Vörður - 22.03.1924, Page 2
2
VÖRÐBR
konar œynd á að koma á fyrstu
hæð, sem tákni sjávarútveginn,
og á Jóhannes Kjarval listmái-
ari að mála hana. Myndir þessar
eiga að minna alla þá, er i
bankann koma, á þessa tvo að-
alatvinnuvegi og máttarstoðir
Islendinga. Guðjón Samúelsson
hefir unnið stórvirki með þess-
ari byggingu og mun hún lengi
halda nafni hans á lofti. Hann
hefir teiknað húsið, og yfir höfuð
haft alla yfirumsjón með bygg-
ingunni, og með honum hefir
unnið samverkamaður hans Ein-
ar Erlendsson byggingameistari.
Guðjón Gamalíelsson múrara-
meistari hefir haft eftirlit með
byggingu hússins og frágangi
öllum, fyrir hönd bankans, og
þá sjerstaklega að sjá um, að
öllum útboðsskilmálum væri
fullnægt.
Bankastjórnin þakkar hjer
með öllum þeim, er hjer hafa
að unnið, bæði þessura mönn-
um, smiðunum og öllum verka-
mönnunum. Allir hafa þeir unnið
vel og af frábærum dugnaði og
snild, svo að sagt hefir verið,
að aldrei hafi eins vel og dug-
lega verið unnið að nokkurri
byggingu hjer á landi.
Jeg hefi orðið var við það,
að það var eins og hver vildi
gera það besta, eins og þeim
þætti vænt um að vinna að
byggingunni, og væri vel við
þá stofnun, sem þar ætti að búa.
Hjer hafa íslendingar einir
unnið að, og alt er smiðað hjer
heima, að undanteknum skrám
og lásum, geymsluhólfum og
járnhurðum.
Jeg þori óhikað að fullyrða,
að bankahúsið er fegursta bygg-
ingin, sem vjer íslendingar höf-
um enn þá bygt, og mun ætíð
verða til sóma þeim mönnum,
sem unnu að henni.
Hún er sýnilegt tSkn þess,
hve langt islenskir iðnaðarmenn
og verkamenn eru komnir í
sinum atvinnugreinum og mun
verða litið á hana með aðdáun,
jafnt af innlendum mönnum
sem útlendum. Því getum vjer
veriö stoltir af byggingunni. Á
þessum stað ljet Tryggvi Gunn-
arsson byggja Landsbankann í
lyrsta sinn. Eftir 9 ára hrakn-
ing er hann nú aftur kominn
heim til sin, og bjer mun hann
búa öld eftir öld og öll fslands
bðrn að honum hlúa.
Hljómleika
hjelt Páll ísólfsson í dómkirkj-
unni siðastl. sunnudag. Voru
þeir mjög vel sóttir og er slikt
ekki að furða, því hjer er ann-
að og meira á ferðinni en al-
mennar skemtanir.
Alt eru það stórmerk tónverk
sem leikin eru og listfengi
Páls og annriki mun flestum
koma saman um, er til
þekkja. — Mun blaðið siðar geta
hljómleika þessara, sem eru í
raun og veru stórir viðburðir í
sðgu íslenskrar sönglistar. A.
A. V. Haflð þjer gerst kaup-
andi að Eimraiðinni ? *-
Ping-sag-a.
Jón Baldvinsson bar fram 2
frumv. um einkasölu á síld og
saltfiski. Bæði frv. voru feld
eftir nokkra orðasennu.
Tryggvi Pórhallsson og Pjetur
Ottesen bera fram frumvarp um
bann gegn áfengisauglýsingum.
Má ekki á nokkurn hátt birta
almenningi að áfengi sje til sölu.
Sprúttsalarnir telja frv. borið
fram í vináttuskyni við sig því
þess fleiri renni á lyktina.
Sömu þingmenn og Magnús
Jónsson í viðbót bera fram frv.
um ýmsar breytingar á bann-
lögunum. Er þar mjög hert á
ýmsum ákvæðum bannlaganna,
einkum sektarákvæðum.
Brennivínssalarnir telja frv.
meinlaust hvað sjer viðvíkur en
meinlegt almenningi.
