Vikan - 01.12.1994, Blaðsíða 24
TEXTI OG UÓSMYNDIR: ÞORSTEINN ERLINGSSON
Q
- SEM BESTA LEIKKONAN í AÐALHLUTVERKI
Iréne Jakob er í meöal-
lagi há, fíngerð og aölaö-
andi kona. Hún var meö
stutt, svart hár, fklædd
svartri dragt þann bjarta dag
sem blaðamaður Vikunnar
kom aö máli viö hana. Hún
hafði nýlokiö viö að snæða
hádegisverð með ýmsu fyrir-
fólki í glæsilegum húsakynn-
um eins af stóru koníaks-
framleiðendunum í Cognac-
héraðinu.
Við vorum stödd á tólftu
spennumyndahátíðinni í smá-
bænum Cognac, sem segja
má að sé einn frægasti smá-
bær heims, en þar er hin
þekkta vara framleidd sem
ber þetta sama heiti.
Iréne var hin hressasta og
brugðum við okkur út í garð-
inn fyrir utan og yfir í aðra
álmu hússins til að eiga þar
stutt spjali, en ekki var yfir-
leitt mikill tími til viðtala við
það fræga fólk, sem sækir
þessa kvikmyndahátíð, þar
sem hún er bæði stutt og
mikið er um að vera meðan
á henni stendur.
Um þessar mundir er verið
að sýna í Háskólabíói eina
mynd af þríeyki sama leik-
stjóra og leikstýrði „Tvöföldu
lífi Veróníku“, Krzyzstofs
Kieslowski, en þær bera
heitin Blár, Hvítur og Rauður.
Það er hinn stórkostlegi tón-
smiður Zbigniew Preisner
sem semur tónlistina í þess-
um myndum eins og hann
gerði svo frábærlega í „Tvö-
földu lífi Veróníku".
Iréne Jacob leikur eitt að-
alhlutverkið í Rauðum eða
„Rouge“ eins og hún heitir á
frummálinu og því lá beinast
við að spyrja hana hvers
vegna hún hefði fengið þetta
hlutverk í þeirri mynd.
„Kieslowski þekkti mig að
sjálfsögðu frá því ég lék í
„Tvöföldu lífi Veróniku“ og
hann taldi hlutverkið í Rauð-
um passa best fyrir mig af
kvenhlutverkunum í þessum
myndum." segir Iréne. „Kies-
lowski hefur alltaf sagt að val
leikaranna sé það sem skipti
höfuðmáli fyrir kvikmyndir og
ég er honum hjartanlega
sammála."
Um hvað fjallar myndin?
„Hún fjallar í stuttu máli
um ástarsamband manns á
sextugsaldri og ungrar konu
og þegar ég las handritið
varð ég strax heilluð af því á
hvern hátt þessi fullorðni
maður snertir hana svo djúpt
tilfinningalega."
Er eitthvað sameiginlegt
með þessari stúlku og þeirri
sem þú lékst í „Tvöföldu lífi
Veróníku'1?
„Því er ekki auðvelt að
svara. Stúlkan í Rauðum upp-
lifir allt aðra hluti en sú í Ver-
óníku þannig að það er ekki
svo gott að bera þær saman.“
FÉKK GULLPÁLMANN Í
CANNES
Hvernig bar fundum ykkar
Kieslowskis fyrst saman?
„Þegar hann var að finna
stúlku í hlutverk Veróníku
var hann að leita að franskri
leikkonu. Ég þekkti yfirmann
ráðningadeildarinnar, sem
sá um verkið, og einn starfs-
manna hennar hafði séð mig
leika í myndinni „Goodby
Children of Grenad11. Það
leiddi til þess að Kieslowski
bað mig að koma í prufutök-
ur, sem ég og gerði, og eftir
það valdi hann mig endan-
lega f hlutverkið. Þar með
fékk ég þetta mikla tækifæri
til að gera stóra hluti sem
svo leiddu til þess að ég fékk
Gullpálmann f Cannes fyrir
tveimur árum.“
Heldurðu að þú fáir nokk-
urn tímann annað eins tæki-
færi og aðalhlutverkið í Ver-
óníku?
„Ég get ekki svarað því á
annan hátt en að ég vona
það innilega. Það er sannar-
lega þannig að sum hlutverk
eru eins og himnasending
fyrir mann og það var svo í
þessu tilfelli. Mín skoðun er
samt sú að gæði hlutverks
felist í mörgum þáttum eins
og til dæmis góðum leik-
stjóra, góðum samleikurum
og svo framvegis.11
Þegar maður vinnur með
góðum leikstjóra getur hann
að sjálfsögðu haft mikil áhrif
á mann til frambúðar. Sann-
leikurinn er einnig sá að það
sem vegur mann mest upp
er það að myndinni sé vel
leikstýrt og að hún komi vel
út í heild. Ef samsetning og
handrit ganga ekki upp
skiptir engu máli hversu vel
maður hefur leikið.11
LÉK í RÚSSNESKRI
KVIKMYND
Hvaða mynd, sem þú hef-
ur leikið í, hefur haft mest
áhrif á þig sem listamann?
„Allar myndir, sem maður
tekur þátt í að vinna, hafa
áhrif á manna á einn eða
annan hátt. Mér finnst nokk-
uð erfitt að svara þessari
spurningu núna. Ég verð þó
að viðurkenna að það að
leika í „Tvöföldu lífi Verón-
íku“ tók mikið á mig. Ég
lærði mikið, þar sem ég var
undir svo góðri leikstjórp
sem raun bar vitni, og það
var mér ómetanleg reynsla.
Ég lék einnig í rússneskri
kvikmynd sem hafði mikil
áhrif á mig og þá sérstak-
lega vegna aðstæðnanna á
tökustað og þeirrar gjörólíku
menningar sem ég á að
venjast. pinnig var það
ómetanleg reynsla að kynn-
ast framandi fólki og landi.“
Liggur leiklistin vel fyrir
þér?
Þorsteinn Erlingsson blaöamaöur Vikunnar situr hér aö
spjalli viö leikkonuna Iréne Jakob, en fundum þeirra bar
saman fyrir fáeinum vikum í smábænum Cognac í Frakk-
landi. íslenskir kvikmyndahúsagestir minnast leikkonunnar
úr kvikmyndinni „Tvöfalt líf Veróníku11.
24 VIKAN 11. TBL. 1994