Vörður - 17.07.1926, Síða 2
V Ö R Ð U R
Máttur 5ólar.
Fyrirlestur fluttur af
Jónasi Kristjánssyni hjeraðslækni
í Kvennaskólanum á Blönduósi um sumarmálin 1925.
V Ö R Ð U R
kemur út á laugardögum.
Ritstjórinn:
Kristján Albertson, Túngötu 18.
Sími: 1961.
A f g r e i ð s 1 a n:
Laufásveg 25.
Opin 5—7 síðdegis. — Sími 1Ú32.
V e r ð: 8 kr. árg.
Gjalddagi 1. júlí.
gert viö Breta og ítali um skuld-
ir þeirra. Þessi ákvæði heimila
stjórn Bandaríkjanna að selja
einstaklingum skuldakröfur
hennar á hendúr franska ríkinu.
Frakkland á að gefa út skulda-
brjef fyrir upphæðum þeim, er
það á að greiða Bandaríkjun-
um, og þessi skuldabrjef á að
vera heimilt að bjóða á peninga-
markaði heimsins. Franska rík-
ið verður þannig smám saman
skuldunautur banka og eigna-
manna um allan heim, í stað
Bandaríkjanna, og missir við
það alla von um, að síðar geti
samist um að ljetta skuldabyrð-
ina.
Það er því eðlilegt að Frakkat
hafi reynt í lengstu lög að fá
samningnum breytt. Og enn
virðast þeir ekki geta gefið upp
alla von um að það megi takast.
Fyrir nokkrum dögum gengu
þúsundir fatlaðra hermanna,
er þátt tóku í styrjöldinni
miklu, gegnum götur Parísar-
borgar til þess að minna Ame-
ríku á ófriðarfórnir Frakka og
mótmæla skuldasamningi þeim,
er Bandaríkin bjóða.
Víða um heim heyrast radd-
ir, sem áfella hina stórauðugu
Ameríkumenn þunglega fyrir
hörku þeirra í fjárkröfum á
hendur frönsku þjóðinni.
Nafnkunnur lögmaður i
Jeg hef hugsað mjer, að þeim
lesendum „Varðar“, sem ein-
hverju láta sig skifta fræðslu-
mál yfirleitt, og elcki síst iðnað-
arstjett landsins, geti þótt fróð-
legt að fá þetta vfirlit yfir fyr-
irkomulag iðnfræðslunnar í Ðan-
mörku og Noregi, og svo síðar
í öðrum Norðurlöndum.
í Danmörku hafa það verið
og eru enn kvöldskólarnir, sem
eru megin-undirstaða allrar iðn-
fræðslunnar. Flestir skólar, sem
veita almenna iðnfræðslu, þótt
aðallega eigi að heita dagskólar,
hafa þessvegna kvöldskóla sam-
hliða. t þeim er kcút móðurmál-
ið, bókfærsla, reikningur, undir-
búningsteikning og byrjunarat-
riði iðnteikningar á sama hátt og
hjer. Kensla fer fram 5 kvöld í
viku, 2 tíma á kvöldi og venju-
lega 22 vikur af árinu. í sveita-
skólum, þar sem nemendurnir
eiga 4—8 km. að sækja til skól-
ans, er oftast ekki kent nema 3
kvöld í viku en kenslan þá lát-
in ná yfir 5 ára skeið og nokkuð
drégið úr yfirferðinni, samborið
við aðra skóla.
Dagskólarnir eru bæði hlið-
Ameríku ritaði fyrir skenistu
opið brjef til Coolidge forseta,
þar sem hann krafðist þess, að
nú þegar yrðu látnar niður falla
allar kröfur um endurgreiðslu
á stríðsskuldum Evrópuþjóð-
anna. Hann heldur því fram að
Bandamenn hafi sparað Ame-
ríkumönnum 100,000 miljónir
kr. með því að berjast fyrir þá
% hluta þess tímabils, er ófrið-
urinn hjelst. Þessi upphæð er
þrisvar sinnum meiri en
fé það, er Ameríka lánaði
Bandamönnum.