Búast við því aö þurfa að hækka
brennivínsflöskuna um 100°/« til
að standast áhættunaaf atvinnu-
rekstrinum.
Tryggvi Pórhallsson ber fram
frv. um stofnun búnaðarlána-
deildar við Landsbankann.
Skal samkv. frv. stofnuð sjer-
stök deild með þessu nafni.
Skal Landsbankinn leggja henni
árlega til 500 þús. kr. og á að
verja því fje eingöngu til bún-
aðarframkvæmda. — Lánstími
skemstur 20 ár, vextir 4°/o og
lánið afborgunarlaust fyrstu 4
árin.
Vel Hklegt að frv. verði sam-
þykt eins og ríkisveðbankinn,
en svo verði enginn eyrir veittur.
Magnus Guðmundsson flytur
frv. um aukaútsvör ríkisstofn-
ana. Skulu þær samkv. frumv.
greiða 5°/0 af nettó ágóða i bæj-
arsjóð þar sem aðalaðsetur
þeirra er. Annarstaðar greiðist
ekkert.
Pjetur Ottesen ber fram breyt-
ingu á samvinnulögunum sams-
konar og i fyrra, Pjetur Þórð-
arson hefir skorast undan lið-
veislu. Hefir hvíslið Jónasar
í eyra hans orðið áhrifameira
en raddir kjósendanna og sjálfs
hans skoðun á síðasta þingi.
Jón Baldvinsson flytur frumv.
um breytingu á fátækralögun-
um. Skal samkv. því sá styrk-
ur ekki skoðast sveitarstyrkur;
sem veittur er vegna ómegðar,
slysa og vanheilsu, atvinnuskorts
og elli.
Ef þingmenn þjáðust af öllu
þessu mundu þeir samþykkja
frumv.
Ásgeir og Jón Kjartansson flyfja
þingsályktunartillögu um bann
gegn innflutningi útlendinga í
atvinnuskyni. Er full þörf á að
hjer sje hafist handa, því að alt
er að fyllast af útlendingum og
fer óspart orð af því, að sumir
þeirra verki spillandi á siðsam-
ar dætur höfuðstaðarins, sém
»insta þráin« hefir byrjað að
gera vart við sig hjá.
Jakob Möller flytur frv. um
afnám tóbakseinkasölunnar. Þyk-
ir honum hagnaðurinn af söl-
nnni orðið mun minni en á-
atlað var eða aðeins rúmar200
þús. kr. á ári í stað 500—000
kr. sem fjárhagsneíndin áætlaði
þær.
Magn Jónsson og Ásgeir flytja
þingsályktunartill. um undir-
búning þegnskylduvinnu. Skal
eftir henni skipuð kauplaus nefnd
til að athuga möguleikana á
því að koma henni hjer á.
— Gott að byrjað er á að
hreyfa þessu þarfa máli aftur.
Magnús Torfason ber fram frv.
um sparisjóði. Eru í frumv.
frekari tryggingarráðstafanir fyr-
ir því, að vel sje með fje spari-
sjóða farið, en áður voru í lög-
um.
Bernharð Stefánsson ber fram
frumv. um bygðarleyfi. Má sam-
kvæmt því enginn flytja sig inn
í framfærsluhjerað nema með
leyfi sveitar eða bæjarstjórnar
viðkomandi hjeraðs.
Pjetur Ottesen flytur frv. um
breytingu á’ lögunum um bann
gegn botnvörpuveiðum. Er þar
hert mjög á refsiákvæðunum.
Við 1. brot missir skipstjóri
rjett til skipstjórnar um 1 ár,
við annað brot um 2 ár og við
þriðja missir hann skipstjórnar-
rjett sinn fyrir fult og alt. Auk
þessa er svo fangelsishegning.
Ástæðan fyrir flutningi frv. hin
mikla ágengni botnvörpunga við
veiðar innan landhelgi og þar
afleiðandi eyðilegging þeirra
fiskimiða sem smábálar sækja
afla sinn á.
Ásgeir, Sigurjón og Árni flytja
till. í sambandi við þetta mál,
að sektir skuli borgaðar í gull-
krónum.
