Vikan - 03.06.1993, Blaðsíða 11
og fegrunarskurðlækningar eru mjög skyldar
greinar. Til þess að geta orðið góður fegrun-
arskurðlæknir þarf læknirinn fyrst að hljóta
verulega reynslu í lýtaskurðlækningum. Um
þetta er nauðsynlegt að upplýsa fólk áður en
það velur sér lækni til að láta gera á sér fegr-
unaraðgerð."
KONUR f MEIRIHLUTA
- Hverjirleita tilykkar og hvers konar aðgerðir
fáist þið við að öllu jöfnu?
„Stærsti hópurinn eru konur frá 35 og allt
upp í 70 ára. Þær koma til okkar vegna þess
að þeim finnst þær hafa elst útlitslega meira
heldur en þær upplifa sjálfar eða geta sætt sig
við. Þær vilja að við hjálpum þeim að hressa
upp á útlitið til þess að bjartara verði yfir þeim
og þeim líði betur.
Þegar fólk eldist myndast hrukkur og pokar
í andlitinu. Kinnarnar fara að hanga á mörg-
um og þá er mest hjálp í svokallaðri andlits-
lyftingu. Sama er að segja um undirhöku og
poka á augnlokum.
Andlitslyfting hefur þá kosti jafnframt í för
með sér að konur eiga auðveldara með að
snyrta húðina. Hún er sléttari og betra er að
komast að henni. Algengt er líka að konur séu
með of mikla húð á augnlokunum."
GETA BROSAÐ
- En fóik heldur áfram að eldast eftir fegrun-
araðgerð þó svo að það líti betur út um sinn.
„Ef gerð er til dæmis ennis- og andlitslyfting
þá er andlitið kannski gert tíu árum yngra en
auðvitað heldur það áfram að eldast. Þú vinn-
ur þennan tíma og síðan heldur þú áfram að
eldast eðlilega, hvorki meira né minna.“
- Stundum er sagt að konur, sem farið hafa
í aðgerð af þessu tagi, geti ekki brosað og
hefur Margrét Thatcher verið nefnd í því sam-
bandi.
„Þær hafa þá kannski gengist undir slíka
aðgerð oftar en einu sinni. Þær vilja vera ung-
ar eilíflega og væntingar þeirra eru orðnar
meiri en unnt er að uppfylla með góðu móti.
Þá verður eitthvað að láta undan.
Það segir sig sjálft að það er lítil skynsemi f
því að gera fimmtuga konu þrítuga. Það má
segja að það sem við erum að gera sé að láta
fólk bera aldurinn betur en ella.“
- En getið þið breytt fimmtugu andliti konu
og gert það eins og það var þegar hún var
þrítug?
„Nei, það er ekki hægt.“
- Hvað um örin, er ekki erfitt að fela þau
svo vel sé?
„Það er ekki hægt að gera neinar skurðað-
gerðir nema eftir sé skilið ör. Við reynum að
fela þau eins og kostur er og ganga þannig
frá að þau séu sem fyrirferðarminnst. Við enn-
islyftingu er skorið þvert yfir hvirfilinn á milli
eyrnanna. í andlitslyftingu eru örin einnig að
mestu falin f hári, nema þegar við verðum að
skera framan við eyrun.“
- Þið læknið líka skalla. í hverju er slík að-
gerð fólgin?
„Þá flytjum við ( nokkur skipti hár úr hnakk-
anum og græðum það á hviiiilinn. Þar heldur
það áfram að vaxa. Stundum er fullyrt að það
nægi að setja tilbúin hár í hársvörðinn og slfkt
verði mjög eðlilegt og muni Ifta vel og eðlilega
út þegar upp er staðið. Staðreyndin er sú að
NANNA GUÐBERGS
NONAME
ÚTSÖLUSTAÐIR:
REYKJAVÍK: Snyrtivöruversl. Cher, Laugavegi 76 • Spes, Háaleitisbraut 58-60
Snyrtihús Heiðars, Vesturgötu 19 • Saloon Ritz, Laugavegi 66 • Snyrtistofa Kristínar,
Ásvallagötu 77 • Hárgreiðslust. Hótel Loftleiðum, Reykjavíkurflugvelli • Ingólfsapótek,
Kringlunni 8-12 • Verslunin 17, Laugavegi 91 • Snyrtistofan NN, Kringlunni 6
Snyrtistofan Paradís, Laugarnesvegi 82 • Snyrtistofan Fegrun, Búöargeröi 10
Hár og föröun, Faxafeni 8 • Snyrtist. Halldóru, Fannafold 217a • KÓPAVOGUR: Gott útlit,
Nýbýlavegi 14 • GARÐABÆR: Snyrtihöllin, Garöatorgi • HAFNARFJÖRÐUR:
Versl. Dísella, Miövangi • Snyrtist. Bjargey, Reykjavíkurvegi 16 • KEFLAVÍK:
Snyrtivöruversl. Smart • AKRANES: Versl. Perla • BORGARNES: Apótek Borgarness
ÍSAFJÖRÐUR: Snyrtistofan Sóley • Versl. Krisma • FLATEYRI: Félagskaup
PATREKSFJÖRÐUR: Patreksapótek • SAUÐÁRKRÓKUR: Skagfirðingabúð
Snyrtistofan Táin • AKUREYRI: Vörusalan • Betri líöan • Snyrtistofan Eva
Verslunin Ynja • DALVÍK: Snyrtist. Tanja • HÚSAVÍK: Snyrtistofan Hilma
VOPNAFJÖRÐUR: Lyfsalan • HÖFN: Snyrtistofa Ólafar • HVERAGERÐI:
Ölfusapótek ■ Snyrtistofa Löllu, Hellsustofnun NLFÍ ■ VESTMANNAEYJAR: Mlðbœr.
LJÓSM.: BRAGI Þ. JÓSEFSSON / HÁR: ERLA í HÁR OG FÖRÐUN