Lögmaðurinn vitnar til þess,
að þegar Wilson. hafi farið fram
á samþykki þingsins til þess að
segja Þjóðverjum stríð á hend-
ur, þá hafi hann sagt, að Banda-
ríkjamenn myndu fúsir að fórna
„lífi sinu og eignum, öllu sem
þeir væru, öllu sein þeir ættu,“
en hann hafi ekki talað um að
berjast með lánum, sem ættu að
endurgreiðast með rentum.
Brjefritarinn endar á þessa
leið:
„Jeg krefst þess að allar
skuldheimtur verði látnar niður
falla. Jeg krefst þess í mínu
nafni og allra þeirra Ameríku-
manna, sem elska land sitt og
hafa til að bera einhvern neista
af sómatilfinningu“.
Sveinn Björnsson
fer utan með „GulIfossi“ 26. þ.
m. til þess að taka að nýju við
sendiherraembættinu í K.höfn.
Eggert Briem
hefur verið kosinn dómstjóri
hæstarjettar til loka ágústmán-
aðar næsta ár.
Ásgeir Ásgeirsson
alþingism. hefur verið settur
fræðslumálastjóri.
stæðir þessum skólum, — þ. e.
sumir þeirra taka nemendur frá
byrjun, óundirbúna, og kenna
sömu námsgreinir og kvöldskól-
arnir, — og einnig framhalds-
skólar.
Fiamhaldsskólarnir eru eink-
um miðaðir við það, að
þeir, sem þaðan útskrif-
ast, sjeu fulllærðir meistar-
ar. Þar er því aðallega kend
frainhaldsteikning, móðurmál og
stundum reikningur. Aftur eru
aðrir skólar, sem fara lengra.
Þeir eru miðaðir við sjeriðnir
og kenna að teikna áhöld og
hyggingar og að reikna þær út
um leið, um efni og áhöld, er
iðngreinin þarf með o. fl. Af
þessum skólum er „Teknisk
Selskabs Skole“ í Kaupmanna-
höfn þektastur. Hann er aðallega
fyrir byggingafræðinga, vjelfræð
inga og rafmagnsfræðinga en
veitir þó fullnaðarfræðslu í fleiri
iðngreinum. í Óðinsvje er ann-
ar skóli fyrir vjelfræðinga, á
Helsingjaeyri og í Árósum skól-
ar fyrir rafmagnsfræðingá, á
Helsingjaeyri skóli fyrir skipa-
smiði og margir fleiri fyrir bygg-
Flestir munu hafa heyrt getið
þeirra þjóða er eldsdýrkendur
voru kallaðar. Þær voru i raun
og veru sólardýrkendur og tign-
uðu eldinn, sem ímynd sólarinn-
ar. Þessar þjóðir stóðu að mörgu
leyti á lágu menningarstigi, en
þær höfðu samt veitt því eftir-
tekt, að sólin er uppspretta og
viðhald alls, sem lifir á jörðinni,
þótt ofurmagn sólarhitans eyði-
leggi sumstaðar allan jurtagróð-
ur, þar sem regn eða vatn vantaði
til þess að vökva og draga úr á-
hrifum hins brennandi sólarhita.
Sumir fornaldármenn, forfeð-
ur vorir, þeir er voru best sið-
aðir og vitrastir, trúðu á þann
er sólina hafði skapað, og fólu
önd sína hohum, er þeir lögðu
af stað í hina hinstu för, leið-
ina, sem Iiggur út yfir endi-
mörk þessa lífs. Þessir menn
höfðu líka fengið vissu fyrir
því, að sólin væri uppspretta
og viðhald alls, sem lifir, og
þess vegna hlyti sá að vera
máttugur og gæskuríkur, sem
sólina hefði skapað.
í hinu gullfagra Eddukvæði
„Sólarljóðum“ segir svo á ein-
um stað: „Sól ek sá; svá þótti
mjer sem sæak göfgan goð;
henni ek laut hinzta sinni alda
heimi í“.
Þegar menn rannsaka og at-
huga sólarljósið eftir því, sem
vísindaleg þekking á því leyfir,
Jiá birtist mönnum heill heimur
fullur drottins dásemdarverka.
Sólargeislarnir eru fyrst og
fremst uppspretta og fyrsta
ingafræðinga. Bestur af þeim er
talinn skólinn í Horsens. Að lok-
um er svo fjölfræðaskólinn og
háskólinn, sem veita þá full-
komnustu vísindaþekkingu í
verklegum fræðum, sem völ er á
í Danmörku.