Jón Kjartansson flytur frv. um
útgáfu 5. flokks bankavaxta-
brjefa í veðdeild Landsbankans
alt að 27« miljón kr. Skal ein-
ungis lánað gegn veði i jarð-
eignum og graslendum f kaup-
stöðum. Lánstími 25 ár. Veð-
deildin má lána upphæðina í
bankavaxtabrjefum en er skyld
að koma brjefunum í gjaldgenga
peninga fyrir lántaka endur-
nú. Frumvarp þetta er svipað
gjaldslaust. Ætlast er til að af-
föll af brjefunum verði ekki
nema 6—10°/» í stað 25—30°/«.
Frv.þettaer svipað frv. Tr. Þórh.
um sjerstaka búnaðarlánadeild
en er öllu ítarlegra.
Björn Kristjánsson flytur frv.
um seðlaútgáfurjett ríkisins. Er
það aðalefni, frv. að sett verði
á fót sjerstök stofnun, sem hafi
með alla seðlaútgáfu ríkisins að
gera. 30°/» af seðlunum skulu
þegar gulltrygðir en gulltrygg-
ingin aukast upp í 50°/« af arði
þeim sem stofnunin hefir af við-
skiftum sínum við bankana,
sem fá alla sina seðia til láns
hjá þessari stofnun.
Þetta, sem nú hefir verið tal-
ið, eru helstu frv. sem lögð hafa
verið fyrir þingið.
Umræður um þau hafa ekki
enn orðið miklar og yfirleittmá
segja að þingið sje fremur mein-
hægt og róstulítið enn sem kom-
ið er.
Útlit er fyrir, að frv. um inn-
flutningshöftin hafi talsvert mik-
ið fylgi í þinginu hjá öllum
flokkum, en vafalaust verða
gerðar allmiklar breytingar á
því, enda er Það aannilega full-
víðtækt eins og það nú liggur
fyrir þinginu.
Frv. Jóns Magnúss. um fækkun
dómara i hæstarjetti sýnist hafa
mikið fylgi í Efrideild og ekki
sætt þar mótmælum nema af
hálfu Sig. Egg. sein engar breyt-
ingar vill hafa á rjettinum.
Frumvarp sama um stjórnar-
skrárbreytinguna hefir verið
samþykt til 3. umræðu, en feld
var 1. gr. þess um landritarann.
Frv. um að fella niður prent-
un alþingistíðindanna hefir verið
samþykt í Ed., en afdrif þess
eru talin vafasamari í Nd., því
að þar leggjast Framsóknarmenn
og sjálfstæðis á móti því senni-
lega óskiftir, enda þótt ýmsir
úr Framsóknarflokknum hafi
áður verið þvl fylgjandi.
Annars verður sagt hjer i blað-
inu frá afdrifum allra helstu
frv. jafnskjótt og vissa er um
þau fengin.
Fjárveitingarnefnd hefir skilað
af sjer fjárlögunum og má þvi
búast við, að þing verði frem-
ur stutt.
Innlendar frjettir.
Fískaílf er nú mjög góður
sunnanlands þegar á sjó gefur
svo að elstu inenn muna tæpast
jafnmikinn.
Eftirspurn er sögð mjög mikil
eftir fiski og verð hækkandi.
Taugavelkl gengur nú á
Akureyri. 8 menn liggja. Frá
Akureyri hefir hún borist i
Barðardal og Fljót og liggja 2
menn í hvorum stað.
IJ mVestmanneyJ apresta-
kall sækja kandídatarnir Hálf-
dán Helgason, Baldur Andrjess.
og auk þeirra Sigurjón Árnason
sem er settur þar og Vigfús
Þórðarson prestur i Eydölum.
IJm Laufás (ekki sr.
Tryggva) sækja sr. Ásmundur
Gislason á Hálsi, sr. lngólfur
Þorvaldsson, sr. Hermann
Hjartarson á Skútustöðum, sr.
Gunnar Benediktsson i Saurbæ
sr. Björn O. Björnsson Ásum,
sr. Sigurjón Jónsson Kirkjubæ
og Sveinn Víkingur aðstoðarpr.
að Skinnastað.
mannalát. Nýlátnir eru:
Guðmundur Þorsteinsson læknir
sonur Þorsteins heitins Guð-
mundssonar fiskimatsmanns.
