Vikan - 12.11.1998, Blaðsíða 36
Hlýlegt bútateppi!
'ítye&lað ún,
Pecr(j ijnt
100% ull
Upplýsingar um hvar Tinnugarnið fæst í síma: 565-4610
Teppi, heklað úr Peer Gynt 100% ull,
verður alltaf eins. Það eru áferðin og
spuni garnsins sem gefa teppinu þessa
eiginleika. Peer Gynt er framlcitt í 44 lit-
um.
Efnismagn fer eftir stærð teppis og
heklfestu.
Þetta teppi mælist 125x190 sm og til
viðmiðunar fór í það:
PEER GYNT
Kremað nr. 664 16 dokkur
Flöskugrænt nr. 931 10 dokkur
Grátt nr. 7 7 dokkur
Heklunál nr. 4
Heklið 4 loftlykkjur með PEER GYNT
nr. 664 og heklunál nr. 4. Tengið í hring
með keðjulykkju.
1 umf: - PEER GYNT nr. 664: 5 loft-
lykkjur = 1 stuðull + 2 loftlykkjur, 3
stuðlar + 2 loftlykkjur þrisvar sinnum
utan um hringinn. Endið á 2 stuðlum
utan um hringinn, 1 keðjulykkja í þriðju
loftlykkju. Slítið frá.
2. umf: - PEER GYNT nr. 931: Festið
bandið með keðjulykkju í næsta loft-
lykkjuboga (horn), 5 loftlykkjur = 1 stuð-
ull + 2 loftlykkjur, 3 stuðlar utan um
sama loftlykkjuboga, * 1 loftlykkja,
hoppið yfir 3 stuðla, 3 stuðlar + 2 loft-
lykkjur + 3 stuðlar utan um næsta loft-
lykkjuboga *. Endurtakið frá * - *
tvisvar sinnum. Endið á 1 lofllykkju,
hoppið yfir 3 stuðla, 2 stuðlar í sama loft-
lykkjuboga og 5 loftlykkjurnar í byrjun
umferðar, 1 keðjulykkja í þriðju loft-
lykkju. Slítiðfrá.
3. umf: - PEER GYNT nr. 7: Festið
bandið með keðjulykkju í næsta loft-
lykkjuboga (horn), 5 loftlykkjur = 1 stuð-
ull + 2 loftlykkjur, 3 stuðlar utan um
sama loftlykkjuboga, * 1 loftlykkja,
hoppið yfir 3 stuðla, 3 stuðlar utan um
næstu loftlykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir
3 stuðla **, (3 stuðlar + 2 loftlykkjur + 3
stuðlar) utan um næsta loftlykkjuboga *.
Endurtakið frá * - * tvisvar sinnum og frá
* - ** einu sinni. Endið á 2 stuðlum í
sama loftlykkjuboga og 5 loftlykkjurnar í
byrjun umferðar, 1 keðjulykkja í þriðju
loftlykkju. Slítið frá.
4. umf: - PEER GYNT nr. 664: Festið
bandið með keðjulykkju í næsta loft-
lykkjuboga (horn), 5 loftlykkjur = 1 stuð-
ull + 2 loftlykkjur, 3 stuðlar utan um
sama loftlykkjuboga, * (1 loftlykkja,
hoppið yfir 3 stuðla, 3 stuðlar utan um
næstu loftlykkju) tvisvar sinnum, 1 loft-
lykkja, hoppið yfir 3 stuðla, ** (3 stuðlar
+ 2 loftlykkjur + 3 stuðlar) utan um næsta
loftlykkjuboga *. Endurtakið frá *
- * tvisvar sinnum og frá * - ** einu sinni.
Endið á 2 stuðlum í sama loftlykkjuboga
og 5 loftlykkjurnar í byrjun umferðar, 1
keðjulykkja í þriðju loftlykkju. Slítið frá.
Heklið eða saumið dúllurnar saman.
Blúnda: Snúið röngunni á teppinu að
ykkur. Festið bandið með keðjulykkju
utan um loftlykkjuboga. Heklið 4 loft-
lykkjur og síðan 3 tvöfalda stuðla utan
um sama loftlykkjuboga, 1 fastapinni
utan um næsta loftlykkjuboga. * 4 loft-
lykkjur og síðan 3 tvöfaldir stuðlar utan
um sama loftlykkjuboga, 1 fastapinni
utan um næsta loftlykkjuboga *. Endur-
takið frá * - *. Þegar heklað hefur verið í
kringum allt teppið er tengt með keðju-
lykkju í fyrstu loftlykkju. Slítið frá.
Snúið nú réttunni á teppinu að ykkur.
Festið bandið utan um loftlykkjurnar 4
með keðjulykkju, heklið 4 loftlykkjur og
heklið síðan 3 tvöfalda stuðla utan um
loftlykkjurnar, 1 fastapinni utan um
næstu loftlykkjur. * Heklið 4 loftlykkjur
og síðan 3 tvöfalda stuðla utan um sömu
loftlykkjur, 1 fastapinni utan um næstu
loftlykkjur *. Endurtakið frá * - *. Þegar
umferðinni lýkur er tengt með keðju-
lykkju í fyrstu loftlykkju. Slítið frá.
Teikning af
dúllunni, táknin eru:
• = keðjulykkja
° = loftlykkja
+ = fastapinni
í = stuðull
= tvöfaldur stuðull
ö/iY