Vörður - 15.08.1927, Qupperneq 4
4
V Ö R Ð U R
Gjalddagi Varðar
var 1. júlí. — Menn eru vinsamlega beðnir að greiða
hið fyrsta skuldir sínar við blaðið, annaðhvort til um-
boðsmanna vorra, þar sem menn ná til þeirra eða vita
um þá, eða til afgreiðslu blaðsins á Hverfisgötu 21 í
Reykjavík.
Prjónanámskeið
hefur Prjónastofan Malin frá 15. október n. k. til ára-
móta og lengur, ef ástæður eru til.
Kent verður á venjulegar prjónavjelar og sokka-
vjelar og öll nýjustu snið og gerðir á prjónafatnaði.
Kenslutíminn er áætlaður 100 klst. fyrir hvern
nemanda, sem þó má framlengja eða stytta, ef þátt-
takandi álítur sjer það hagkvæmara.
Nemandinn leggur sjer til vjelar og verkefni, nema
um annað sje samið fyrirfram.
Óskað er eftir að umsækjendur gefi sig fram seni
allra fyrst. Öllum fyrirspurnum svarað um hæl.
Myndin sýnir nokkrar af þeim peysum, sem gj
ar hafa verið á prjónastofunni.
Verð: No. 1—2 Kr. 16,00—22,00 eftir gæðum alull.
No. 3 Kr. 12—15,00. No. 4—5—6 Kr. 10—15,00.
Puntað með mislitu silki (prjónuðu í) 0,75—2,00
kr. meira.
Hvað stærð snertir þá þarf að taka fram hvað gam-
alt, ef um unglinga er að ræða, um íullorðna, þá mál
yfir brjóst, sídd tekin af háöx! og ermalengd frá
axlarsaum ölnbogamegin með bognum handlegg.
Póstkröfur afgreiddar strax.
Virðingarfylst.
PRJÓNASTOFAN MALIN.
því að flugleið sje valin yfir
Ísland í stað hinnar „syðri
feiðar“, sem liggur yfir Azor-
eyjar. „Nyrsta leiðin“ frá Ham-
borg til New York er 7200 km.
og skiftist í 5 áfanga sem er
1000—1600 km. hver. „Miðleið-
in“ yfir Atlantshaf beint, er
um 6600 km., en þá er alt At-
lantshaf í einum áfanga, en
„syðsta leiðin“ er fullar 8000
km., i 3 mislöngum áföngum.
Verða því flugvjelar að flytja
mikið benzín á báðum syðri
leiðunum, en við það minkar
lestarrúm fyrir flutning og far-
þega.
Það sem menn aðallega hafa
á móti „nyrstu leiðinni" kem-
ur af ótrú á íslenskri veðráttu
og röngum hugmyndum um
legu íslands á hnettinum. En
veðráttu hjer við land telja þeir
alt eins hagfelda fyrir flugferð-
ir og veðráttu yfir Norðursjón-
mn og norðurhluta Atlantshafs-
ins alls yfir, þó að veðrátta
sje i landinu sjálfu mjög svo
breytileg.
Iþróttasamband íslands
tilkynnir:
Nýlega hefur stjórn í. S. I.
staðfest þessi met:
50 stiku sund, frjáls aðf., á
43.6 sek. Regína Magnúsd. (K.
R. sett 26. júní ’27. 100 st. bak-
sund, á 1 min. 51.3 sek. Sama
(K. R.) 10 júlí ’26. 200 st.
bringusund, á 3 mín. 57.8 sek.
Sama. Sett 26. júní ’27. 1000 st.
sund, frjáls aðferð, á 22 min 1.2
sek. Sama. Sett 15. júli ’27. 400
st. bringusund, á 7 mín. 20.6
sek. Jón Ingi Guðmundsson.
(Ægir). Sett 10 júlí ’27. 100 st.
stakksund, á 2 mín. 40.3 sek.
Pjetur Árnason. (K. R.) Sett
10. júlí ’27. 80 stiku hlaup
(maraþónhlaup) á 3 klst. 10
mín. 15 sek. Magnús Guð-
björnsson. (K. R.) Sett 29. ág.