Maður á besta aldri og vellát-
inn, og Halldór Guðmundsson
rafmagnsfræðingur hjer í Rvik.
Hjónaböinl. 11. mars voru
gefin saman í hjónaband ungfrú
Anna dóttir Jóhannesar bæjar-
fógeta og Haraldur Jóhannessen
kaupmaður.
13. mars voru gefin saman í
Hafnarfirði ungfrú Halldóra
Flygenring og Benedikt Gröndal
verkfræðingur sonur Þórðar
Edilonssonar læknis.
Sktpatrönd. Kútter Sigrið-
ur strandaðivið Slafnestanga að-
faranótt 13 mars. Menn björg-
uðust en skipið sökk nokkru
eftir áreksturinn.
Aðfaranótt þess 14. strandaði
færeysk seglskúta Delflnen við
Skaftárós. 1 maður af 16 drukn-
aði. Þann 14 strandaði frakk-
nesk skúta utan við Fáskrúðs-
fjörð. Mannbjörg varð. Þann
10 strandaði frönsk skúta í ör-
æfum. 1 maður fórst.
Húsbruni. 11 mars brann
ibúðarhúsið á Þingeyrum í
Húnavatnssýslu til kaldra kola.
Kviknaði út frá ofnpipu á efsta
lofti.
Húsið var mjög reisulegt og
nýbygt og sagt fremur lágt vá-
trygt. Innanstokksmunir björg-
uðust að mestu en mikið branu
af matvælum.
Botnvörpuug. sektaðlr.
»Fylla« hefir nýverið tekið tvo
erlenda botnvörpunga að veið-
um í landhelgi. Voru þeir sekt-
aðir um 10 þús. kr. og afli og
veiðarfæri gert upptækt.
Horöanpóstur lenti i hin-
- um mestu hrakningum í siðustu
póstferð. Skall stórhrið á hann
er var á Stóra-Vatnsskarði.
Viltist hann suður að Bollastöð-
um í Svartárdal og var þá orð-
inn mjög lamaður og kalinn.
Lagðist hann á sjúkrahús á
Blönduósi en annar maður var
fenginn til að fara með póstinn.
Fyrirlesttur um Vilhjálm
Stefánsson og viðskifti hans við
Eskimóa flutti Ólafur Friðriks-
son s. 1. sunnud. Fyrirlesturinn
var vel fluttur og hinn fróðleg-
asti.
Trachom. Einn maður í
Hafnarfirði hefir fenginn þenna
augnsjúkdóm. Er haldið, að
hann hafi smitast i Englandi.
Maðurinn hefir verið einangaður.
Terðliækkuu allmikil hefir
orðið á ýmsum vörum hjer nú
siðustu dagana.
Iunflutnlngsliöit. Stjórn-
in hefir gefið út reglugerð sem
bannar innflutning á öilum þeim
vörum sem taldar eru í inn-
flutningshaftafrv.
Iiántaka Fraklta. Banka-
firmað Morgan í New-York hefir
lánað Frökkum 100 milj. doll.
Vextir 6°/o. Frakkar eiga endur-
greiða lánið i gulli eftir ár. Sagt
er að Frakkar sjeu að semja
um samskonar lán við Breta.
Áhrif lánsins hata orðið þau, að
frankinn hefir hækkað stór-
kostlega.
Mikið af láninu á að nota til
að kaupa upp franskan gjald-
eyri. Stjórnin franska heldur
því fram, að Þjóðverjar hafi
notað fje sitt, sem þeir eiga er-
lendis til að spilla fyrir frank-
anum og af því hafi fall hans
stafað.
Ensku blöðin fara hörðuin
orðum um þessa lántökustefnu
Frakka og leggja á móti þvf,
að Bretar láni þeim meira fje
en orðiö er.
/
Franika öldfungad«ll<l>
In hefir nýlega samþykt heim-
ildarlög sem gefa stjórninni
vald til að gera ýmsar fjárhags-
ráðstafanir á eindæmi sitt.
Lög þessi voru samþykt með
13 atkv. meiri hluta og ætlaði
stjórnin að segja af sjer ef deild-
iu feldi fruravarpið.