Vörður


Vörður - 28.02.1925, Page 1

Vörður - 28.02.1925, Page 1
 Ritsfjóri og ábyrgð- armaður Kristján Albertson Túngötu 18. > « Afgreiðslu- og tnn* heimtumaðuv Ásgeir Magnússoo kennarl. III. ár. Reykjavík 28. febrúar 1925. 9. blað. Tóbakseinkasalan Ræða Magnúsar Jónssonar við i. umr. frv. um afnám tóbakseinkasölunnar. Fyrsta umræða þessa máls hefir nú staðið nokkuð á þriðja fund, og má búast við að varla komi fram margt beinlínis nýtt í því. En þó er varla bægt að telja það neitt undarlegt að umræð- ur verði nokkuð langar, þegar jafn .gamalt og mikið deilumál er tekið á dagskrá bjer á al- þingi. Fó að menn greinist nú hjer í tvo flokka á þinginu um að- alniðurstöðu málsins, með eða móti, þá virðast samt ástæður beggja vera nokkuð mismun- andi. Kemur þar þrent til greina: Fjárhagsatriði málsins, skoðan- ir á verslunarfrelsi og það, með hveiju móti heppilegast sje, að ríkið afli sjer tekna. Fyrir sum- um er bjer um hreint fjárhags- mál að ræða. Peir hugsa ekki um neitt annað en upphæð þá, sem ríkissjóður fær, en er ann- ars sama um það, með hverju móti hún næst og loka aug- unum fyrir öllum öðrum afleið- ingum. Frá þessu sjónarmiði er hjer um hreint reikningsdæmi að ræða, og það er alveg vitanlegt, að þetta er stórt atriði í mál- inu og verður að athugast vel, ekki síst á tímum eins og þess- um, þegar svo mikið af starfi þingsins og umhugsun verður að snúast um það, að rjetta við fjárhag landsins. Við sem flytj- um þetta mál höfum því talið okkur skylt, að bera málið fram að nokkuru leyti á þessutn grundvelli, og athuga einmitt fjárhagsatriðið mjög vandiega. Pær staðhæfingar og áætlanir, sem við höfum sett fram hafa nú af andstæðingum málsins verið vefengdar, og er það ekki nema gott, að beggja málstaður korni fram. Enda þótt háltv. 1. flutningsmaður (Bj. Líndal)o.fl. hafi nú svarað þessum andmæl- um, svo að ekki ætti að þurfa frekar vitnanna við, langar mig samt til þess að gera nokkrar athugasemdir frá minum bæjar- dyrum. Háttv. andmælendur frv. segja að ganga eigi út frá afrakstri ársins 1924 einum, en ekki með- altali þeirra þriggja ára, sem einkasalan hefir starfað. Þetta væri nú alveg einstakt, ef' rjett væri, 0g á móti því sem ávalt og allstaðar e.r gert, þegar líkt á stendur. Pað er margviður- kent, að einstök ár eru vafa- söm, eitt og annað, sem þvi getur valdið, að þau verða sjer- slaklega hagstæð eða óhagstæð, en hitt hefir sýnt sig, að þessar ójöfnur jeta hver aðra upp ef svo mætti segja, þegar til lengd- ar lætur og þvi er það ráð tekið að jafna saman sem flest- um árum þar sem ástæður annars eru þær sömu. Það sem hjer mætti helst að finna er það, að árin, sem einkasalan hefir staðið, eru í raun rjettri offá til þess að verulega sje hægt á þeim að byggja. En við því verður ekki gert. Nú hittist einmitt svo á, að af þessum 3 árum er eitt sjer- staklega óhagstætt, sem sje fyrsta árið. Vð visu er það hrein fjar- stæða, sem bæði háttv. 2. þm. Rang. (Kl. J.) og háttv. 2. þm. Rvk. (J. Bald.) hafa sagt, að kaupmenn hafi viðað að sjer ó- venjumiklum birgðum rjett áð- ur en einkasalan komst á, því aö þar tala tölurnar móti. En hitt er satt, sem þeir virðast ekki skilja, að birgðir hafa þá verið meiri til í landinu heldur en síðar verður undir einkasöl- unni, og það stafar af því einu að verslunin flyst af mörgum höndum á eina. En ekkert bend- ir á að birgðirnar 1921 hafi ver- ið vitund meiii en á undanförn- um árum. Þetta, að birgðirnar hljóta að rýrna eða færastsam- an, veldur óvenjulega litlum inn- ílutningi árið 1922 svo að tolltekjurnar rýrna. En aftur á móti hefði verslunarhagnaður- inn átt að geta verið nokkuð nálægt eðlilegu. En á móti þessu ári, sem af eðlilegum ástæðum verður að telja neðan við meðallag, kem- ur svo aftur uppgripaár óvenju- legt 1924. íslenska krónan stig- ur stórkostlega, svo að inn- kaupsverð vörunnar lækkar. Ár- gæska óvenjuleg er í landinuog kaupgetan eykst. Háir lollar á ijölda mörgum öðrum vörum halda verði þeirra uppi, svo að menn eiga frekar að venjast veröhækkun en verðlækkun og alt þelta kemur því til vegar, að venju meira