Vörður - 03.04.1926, Síða 4
4
V Ö R O U K
liðið ár 40 þús. kr, Frv. miðar
að því að efla veðurstofuna,
svo að hún komi að fullu gagni,
og er svo fyrirmælt um starfs-
svið hennar í 2. gr.:
»Starfssvið veðurstofunnar skal
vera sem hjer segir:
a. Að safna gögnum til rann-
sókna á loftslagi landsins. Skal
til þess hafa nægilega margar
veðurstöðvar úti um land, sem
standa undir umsjón og eftirliti
veðurstofunnar.
b. Að vinna úr veðurskýrsl-
um frá veðurstöðvunum og gefa
út veðurfarsskýrslur, er sýni
skilyrði þau og takmörk, sem
veðráttan setur atvinnuvegum
landsins.
c. Að safna daglegum veður-
skeytum, innlendum og erlend-
um, og senda út fregnir um
veðurútlit. Skal einkum lögð
stund á að vara við stormhættu
á landi og á miðum úti og segja
fyrir um úrkomu að sumrinu.
d. Að safna nákvæmum fregn-
um um hafís og senda út ís-
fregnir til skipa, þegar ástæða
er til. Sama gildir og þegar
eldgos og öskufall ber að hönd-
um.
e. Að standa fyrir, i samráði
við ríkisstjórnina, öllum þeim
málum, sem snerta aiþjóðasam-
vinnu f veðurfræði og ísland
varða að einhverju leyti. Hjer
með er talin umsjón með því,
að sem glegstar veðurfregnir sjeu
sendar til annara landa frá
hæfilega mörgum islenskum
veðurstöðvuma.
„Pór“.
Sjávarútvegsnefnd Ed. flytur
svohljóðandi tillögu til þings-
ályktunar:
»Alþingi ályktar að sam-
þykkja kaup ríkisstjórnarinnar
á björgunar- og eftirlitsskipinu
Bpóra fyrir alt að 80 þúsund
krónur, með því skilyrði, að
ríkið láti skipið framvegis, með-
an það er vel til þess fært,
halda uppi á kostnað ríkissjóðs
samskonar björgunar- og eftir-
litsstarfsemi við Vestmannaeyjar
í 31/*—4 mánuði (vetrarvertíð-
ina) árlega, sem það hefir haft
á hendi undanfarin ár, enda
leggi bæjarsjóður Vestmanna-
eyjakaupstaðar árlega fram 25
þúsuhd krónur til útgerðar
skipsinscc.
Landholgln.
Pjetur Ottesen flytur svo-
hljóðandi tiilögu til þingsálykt-
unar um rýmkun landhelginnar:
»Alþingi áiyktar að skorar á
ríkisstjórnina að gera hinar ítr-
ustu tilraunir tii þess að fá
samningum við Stóra-Bretland
um landhelgi ísiands breytt á
þá leið, að hún sje færð út
þann veg, að innan hennar
verði allir flrðir og flóar og
helstu bátamið.
Stjórninni er heimiH að senda
til Englands mann eða menn
til þess að greiða götu þessa
máis, og sjerstaklega vekja at-
hygli á þeirri alþjóðanauðsyn,
sem á því er að stækka hið
friðaða svæði, til þess að vernda
framtíðarfiskveiðar i hafinu
kringum ísland.
Kostnað af sendiförinni skal
greiða úr ríkissjóði«.
Þinghald á Pingröilam.
Sveinn Ólafsson, Ásg. Ásg.
og Ben. Sv. flytja svohljóðandi
tillögu til þingsályktunar:
»Neðri deild Alþingis ályktar
að skora á rikisstjórnina að
láta fram fara þjóðaratkvæði á
sumri komanda, jafnhliða lands-
kjörinu, um það, hvort sam-
komustaður Alþingis skuli vera
á Þingvöllum frá 1930. Skal við
atkvæðagreiðsluna farið eftir
nýjustu kjörskrám til aiþingis-
kosninga fyrir sjerstök kjör-
dæmi.
Tolllælcl ’íi álísl. ull
í Bandarikjunum.
Tilkypning fráTatvimm-^og sam-
göngumálaráðuneytinu.
Samkvæmt tilkynningu í sím-
skeyti frá utanríkisráðuneytinu
mun mega telja víst, að sú breyt-
ing sje orðin á tollflokkun ullar
í Bandaríkjunum í Norður-Ame-
ríku, að íslensk ull verði fram-
vegis tolluð eftir 1101 gr. þar
gildandi tollaga, en ekki eftir
1102 gr. sem hún hefir verið
toiluð eftir undanfarið.
Samkv. 1101 gr. er tollur á
óþveginni ull 12 cent á hverju
ensku pundi, þveginni ull 18
cent á ensku pd., full-þveginni
ull 24 cent á ensku pd., uil á
gærum 11 cent á ensku pd.
