samið um
erlent efni. Hvergi hefir notið sín betur fjömgt og auðugt ímyndunarafl Islendinga en í þessum sögum.
Þó að sögur Jæssar séu hinar merldlegustu og erlendar stórþjóðir myndu vera hreyknar af að hafa varðveitt þœr og
eiga slík rit á sinni txmgu, verður ekki annað sagt en íslendingar hafi á síðustu tímum sýnt Jæirn lítinn sóma. I rauii-
inni hefir þessi fjársjóður verið algerlega lokaður fyrir öllum þorra landsmanna, J»ar sem öll liandrit eru löngu komin
á söfn og útgáfur fáar, flestar erlendar, hafa borizt hingað og em fremur gerðar fyrir fræðimenn en bókelska. leikmenn.
Islendingasagna- og Haukadalsútgáfan hyggjast að bæta úr þessu og munu byrja með þessi þrjú bindi í sama broti
og gerð og fyrri bækur útgáfunnar.
Bjarni Vilhjálmsson cand. mag. mun sjá um þessa útgáfu, og mun nafn hans eitt næg trygging þess, að verkið
verði vel unnið.
Verö þessara þriggja bóka verður kr. 100.00 óbundnar og kr. 130.00 í skinnbandi
Gerist strax áskrifendur
aö Riddarasögum
*
Islendingasagnaútgáfan — Haukadalsútgáfan
Póstliólf 73. — Túngötu 7. — Sími 7508. Reykjavík.
Ég undirrit.. gerist hérmeð áskrifandi að Riddarasögum Haukadals og Islendingasagnaútgáfunnar, og óska eftir að fá bæk- urnar innbundnar — óbundnar.
^Nafn
Litiir á bandi óskasl í Svörtum lit Heimili
Brúnum lit Rauðum lit Póststöð
(Strikið yfir það, sem ekki á við). íslendingasagnaútg'áfan — Haukadalsiitgáfan Pósthólf 73. — Túngötu 7. — Sími 7508. Reykjavík.
m. bindi
Mírmans saga (íslenzk)
Sigurðar saga Jiögla (íslenzk)
Konráðs saga keisarasonar (íslenzk)
Samsonar saga fagra (íslenzk)
(Samson fríði og Kvintalín kvenna
þjófur)