Vikan - 01.12.1994, Blaðsíða 48
•Mlinw***'
HAFRAKÖKUR
1 egg
200 g hveiti
200 g haframjöl
125 g sykur
250 g smjörlíki
50 g rifið Petit súkkulaði frá
Freyju
Rifinn börkur af 1 appeisínu
Öllu blandað saman, smjör-
líkið mulið saman við. Deigið
hnoðað, mótaðar ferkentað-
ar lengjur. Geymdar inn-
pakkaðar á köldum stað í
nokkrar klst. Skornar í þunn-
ar sneiðar, sem raðað er á
smurða plötu. Bakað við 225
gráður í 8-10 mínútur.
KÓKOSTOPPAR
Deigið:
300 g hveiti
100 g fiórsykur
200 g smjörlíki
1 eggjarauða
Ofan ó:
1 eggjahvíta
50 g sykur
50 g kókosmjöl
2 tsk. sftrónusafi
Hveitinu sáldrað á borð,
smjörlíkið mulið saman við
og flórsykrinum blandað í.
Eggjarauðunni bætt í og
deigið hnoðað rösklega
saman. Deigið geymt á köld-
um stað í 2-3 klst.
Deigið flatt þunnt út, stungn-
ar út kringlóttar kökur sem
raðað er á vel smurðar plöt-
ur. Eggjahvítu, sykri, kókos-
mjöli og sítrónusafa hrært
saman, lítill toppur af þessu
settur á miðju hverrar köku.
Kökurnar bakaðar við 225
gráður. Teknar varlega af
plötunni, kældar á köku-
grind.
HÁLFMÁNAR MEÐ
SVESKJUM
200 g hveiti
100 g möndlur, hakkaðar
200 g smjörlíki
80 g flórsykur
1 msk. rjómi (ef þarf)
Hveiti og möndlum blandað
saman, smjörlíki saxað sam-
an við með hníf. Sykri og,
rjóma blandað í. Hnoðað.
Kælt. Deigið flatt út frekar
þunnt og skorið í hringlaga
kökur. Setjið u.þ.b. 1 tsk. af
sveskjusultu á annan helm-
ing hverrar köku og leggiö
hinn helminginn yfir. Þrýstið
köntunum saman með gaffli.
Kökurnar smurðar með eggi
og sykri stráð yfir. Kökurnar
bakaðar við 225 gráður í 8-
10 mín.
48 VIKAN 11. TBL. 1994