Ef sú ull, sem hjer um ræðir
er flutt inn eftir ákveðnum nán-
ari reglum þar um, fæst toll-
urinn endurgreiddur, ef sannað
er fyrir tollstjórninui innan
þriggja ára frá innflutningnum,
að hún hafi að eins verið notuð
til gólfdúkageröar.
Með óþveginni ull er átt við
ull, sem að engu leyti er þvegin
eða hreinsuð, en með þveg-
inni ull er átt við ull, sem að
eins er þvegin úr vatni á skepn-
unum eða á gærunum.
Samkv. 1102 gr. er aftur á
móti tollurinn bæði af óhreinni
og þveginni ull (miðast við full-
þvegna ull) 31 cent á hverju
ensku pd„ en at ull á gærum
(sömuleiðis miðað við fullþvegna
ull) 30 cent á hverju ensku pd.
íslensk ull hefir, eins og fyr
segir, verið toiluð eftir 1102. gr.
tjeðra tolllaga, eða ineð hjer um
bil 3 kr. og 13 aura hvert kg.
með núverandi dollarsgengi, en
eftir 1101. gr. er tollur á henni
fullþveginni 2 kr. 42 aur. á hvert
kg. en óþveginni helmingi lægri
og fæst hann samkvæmt þeirri
Sveipþokur i Veiðihundi. Andrómetupokan.
Sjá Stjörnuríki neðanmáls.
Verðlaun
Alt að 800,00 kr. verðlaunum heitum vjer þeim, sem sent
hafa oss hin bestu form fyrir íslenskum búreikningum, fyrir lok
októbermánaðar n.k., enda sjeu búreikningaform þessi svo góð,
að iikleg sjeu til almennrar notkunar, að dómi vorum. Nánari
upplýsingar gefur
Búnaðarfjelag íslaiuls.
iagagrein eftirgefinn með öllu,
ef ullin er notuð eingöngu í
gólfdúka, en til gólfdúkagerðar
mun íslensk ull hafa verið not-
uð n jög mikið i Bandaríkjunum.
Von er á nánari skýrslu um
málið innan skamms.
Gísli Bjarnason cand. juris. frá
Steinnesi er skipaður aðstoðar-
maður í fjármálaráðuneytinu
frá 1. þ. m.
Aðalfundur Heilsuhælisfjelags
Norðurlands er nýafstaðinn. Stjórn
og framkvæmdarnefnd voru
endurkosin. Síðan fjársöfnun
heilsuhælisins var hafin við stofn-
un fjelagsins 22. febr. síðastl.
hefir safnast í greiddu fje og
tryggum loforðum 110 þús. kr.
Alt fje heilsuhælissjóðsins safn-
að að fornu og nýju munnema
um 230 þús. kr.
Dánarfregn. Látinn er í Khöfn
Pórður Guðjónsen kaupmaður.
Lfk hans var brent og verður
askan flutt til Húsavíkur og
jarðsett þar í grafreit Guðjónsens-
ættarinnar.
Landhelgis^rot. Togarinn »Sur-
prise« frá Hafnarfiði var tekinn
í landhelgi undir Svörtuloftum
fyrir skömmu og dæmdur í 12,-
500 kr. sekt, en afli og veiðar-
færi gerð upptæk. Eigandi hans
er Einar Porgilsson, skipstjóri
Jón Sigurðsson. — Annar togari
þýskur var um sama leyti tek-
inn við Dyrhólaey og dæmdur
í 10 þús. gullkróna sekt, afli
og veiðarfæri gerð upptæk.
Prentsmiðjan Gutenberg.
V etrarbraut.
Stjörnuríki.
S veipþokur.
Lögun.
57. Mestur hluti af þokum rúmsins
eru sveipþokur. Skifta þær mörgum
hundruðum þúsunda. þær hafa afar-
margvíslegt útlit. Stafar það að líkind-
um mikið af því, að þær horfa alla-
vega við oss. Sjáist á hliðina, þá blasir
sveipurinn við. Sjáist á röndina, þá
gætir eigi sveipsins. Þokan sýnist þá
sporöskjulöguð, löng og mjó.
Sumar þokur hafa marga sveipi. Hjer
og hvar eru flókar og hniklar. Víða
liggja angalijur í ýmsar áttir.
Oftast liggja þó tveir. aðalarmar út
frá þokubólstri, sem er nálægt miðbiki
þokuríkisins. Armarnir eru þó víða
bognir og sundur slitnir eða liggja á
misvixl.
Einna kunnust er Sveipþokan i Veiði-
hundi. Hún liggur rjett við endann á
rófu Stóra björnsins. Blasir þar sveip-
urinn alveg við oss.
Andrómeduþokan snýr að oss rönd-
inni, að mestu leyti, enda sýnist hún
aflöng.
Útlit er fyrir mikla ókyrð í sveipum
þessum, en fjarlægðar vegna virðist alt*
grafkyrt, eins og líkneskjur höggnar í
stein.
Li trof.