tóbak er keypt og fyrir geysi verð. Slíka álagningu ofan á tollinn hækkaðan um 25°/» þarf ekki að imynda sjer að verslunin geti leyft sjer í meðalári öðru vísi en að það dragi til verulegrar rýrnunar á umsetningunni, ýmist með þvi að menn spara tóbakið við sig eða að smyglun eykst i stórum stil. Jeg verð því að telja, að mjög sanngjarnt sje, að miða versl- unina, að minsta kosti verslun- arágóðann við meðaltal þessara 3 ára. Að vilja versluninni í vil byggja að eins á árinu 1924 er ekkert annað en þetta gamla, að svo mæla böin sem vilja, og ælti það helst ekki að vera regla hjer við meðferð stórmála. Með sama rjetti hefðum við flutningsmenn getað tekið árið 1922 eitt og úthúðað verslun- inni með þeim forsendum. En það hefði verið óleyfilegt fram- ferði og datt engum í hug. Þegar gera á npp hag einka- sölunnar, er því enginn vafi, að byggja verður á meðaltali ár- anna, sem hún hefir starfað, og meðaltal teknanna fyrir ríkissjóð eru þá af tolli og verslun kr. 723000, ef menn hugsa sjer að 25(,/o gengisviðbótin á tollinum hefði gilt öll árin. Raunverulega er það 682670 kr. Þetta er alveg ljóst. En þegar syo á að gera npp væntánlegan ágóða af tolli fram- vegis, vandast málið auðvitað meira, því aö þá kemst maður inn á áætlanasviðið. En jeg bygg, að við höfum þar farið mjög varlega í sakirnar, svo varlega, að segja má, að við fylgjum þar þeirri heilbrigðu reglu, sem hæstv. fjármálaráðh. hefir oft getið um, að áætla svo, að nálega sje vist, að reikningurinn á sinum tíma sýni meiri tekjur en áætlunin. Við höfum sem sje gengið úr frá meðalinnflutningi þessara ára og bætt við hann 12°/o. Nú hefir áður verið viðurkent, að eilt af þessum árum, árið 1920, hafi kipt stórlega úr inn- ílutningnum vegna birgðarýrn- unar þeirra, sem af einkasölunni leiddi og það dregur því meðal- innflutning þessara ára óeðlilega niður. Þetta virðast allir fallast á. t öðru lagi sýna árin 1923 —1924, að einkasalan dregur varanlega úr innflutningnum. Sjest þetta og vel af útreikningi þeim í greinargerðinni, sem háttv. 2. þingm. Reykvíkinga kallaði talnarebus eða eitlhvað slikt. Þar sjest, að meðaltal tolleininga á mann var, meðan frjáls var verslun, 1,46, en þessi tvö sfðari ár 1,1. Með öðrum orðum, þessi tvö ár sýna, að innflutningur þessara tveggja ára er milli 20 og 30°/o minni en áður, og það verður að telja varlega í sakirnar farið, að áætla, að hann nái aftur helmingi þess, sem hann misti. En jafnvel þólt við af varfærni drögum áætlunina þann- ig niður með tvennu móti, þá fást þó tolltekjur, sem eru heldur hærri en samanl«i.ðar tolltekjur og verslunarágóði einkasölunnar eða kr. 729472 móti kr. 723000. En ef við hefðum viljað reikna óvarlega okkar málstað í vil, eins og þeir gera sínum málstað í vil, þá hefðurn við tekið meðal innfluluings frjálsu áranna síð- ustu, og þá gæfi tollurinn fast að miljón. En okkur hefir þótt rjettara, að byggja traust heldur en glamra hátt. Þó verður enn að athuga það, að í þessurn tölum eru tekjur tóbakseinkasölunnar árið 1924 taldrr óskertar, að viðbættum 25°/o gengisviðauka alt árið kr. 903,000. En eins og sýnt hefir verið fram á í greinargerðinni er þetta í raun og veru ekki rjett. Bæði háttv. 2. þm. Rang- æinga og háttv. 2. þm. Reyk- vikinga hófu hjer andmæli (væntanlega báðir eftir sömu heimild, því að þeir lásu það nálega orðrjett eins upp) og því miður var háttv. þingm. Akureyrar, áður búinn að viður- kenna þetta, og sýnir það hve afar-sanngjarnlega hann vill flytja þelta mál, að hann hallar rjettu máli andstæðingunum f vil. En honum hefir þar vissu- lega missýnst er hann fellst á, að láta gengisgróðann 1924 mæta útsvarsgjaldinu. Svo er þessu máli varið, að eftir að greinargerðin var samin og prentuð, berst reikningur, sem sýnir, að einkasalan hefir orðið á árinu 1924 að borga útsvör þriggja siðustu ára, og þau nema nálega sömu upphæð og gengisgróðinn. En það nær engri átt, að þetta eigi hjer að mætast, þegar einkasalan er borin saman við frjálsa verslun. — Útsvar er líka skattur, sem hið opinbera þarf, þótt ekki sje það sjálfur ríkissjóðurinn, sem það fær, og