Vikan - 03.06.1993, Blaðsíða 44
EKKI LEYNDARMÁL
LENGUR
Bandarísku rokksveitinni Rage
Against The Machine hefur
verið lýst sem best varðveitta
leyndarmáli rokksins á nýjum
áratug. En hljómsveitin er
ekkert leyndarmál lengur
heldur er hún á vðrum flestra
sem fylgjast með rokktónlist.
Þeir spila í Kaplakrika þann
12. júní næstkomandi í
tengslum við Listahátíð Hafn-
arfjarðar.
FJÖLBREYTILEGUR
UPPRUNI
Hljómsveitin er nýútsprungin
en það var haustið 1991 sem
þeir spiluðu fyrsta sinni opin-
berlega og eftir aðra tónleik-
ana fengu þeir tilboð frá
nokkrum stórum útgefendum,
neituðu þeim, á rökum list-
ræns frelsis, en gerðu samn-
ing við smærra fyrirtæki, Epic.
Tom Morello gítarleikari: „Epic
skildi að tónlist okkar varð að
fá að vera í friði en þeir voru
mjög viðkvæmir fyrir því sem
við vorum að gera.“
Bakgrunnur Toms er nokk-
uð furðulegur. Faðir hans er
frá Kenya og var meðlimur í
Mau Mau (Má Má) skæruliöa-
hreyfingunni sem barðist fyrir
sjálfstæði landsins undan
Bretum. Þegar það var fengið
lenti faðir Toms í sendinefnd
Kenya hjá Sameinuðu þjóð-
unum í New York, fluttist því
þangaö og Tom er fæddur í
New York árið 1964. En for-
eldrar hans skildu, faðirinn fór
aftur til Kenya en Tom fluttist
með móður sinni til Liberty-
ville í lllinoisfylki.
Þegar fram liðu stundir
kviknaði áhugi Toms á rokk-
inu, hann vildi læra að spila
lög eftir KISS og Led Zeppelin
og fór því í gítartíma. „Þú verð-
ur að læra aö stilla gítarinn,"
var það fyrsta sem kennarinn
sagði við hann. Þar með var
þolinmæði Toms þrotin og fleiri
urðu gítartímarnir ekki enda er
Rage Against The Machine
ekki beint þolinmóðasta rokk-
band í heimi, þeir eru eins og
dínamítstúpa sem óskar þess
eins að fá að springa í tætlur,
sem sagt gera sitt gagn, þjóna
hlutverki sínu.
Hann hvíldi gítarinn í fjögur
ár en tók hann aftur upp þeg-
ar hann heyrði í Sex Pistols,
fjórtán ára gamall. Næstu ár
fóru í músíkpælingar og
menntun, hann gekk [
Harvard-háskólann og útskrif-
aðist þaöan en segir að vinir
sínir, sem flestir urðu lögfræð-
ingar, læknar eða banka-
menn, hafi átt erfitt með að
skilja að hann vildi gerast sós-
íalískur rokktónlistarmaður.
Árið 1986 flutti Tom til Los
Angeles og næstu ár voru
mögur. Hann var í fönkbandi
sem hét Lock Up og þar sá
hann hvað hann viidi ekki
gera. Árið 1991 hitti hann svo
Zack de la Rocha, fyrrum
söngvara i hljómsveit sem
kallaði sig Inside Out, en
trommuleikaranum Brad Wilk
hafði hann kynnst aðeins
meðan hann var i Lock Up.
Bassaleikarinn Timmy C.
slóst svo með í för og þar
með varð Rage Against The
Machine til.
Zack er fæddur árið 1970 i
Kaliforníu, er skilnaðarbarn
eins og Tom og ólst upp í
borginni Irvine í Kaliforníu.
Faðir hans er mexíkanskur
vegglistarmálari en móðir
hans er hálfþýsk og hálfur
Mexíkani og vann sem að-
stoðarkennari í Kalifornfuhá-
skóla. Zack kynntist „hard-
core'-tónlist þegar hann var í
menntaskóla en það er tónlist
sem hefur yfirleitt sterka fé-
lagslega skírskotun og ræðst
gegn kúgun, óréttlæti, pólitík
og er byltingarsinnuð í þokka-
bót. Þá kviknaði pólitískur eld-
ur innra með Zack. Þetta
heyrist vel í textum hans en
þar er ekki tekiö með silki-
hönskum á efninu. „I mennta-
skóla áttaði ég mig á því að
maður er aðeins álitinn lifa í
velgengni þegar maöur er bú-
inn að samlagast heildinni
eða hefur komist til mikilla
efna. Við berjumst fyrir aukn-
um mögleikum fólks á and-
legu og efnalegu sviði."
Lítið er vitaö um bakgrunn
Tommy C. en Brad er fæddur
í Portland í Oregon-fylki,
drakk í sig trommuleik Johns
Bonham í Led Zeppelin og
Keiths Moon í Who en allt
breyttist snögglega þegar
hann heyrði í Sex Pistols. I
menntaskóla víkkaði hann
sjóndeildarhringinn og hlust-
aði meðal annars á fönkarann
George Clinton og James
Brown.
VELGENGNI
Rage Against The Machine
gaf út sína fyrstu breiðskífu í
byrjun þessa árs og hefur hún
fengið gífurlega góðar móttök-
ur, bæði hlustenda og gagn-
rýnenda enda úrvals kokkteill
af rappi, rokki, pönki og jafn-
vel fönki. Boðskapur textanna
er í stíl við raunveruleikann,
óvæginn og harður. Hljóm-
sveitin þykir gífurlega
skemmtileg á sviði og er mjög
spennandi að fá hingað sveit
sem er jafnfersk og ný og
Rage Against The Machine,
frekar en einhverja útbrunna
ellirokkara sem eru um það bil
að geispa golunni tónlistar-
lega séð eða jafnvel búnir að
því. Dagurinn er 12. júní,
staðurinn er Kaplakriki. Mætið
og njótið reiðinnar. □
Rage
Against
The
Machine.
F.v.:
Timmy C.,
Brad
Wilks,
Tom
Morello og
Zack de ia
Rocha.
Byltingar-
sinnaöir
rokkarar
meö bylt-
ingar-
manninn
Che
Guevara í
bakgrunni.
X
cr>
cn
uo
CD
44 VIKAN ll.TBL. 1993