Vikan - 01.12.1994, Blaðsíða 57
SÚKKULAÐIJÓLAKRANS
Ekki eru allir hrifnir af
marsípani en finnst
hins vegar súkkulaði
vera toppurinn á tilverunni.
Fyrir þá hefur verið fundin
upp þessi kökuskreyting
sem hér birtist í máli og
myndum. Einu vandkvæðin
á því að útfæra hugmyndina
til fullnustu er að notuð séu
blöð jólaviðar eða kristþyrnis
sem hjúpuð eru súkkulaði.
Þau eigum við ekki en þess f
stað má notað blöð af til
dæmis rósum. Þau ætti að
vera auðvelt að fá á þessum
árstíma þótt ekki fáum við
blöð af trjánum úti í garði. Ef
í harðbakkann slær er ekki
um annað að ræða en búa til
blöð úr marsípani og hjúpa
þau svo með súkkulaði. Þá
sláum við tvær flugur í einu
höggi. Marsípanfólkið fær
marsípan og súkkulaðifólkið
súkkulaði.
Það, sem til þarf, er súkku-
laðikaka sem bökuð hefur
verið í venjulegu hringlaga
formkökumóti. Auk þess þarf
hjúpsúkkulaði og hvítt
Blandari: íekur 1,25 I. Oruggur og
þægilegur í notkun.
Hrærivél: 3,5 I. skál sem snýst. Getur unnið
meS allt a8 3 kg. af deigi í senn.
Matvinnsluvél: Fullkomin matvinnsluvél meS
öryggishandfangi á rifjárnum. Miög auövelt
er aS skipta um alla fylgihluti.
súkkulaði. Og einnig verður
að búa til hefðbundið smjör-
krem til þess að smyrja utan á
kökuna.
1. Byrjað er á því að
bræða hvíta og dökka
súkkulaðiö. Rósablöðin, sem
við höfum ákveðið að nota
hér, eru skoluð og þurrkuð
áður en súkkulaðið er borið
varlega neðan á þau. Setjið
blöðin inn í (sskáp og iátið
súkkulaðið storkna vel -
tvær klukkustundir í ísskápn-
um ættu að nægja en vel má
gera þetta að kvöldi og hefj-
ast svo handa á ný næsta
morgun eða kvöld.
2. Takið blöðin úr skápn-
um og flettið þeim varlega af
súkkulaðihúðinni. Auðvelt er
að greina æðar rósa- eða
trjáblaðanna á súkkulaði-
blöðunum. Geymið súkku-
laðiblöðin á köldum stað þar
til þið setjið þau á kökuna.
3. Nú er komið að því að
skreyta kökuna. Byrjið á því
að smyrja á hana súkkulaði-
litu smjörkremi sem búið er
til eftir ykkar eigin smjör-
kremsuppskrift. Það þarf að
búa til nóg af smjörkremi svo
hægt sé að sprauta á hana
óreglulegum kremsnúrum
sem eiga að minna á kvisti.
Að því búnu er súkkulaði-
blöðunum raðað utan á
kvistina eða greinarnar. Þið
verðið því að hafa í huga,
þegar verið er að sprauta
kreminu yfir kökuna, hvar
þið viljið hafa blöðin og
hvernig skreytingin verður
sem eðlilegust. Þegar blöðin
eru komin á kökuna og hún
fullskreytt er rétt að geyma
hana í ísskápnum þangað til
hún er borin fram svo blöðin
bráðni ekki í hitanum inni hjá
ykkur.
Eins og getið var um f
upphafi má allt eins skreyta
kökuna með marsípanblöð-
um. Þau eru þá búin til með
því að skera fyrst út egglaga
blað, gera brúnirnar svolítið
ójafnar og beygja svo blaðið
til svo það líkist sem mest
raunverulegu blaði. Marsí-
panblöðin má lita með brún-
um matarlit en sum má hafa
ELDHÚSHJÁLPIN
ólituð og verða þau þá eins
og blöðin úr hvíta súkku-
laðinu hér á myndinni. Einn-
ig er greinilegt á myndinni að
blandað hefur verið saman
dökku og Ijósu súkkulaði til
að fá Ijósbrún blöð, eða þá
að notað hefur verið Ijóst og
dökkt súkkulaði auk þess
hvíta. Allt er hægt!
FRÁ PHILIPS
SÆTÚNI 8 SÍMI 69 15 OO
Umboösmenn um land allt
Heimilistæki hf
Eldhússtörfin verða
leikur einn meö nýju
PHILIPS Combi 3000
HR 7805. í þessari
stórkostlegu vél
færðu allt í senn,
hrærivél, óvaxta og
grænmetispressu,
matvinnsluvél og
blandara.
Auk þess fylgja
vélinni ótal
fylgihlutir. Allt til
þess aö auóvelda
þér eldhússtörfin.
KOKUBLAÐ