Vikan - 07.04.1949, Page 9
VIKAN, nr. 14, 1949
9
Fréttamyndir
Þetta eru fullkomnustu tæki, sem brezkir tannlæknar hafa með höndum,
og voru þau sýnd á sýningu í London í vetur.
Mynd þessi er tekin um borð í enskri snekkju. „Northwind", sem siglt
hefur til nokkurra landa, m. a. Danmerkur og Belgíu, og haft meðferðis
sýnishorn af brezkum vefnaðarvörum, til þess að hæna að kaupendur í
þessum löndum. Má þetta kallast stórmannleg farandsala.
1 stríðinu komu málmleitarar að góðu gagni. Nú eru dýralæknar farnir
að nota þá til þess að finna málma í innýflum nautpenings.
Malta í Miðjarðarhafi er nú undir yfirráðum Breta. Aðalborg eyjarinnar
heitir Valletta, og myndin, sem hér birtist, er af höfninni þar.
1 haust er leið (1948) var mikil brezk sýning í Kaupmannahöfn, sú fyrsta,
sem sett var á laggirnar eftir striðið, á meginlandi Evrópu. Á myndinni
sjást Ingrid Danadrottning og hertogafrúin af Gloucester hverfa af sýn-
ingunni.