það er alveg víst, að í frjálsri verslun fljóta af tóbakinu þessi og ekki minni gjöld í bæjar- Og sveilarsjóði, auk tekna í rikis- sjóð. Það er eiumitt alveg nauð- synlegt, ef rjettan samanburð á að fá milli einkasölu og frjálsrar verslunar, að taka þetla með, jafnvel þótt einkasalan væri sjálf útsvarsfrí, því að þá væri missir útsvaranna af tóbaksversluninni einn af þeim tekjuliðum, sem við hana heíðu tapast. Að þessi 3 útsvör koma á eitt árið, 1924, ruglar ekki heldur dæmið um einn eyri, þegar verið er að finna meðaltal þessara þriggja ára. Af þessu Ieiðir, að tolltekjurnar fara eftir áætlun okkar nokkru meira fram úr ágóða einkasöl- unnar, heldur en áður er talið. Þá taldi háttv. 2. þm. Rang. okkur hafa dregið undan af tekjum einkasölunnar, þar sem við hefðum slrpt því, sem ár- lega hefir verið Iagt í varasjóð. En þetta er bláber misskilningur. Þessi litli varasjóður er ekkert annað en nauðsynleg tryggingar- ráðstöfun, sem beint leiðir af því, að ríkið hjer er að fást við verslun, og má alls ekki skoða hann sem tekjur, heldur er hann fje, sem lagt er til hliðar fyrir væntanlegum óhöppum, sem alt af geta komið. Tóbakseinkasalan er nú mjög áhættulítil verslun, og til þess svarar lika það, að varasjóðurinn er lítill. Verði af- gangur af honum, þegar alt verður gert upp, þá er það gott og blessað, en í sjálfu hugtakinu varasjóður liggurjj það, að hann á ekki og má ekki teljast með tekjum. Úr þvi aö jeg minnist hjer á varasjóð tóbakseinkasölunnar dettur mjer það í hug, að jeg hjó eftir því hjá háttv. 3. þm. Reykv. að varasjóður Landsversl. losnaði við þessa ráðstöfun, en hann er talinn h. n. b. I1/* miljón. Um þetta gátum við ekkert í grg. okkar, og jeg hygg ekki að rjett sje að blanda hon- um neitt hjer inn í. Bæði er nú það, að hann mun vera tóbaks- einkasölunni óviðkomandi, þvi hún lifir að því er sagt er á erlendri »krít« að mestu og svo er ekki öll nótt úti þótt tóbaks- einkasalan hyrfi, því eftir er annað fyrirtæki, sem henni er svo langtum áhættumeira, og það er steinolíuverslunin. Það væri óskandi að ekki færi svo, að hún æti þessar feitu kýr og meira til á vondu árunum. Jeg myndi fyrir mitt leyti líta svo á, að öxin og jörðin geymdu hana best — og sem fyrst. En meðan steinolíueinkasalan er við lýði hygg jeg að ekki veiti af varasjóði þessum. Og hvernig er svo þessi varasjóður? Hann sýnist að h. u. b. */* hlutum vera í útistandandi skuldum, og býst jeg við að einu sinni og tvisvar verði að berja á sumar þær dyr, áður en þar verður hver skildingur inn kominn. — Vara- sjóðir eru því miður svo oft affallasöm eign. Jeg hygg nú að jeg hafl geng- ið frá fjárhagsatr. málsins. Full- yrðingar háttv. þm., að ríkis- sjóður skaðist um 200000 kr. eins og háttv. 2. þm. Rang. sagði eða um allan hagnað verslunarinnar eins og háttv. 2 þm. Reykv. sagði, eru ekkert annað en vigorð, sem bjaðna eins og bóla ef á er andað. Þetta atiiði málsins, fjárhags- legu hliðina, hef jeg rætt ítar- legast, af þvf að á þeim vett- vangi hefir mest verið barist. En víkja má svo að annari á- stæðu, sem skipar mönnum með og móti einkasölunui, en það er afstaða manna til frjálsar verslunar. Þar verður ekki töl- um eins við komið og þvi er þar auðveldara að deila til ei- lífðar, í stað þess að í fjárhags- atriðinu ættu andstæðingar okk- ar að vera þeir drengir, að þeir fjellu frá fyrri villu sinni er þeir sjá málið skýrt lagt fram. Fyrir mjer persónulega er þetta friverslunaratriði ekki svo sjer- lega mikilvægt i sambandi við tóbakseinkasölu, og jeg gæti ekki fallist á að afnema tóbaks- einkasöluna, eins og háttv. 1. þm. Gullbr.s. (Ág. Flygenring) ef það sýndi verulegt tap fyrir rikissjóð. En hitt er rammasta fjarstæða, sem háttv. þm. V.- ís. (Ásg. Ásg.) sagði, að bjer sje bókstaflega engin skerðing á frjálsri verslun, en það þyrfti ekki þar fyrir að vera ranglát skerðing. Það er Iíka til rjettlát og viðurkend skerðing bæði á Framh. á 4. síðu,

x

Vörður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vörður
https://timarit.is/publication/375

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.