Vikan - 24.11.1949, Blaðsíða 1
Fagurt er rökkrið
Það var mjög skemmtilegt að vera á frum-
sýningu „Bláu stjörnunnar" á Fagurt er rökkr-
ið. Þessi skemmtiskrá hennar var jafnbezt af
þeim, sem við höfum séð hjá henni. Flest atrið-
in voru sérlega góð og ekkert þeirra lélegt,
gömlu úrvalskraftarnir, Alfreð Andrésson og
Haraldur Á. Sigurðsson, í fullum gangi með
annan eins mann og Brynjólf Jóhannesson við
hlið og þar að auki nýtt blóð, Soffíu Karls-
dóttur, sem féll vel í farveg þessara hæfileika-
manna; hún á eftir að' standa sig sómasamlega
áfram, ef rétt er með farið.
Atriði eins og Kosningakantatan, með Soffíu,
Brynjólfi, Haraldi og Alfreð, er bráðskemmti-
legt, og sama er að segja um Yngingavélina,
gamandrama, með Auróru, Haraldi, Jóni Gísla-
syni, hænu og eggi! Ekki var heldur slælegt
atriðið „Lauslega þýtt úr frönsku“, gamanþátt-
ur í tveim atriðum með Birnu Jónsdóttur, Gunn-
vöru Sigurðardóttur, Alfreð Andréssyni og
Har. Á. Sigurðssyni. Dansarnir, sem Sif Þórz
og Sigríður Armann höfðu samið og æft voru
prýðilegir, eins og við mátti búast. En svo
kemur rúsínan: Gamanvísurnar hans Brynj-
ólfs Jóhannessonar voru perlur, bæði vísurnar
og flutningurinn.
Önnur atriði voru: Einsöngur Gunnars Krist-
inssonar, með undirleik Fr. Weisshappel og
harmonikuleikur Braga Hlíðberg, hljómsveitar-
stjóri var Aage Lorange, að ógleymdum gam-
anvísum Alfreðs og Kærleikskoddanum, gaman-
leik í tveim þáttum.
Efst: Brynjólfur Jóhannesson syngur gamanvísurnar. Að ofan, til v.: Dansinn, Guðný Pétursdóttir, Margrét Hjartar, Irmy Toft, Birna Jónsdóttir,
Sjöfn Hafliðadóttir. — Að ofan t. h.: Kosningakantatan, Brynjólfur Jóhannesson, Soffía Karlsdóttir, Haraldur A. Sigurðsson, Alfreð Andrésson. —-
Að neðan t. v.: Yngingavélin, Jón Gíslason, Haraldur A. Sigurðsson, Soffía Karlsdóttir. — Að neðan t. h.: „Lauslega þýtt úr frönsku" Alfreð Andrés-
son og Haraldur A. Sigurðsson. (Ljósm.: Vignir).