1926.
NB. Sambandsfjelögin eru
beðin að muna eftir að senda
metskýrslurnar til staðfesting-
ar þegar eftir mótin.
Frímerki I. S. í.
Frímerki þau, sem í. S. í.
hefur fengið leyfi ríkisstjórn-
arinnar til að gefa út cru nú
ekkert beinlínis til þessa at-
vinnurekstrar, því varla er telj-
andi, þótt ríkissjóður hafi lagt
tæpa % miljón króna til Fiski-
fjelagsins frá því er það var
stofnað 1911 til 1925. Nú er
þó fiskframleiðsla vor orðin
40—50 miljónir gullkróna á
meðalfiskiárum á móts við
hjer um bil 5 miljónir kr.
1874—75“.
Tímaritið „Vaka“ er óháð öll-
um pólitískum flokksböndum.
Útgefendur hennar eru hver úr
sinni áttinni í pólitískum efn-
um. En þeir eru allir mentaðir
menn og víðsýnir og kenna ekki
annað en það sem þeir vita
sannast og rjettast. Auk þess
eru á meðal útgefendanna rit-
færustu menn þjóðarinnar. Það
bæri ekki vott um þroska les-
enda í landinu, ef „Vaka“ næði
ekki vinsældum og útbreiðslu.
Á.
komin á markaðinn og kosta 10
og 20 aura. Þessi íþróttamerki
eru mjög smekkleg að gerð og
litum. A dýrara merkinu er
mynd af glímumönnum (klof-
bragð, hábi'agðið), en á hinu
er mynd af sundmanni, er
varpar sjer til sunds. Undir
myndunum stendur „Góð iþrótt
er gulli betri“. Þessi brjefmerki
eru seld til styrktar málefnum
íþróttamanna og er þess vænst,
að allir sem líkamsíþróttum
unna, noti þessi merki á hrjef
sín.
Brjefmerkin fást á pósthús-
inu, í flestum bókaverslunum,
hjá afgreiðslumanni íþrótta-
blaðsins og forseta í. S. í.
Ingibjörg Brands.
Ingibjörg Brands sundkenn-
ari hefur á þessu sumri keirt
hjer sund í 20 sumur með mikl-
um dugnaði. Hún er ein af for-
vígiskonum sundmentarinnar
hjer á landi og ein af stofnend-
um í. S. I.
Akurcýri 5. ágúst: Útgerðar-
fjelagið á Akureyri og nokkr-
ir sunnlenskir útgerðarmenn
senda Einar Olgeirsson til
Kaupmannahafnar í sildarsölu-
erindum og fer hann áleiðis
með Nóvu í kvöld. I samráði
við íslenska sendiherrann á
hann að vinna að síldarsölu
til Rvisslands og víðar, eftir því
sem vænlegt þykir. Er þetta
gert í samráði við atvinnu-
málaráðherra.
ísafirði 5. ágúst: Grasspretta
hjer yfii'leitt í góðu meðallagi
á túnum. Töður viða að inestu
leyti hirtar. Verkun ágæt.
Akurcijri 6. ágúst: Spretta í
meðallagi í Eyjafirði, í góðu
meðallagi í Skagafirði. — Síð-
ustu viku daufur þurkur. Mik-
ið hey úti. Tún alhirt óvíða.
Kaupgjald karlmanna víðast
40—45 kr. um vikuna, en kven-
manna 25 kr.
Seyðisfirði, 6. ágúst: Gras-
spretta kemur seint vegna vor-
kulda. Tún tæplega í meðallagi,
útengi lakara. Heyskapur erf-
iður, þurkar óstöðugir. Garð-
uppskera óráðin enn.
Kaupgjald hjer við síldar-
söltun 1 kr. á tunnu af hafsild,
1,25 af smásíld. 1
Sildveiði á Austfjörðum ó-
venju mikil. Alls hefur verið
saltað 15.000 tunnur; þar af á
Seyðisfirði 4.500; Eskifirði
5.000; hitt á Norðfirði, Reyðar-
firði og Fáskrúðsfirði. Sild-
veiðin hefur verið hingað til
mest utanfjarða, en nú útlit
fyrir, að firðirnir sjeu að fyll-
ast. Landnótaveiði byrjuð.