58. Lilsjáin sýnir að sveipþokur eru
ekki gasmekkir, heldur stjörnuþyrpingar,
svo fjarlægar að alt rennur saman í
eÍDa ljósþoku.
Vonlaust er að geta talið, eða aðgreint
einstakar stjörnur, nema alveg ný áhöld
komi til sögunnar. Að eins »nýjar
stjörnur«, fá um stund svo mikið ljós-
magn, að þær sjáist við og við i bestu
sjónaukum. Nýstirni eru alltíð í stjörnu-
þokum. Að eins í Andrómeduþokunni
hafa sjest 20 nýstirni síðan 1917, og
um 10 í öðrum sveipþokum.
Mikið djúp.
59. Sveipþokur er fjarstar af öllu sem
fjarlægt er. Engin hreyfing sjest á neinu,
nema hvað litsjáin sýnir að þær hafa
mikinn fallrjettan hraða, þ. e. i áttina
að oss eða frá. Nú stendur fallrjett og
lágrjett hreyfing stjarna f vissum hlut-
föllum, sje tekið meðaltal af nægum
dæmum. Ætti því lágrjett hreyfing að
sjást í sveipunum, en naumast hefir
tekist að sjá bennar minsta vott. Vita
menn á þvi að þær geta eigi verið inn-
an einhverrar mikillar Qarlægðar, sem
til er tekin.
Önnur aðferð til þess að fá hugmynd
um fjarlægð sveipþoku, er á þessa leið:
Búast má við að nýstirni sveipþoka,
sjeu álíka björt i eðli sínu og nýstimi
Vetrarbrautar. Andromeduþokan ætli
þá að gangast fyrir um 0.”ooooos, en af
því leiðir að hún er í 650000 Ijósára
fjarlœgð.
Einnig leiðir af hinu sama, að hún
ætti aö vera 23000 ljósár í þvermál.
Stórviðburðir einir, svo sem það að
heimar brenna, berast yfir þessi djúp.
Tuttugu fregnir af þessháttar atburðum,
hafa borist til jarðar vorrar á undan-
förnum átta árum, frá þessu mikla
stjörnuriki. Alt eru þetta löhgu liðnir
voða viðburðir, sem hafa gerst fyrir
650000 árum í raun og veru.
Ný^tirnl sjást oltlti.
60. Helmingi fleiri nýstirni hafa sjest
í Andromeduþoku einni, en í öllum
öðrum sveipþokum samtals. Einnig
sýnist hún langsamlega stærst.
Af þessu álykta menn að Andrómedu-
þokan sje tiltölulega nálæg, en að aðrar
sveipþokur sjeu svo fjarri að nýstirna
verði eigi vart.
Mesti hraði efnis.
61. Nýjustu athuganir sýna að sveip-
þokur hafa fallrjettan hraða — að oss
eða frá — sem uemur að meðaltaliöOO
km. á sek. Er þessi hraði þrefalt meiri
en meðalhraði stjarna í vetrárbrautinni.
Sex þokur fjarlægjast oss með 1000
—1800 km. hraða á sek.
Þetta yfirstígur hraða á gasmökkum
sólar vorrar, og eigi þekkja menn neitt,
að undanteknum öldum Ijósvakans, sem
fer með þvilikum flýti.
Mön dulsnúningur.
62. Sveipþokur eru furðuverk verald-
ar Nýlega hefir orðið vart við möndul-
snúning í Andrómetuþokunni og ýms-
um fleirum. Að vísu mátti vænta þess,
en ávalt sýnir hann að hreyfingin berst
að nokkrn leyti út eftir sveipnum, eins
og þokurnar sjeu að dreifa sjer. Enginn
skilur hvað þessu veldur.
Hvar eru sveipþoknrnar.
63. Sveipþokur liggja á víð og dreif
uin himingeiminn — óskipulega mjög —
en langmest nálœgt möndulsvœðum Velr-
arbrautar.
Enginn veit hversvegna þær halda
sig framar þar en annarsstaðar.
8'veipþoltui* eru fi lelö i brott.
64. Sveipþokur eru lítt viðráðanlegar
manniegri athugun og mannlegum skiln-
ingi. Bær hafa mesta fjarlægð og mest-
an hraða alls efnis og engin hnattkerfi
hafa þvílíka víðáttu nema Vetrarbraut-
in sjálf.
Þá er hitt eigi minna undur aðnæst-
um allar sveipþokur eru á leið í brott
frá stiörnuveldi því sem við byggjum.
Nœstum allar fjarlœgjast Vetrarbraut,
með geisi hraða.
Stjarnfræðingar nútímans þreyta höf-
uð sín og leita allra raka fyrir þvi,
hvort sveipþokur lúti alheimi vorum —
Vetrarbrautinni — eða sjeu henni óháð-
ar með öllu. Vafasamt er hvort nokkru
sinni verður leyst úr þvímeð óyggjandi
fullvisáu.
Asgeir Magnússon.