Allir þessir skólar, sem hjer
hafa verið nefndir, kenna aðal-
lega bókleg fræði og teikningu.
En við hliðina á þeim eru svo
aðrir skólar, sem leggja aðal-á-
hersluna á það verklega. Það eru
einskonar verkstæði, þar sem
mest er hugsað um að kenna
nemöndunum iðn þeirra sem
best og víðtækast, einkum verk-
lega, en þó líka kend þau bókleg
atriði og teikning, sem heimtuð
eru af öðrum dagskólum. Jafn-
framt er þess gætt, að það, sem
smiðað er, sje nothæft og seljan-
legt. Af þessum skólum eru
helstir:
1. Klæðskeraskólinn í Khöfn,
fullkominn verkstæðisskóli,
sem vinnur fyrir meistarana
fyrir sama verð og sveinafje-
lagið.
2. Sniðskólinn í Khöfn. Sjer-
skóli í að sníða föt og taka
mál.
3. og 4. Skólar í Khöfn fyrir
skósmiði og úrsmiði taka
nemendur bæði frá byrjun
eins og verkstæðin, og eins
sveina, útlærða lijá meistur-
um, og kenna þeim ýms auka-
atriði og sjaldgæfari vinnu,
orsök nær því allrar orku á
jörðu vorri, svo að segja hverr-
ar tegundar sem er. Sólin hefir
nú um óendanlega margar alda-
raðir helt yfir jörðina steypi-
flóði orku og yls í mynd sólar-
geisla. Ekkert verður að engu.
Mikið af þessari orku hefur
safnast fyrir og myndað heil
lög í jarðskorpunni. Það er
þessi orkuforði, sem notaður
er, þegar skipin eru knúin á-
fram yfir höfin eða gufuvagnar
og bílar yfir landið, með því að
kynda í þeim annað hvort kol-
um eða olíu. Það er líka orka
sólarinnar sem veldur því, að
unt er að nota vindinn til þess
að sigla skipum yfir höfin, eða
að nota fossaaflið til kraft-
framleiðslu, t» d, til fi*amleiðslu
á raforlcu.
Vjer vitum að orka sú, er
menn og dýr fá úr fæðunni, er
örka sólargeislanna. Blað-
grænkan á grösum og jurtum
höndlar sólargeislana og geym-
ir þá. Með öðrum orðum, fæða
manna og dýra er að miklu
leyti ekki annað en sólarljósið
breytt í fast efni. Hvaðan kom
lífið til járðarinnar eða á hvern
hátt? Það vita menn ekki. Vís-
indin hafa, enn sem komið er,
að eins komið fram með get-
gátur um það. Hitt vita menn,
að fyrst lengi vel, hefir jörðin
verið svo heit, að á henni gat
ekkert lif þrifist., en þegar hún
kólnaði, fór að geta þrifist líf
á lienni. Það líf hefir að vísu
verið fábreytt og ófullkomið í
sem ógjarnan kemur fyrir í
algengari verkstæðum.
5. Ljósmyndaskólinn í Khöfn
kennir lærlingum og aðstoðar-
mönnum frá öllu landinu.
Framantaldir skólar eru
allir dagskólar.
6. Blikksmíðaskóli í Khöfn til
framhaldsnáms frá verkstæð-
unum. Það er kvöldskóli, sem
tekur við af kvöldslcóla
„Teknisk Selskabs Skole“.
7. Glerskóli í Khöfn, kvöldskóli
í teikningu og smíði á trje-
og blýrönunum, sem framhald
af verlcstæðanáminu.
8. Skóli fyrir bókbindara og
prentara til framhaldsnáms,
fyrst kvöldskóli og sem fram-
hald af honum dagskóli fyrir
sveina alstaðar frá í landinu.
9. Rakara- og hárgreiðsluskól-
arnir eru kvöldskólar, bæði í
Ivaupmannahöfn og víða úti
um land.
lO.Sótaraskólinn í Iíhöfn cr
mánaðarnámskeið á daginn.
Þar er kent um bruna og elds-
neyti, reykháfa, byggingalög-
gjöf, bókfærslu, verkfæri og
svo verklegar æfingar. Á
kvöldin eru fyrirlestrar fyrir
meistara og sveina.