Akureijri, 8. ágúst: Síldarafli
síðustu viku í Akureyrarum-
dæmi: 15162 tn. saltaðar, 3018
kryddaðar, 24000 mál bræðslu.
Tuttugu og fimm skip liggja nú
á Krossanesi og biða eftir af-
greiðslu. Getur verksrniðjan
ekki lengur tekið við síld þeirri,
er henni berst og kaupir nú
að eins af samningsbundnum
skipum.
Síðustu símfregnir.
— Símað er frá Genf, að
flotamálaráðstefnunni sje lok-
ið án nokkurs árangurs Banda-
rikjanna og Englands um heikl-
arstærð flotanna og smálesta-
fjölda einstakra skipategunda.
Bandarikin kröfðust aðallega
stórra skipa, England margra
litilla heitiskipa.
— Frá Boston er símað, að
landstjórinn i Massachusetts
hafi neitað að náða kommun-
istana Sacco og Vanzetti, sem
dæmdir voru til dauða fyrir
morð. Verða þeir líflátnir i
næstu viku. Ákvörðun land-
stjórans vekur gremju víða
um heim. Margir álíta koinm-
únistana saklausa.
— Frá Paris er simað, að al-
þjóða fundur verkalýðsfjelaga
hvetji til mótmælafunda út af
dómnum á Sacco og Vanzetti.
Ennfremur undirbúa franskir
kommunistar mótmælaverkföll.
Óeirðir og mótmælaverkföll
hyrjuð í Argentínu. — Sendi-
herra Bandaríkjanna í Frakk-
landi og Argéntínu hafa beðið
um lögrégluvernd. Óttasl þeir
árásir. Vinstriblöð ýms og
hægriblöð einnig, mótmæla
dómnum.
— Frá London er símað, að
Englendingurinn Temme, hafi
synt yfir Ermasund.
— Símað er frá New York,
að fjórar tilraunir hal'i verið
gerðar þar í borg til þess að
valda tjóni með sprengingum.
Sprengingartilraunir þessar
voru gerðar á brautarstöðvum
neðanjarðarbrautanna. Stórtjón
varð að sprengingunum, en
manntjón litið. Slík sprengju-
tilræði hafa verið gerð víðsveg-
ar um Bandaríkin og eru talin
hermdarverk í mótmælaskyni
gegn líflátsdómi Sacco og Van-
zetti.
— Símað er frá Stokkhóhni,
að mótmælaverkfall (út af líf-
látsdóminum), hafi verið hafið
í verksmiðjum General Motors.
— Símað er frá London, að
blöðin i Bandaríkjunum, all-
flest, búist við ensk-amerískri
samningstilraun til þess að und-
irbúa flotamálaráðstefnu 1931,
til þess að endurskoða sam-
þykt þá viðvíkjandi flotarnál-
um, er kend er við „Washing-
ton“.
— Símað er frá London, að
samkvæmt fregn er þangað hafi
borist frá Shanghai, hafi Jap-
anar sett stjórnunum í Kína
úrslitakosti. — Kröfur Japana
voru fyrst bornar fra.m árið
1915 og mið^ þær að því að
gera Manchuriii og Mongoliu að
japönskum nýlendum.
— Símað er frá New York,
að lögreglan sje á verði kring-
um allar opinberar byggingar i
öllum borgum Bandaríkjanna
og víða þar sem sjerstök á-
stæða þykir til, eru heilar lög-
regludeildir búnar til varnar, en
á lögreglustöðvum er varalið
sifelt reiðubúið. Ivommunistar
i Ameríku og Evrópu mótmæla
dóminum (á Sacco og Vanzetti)
með kröfugöngum, í þeirri von,
að háværar kröfur leiði til nýrr-
ar rannsóknar.
PrentsmiCjan Gutenberg.