11. Loks er sjerstakur skóli fyrir
listiðnað — og
12. Yfir þessum skólum öllum er
svo einn sameiginlegur, verk-
legur og bóklegur iðnskóli,
„Teknologisk Institut“, dag-
fyrstu. En hvaðan kom lífið
fyrst, eða hvernig varð það til?
Sennilegt er að það hafi fyrst
orðið til fyi-ir skapandi öfl sól-
argeislanna, á sama hátt og sól-
in eykur enn þá sífelt marg-
breytni alls þess sem lifir, þó
sú framþróun fari afarhægt, svo
hægt, að vjer getum tæplega
orðið þess varir á voru skamma
æfiskeiði.
Einna einföldust tegund lífs,
sem vjer þekkjum, er amöban,
örlítill. slímkekkur. Þessi litli
slímkekkur hefur þó lífræna
byggingu, tekur til sín fæðu, í
honum verða einnig efnaskifti,
þó í ófullkomnara mæli sje en
hjá dýrum, sem komin eru
hærra i sköpunarstiganum.
Smám saman hefir bygging líf-
færanna orðið margbreyttari
og tegundirnar fleiri. Hvert líf-
færi hefir tekið að sjer eitthvert
ákveðið starf í þjónustu ein-
staklingsins. Þannig eru augun
á laígstu dýrum aðeins örlítill
dökkur blettur, þakinn fínni húð,
viðlcvæmri fyrir áhrifum ljóss-
ins. Fjölbreytni náttúrunnar
hefur þannig vaxið frá fyrstu
tímum sköpunarinnar, og hún
heldur áfram enn þann dag í
dag.
Maðurinn er fullkomnasta vera
jarðarinnar. Lífæri hans eru
fullkomnust að gerð, sjerstak-
lega heilinn og taugakerfið.
Hann hefur þess vegna yfir-
burði vitsins fram yfir önnur
dýr. Það er óhætt að fullyrða,
að maðurinn er ekki síður en
alt annað lifandi kominn út úr
sólarljósinu og til orðinn fyrir
áhrif þess. Svo að segja sprott-
inn upp úr jarðveginum fyrir
áhrif hinna skapandi krafta
sólarljóssins, aðeins ekki jarð-
fastur eins og trje í skógi, held-
ur megnugur þess að hreyfa sig
og taka sjer næringu úr um-
skól með stuttum námsskeið-
um fyrir meistara og sveina
úr öllu landinu og lcvöldskóli
fyrir Kaupmannahafnarbúa.
Þessi skóli er ætlaður mönn-
um, sem eru eigendur eða for-
stöðumenn smærri iðnaðar-
fyrirtækja, en vinna þó meir
með vjelum en mannafli. Skal
jeg til skýringar nefna nokk-
ur af viðfangsefnum skólans.
Kvöldskólinn skiftist í al-
menna fræðslu og iðnfræðslu. 1
almennu deildinni er á fyrsta ári
kend danska, skrift og reikning-
ur, á öðru ári bókfærsla, við-
skiftafræði og iðnaðarlöggjöf
(Haandværkerret). Á 3. og 4. ári
mál (þýska, enska og franska).
í iðnfræðsludeildinni er á
fyrsta ári kent, iðnreikningur.
danska og skrift; á öðru ári er
hægt að velja um eftirfarandi
námsgreinir: bókfærslu, byrj-
unaratriði kostnaðarreiknings
(kalkulation), viðslciftafræði,
iðnaðarlöggjöf, þýsku, ensku,
stærðfræði, eðlisfræði og efna-
fræði fyrir smáiðnað, og svo
sjerstök námsskeið fyrir garð-
yrkjumenn, verkstjóra, bakara,
húsasmiði, steinsmiði, vjelstjóra,
skipasmiði, veggfóðrara o. fl. Á
3., 4. og 5. ári eru svo verkstæð-
isæfingar og iðnfræði, sjerstak-
lega í trje- og málmsmíði.
Dagskólinn er mánaðarnám-
skeið í verkleguin æfingum með
Iönfræöslan
í Danmörku og Noregi.
Eftir Helga Hermann Eiríksson verkfræðing.